Fréttablaðið - 21.11.2020, Side 49
Leikskólastjóri í Sunnuási
Skóla- og frístundasvið
Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar auglýsir stöðu leikskólastjóra í Sunnuási lausa til umsóknar.
Sunnuás er sjö deilda leikskóli í Langholts- og Laugaráshverfi, í næsta nágrenni við Laugardalinn. Einkunnarorð leikskólans
eru virðing, gleði og sköpun. Sunnuás er Grænfánaskóli og umhverfismennt, útikennsla og endurnýting er ríkur þáttur í
starfinu. Unnið er eftir kenningum Berit Bae og Bronfernbrenner um samskipti og áhersla lögð á sjálfseflingu og félagsfærni
sem eru tveir af grundvallarþáttum Menntastefnu Reykjavíkurborgar. Virðing ríkir fyrir einstaklingnum og liðsheildinni og
áhersla á að raddir barnanna heyrist en Sunnuás stefnir að því að verða réttindaskóla UNICEF og unnið er að spennandi
verkefnum í tengslum við Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Sunnuás hlaut hvatningarverðlaun skóla- og frístundaráðs
fyrir öskudagsbúningagerð árið 2018. Gott samstarf er við foreldra og árlega taka börn og fjölskyldur þeirra þátt í jólaverk-
stæði í Sunnuási þar sem þau fá tækifæri til að vinna saman og njóta samveru.
Leitað er að einstaklingi sem býr yfir leiðtogahæfileikum og er tilbúinn til að leiða áfram gott og metnaðarfullt leikskóla-
starf í Sunnuási.
Umsókn fylgi yfirlit yfir nám og fyrri störf, leyfisbréf til að nota starfsheitið kennari og greinargerð um framtíðarsýn um-
sækjanda á starf í leikskólanum.
Ráðið verður í stöðuna frá 1. febrúar 2021. Umsóknarfrestur er til og með 6. desember 2020.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags stjórn-
enda leikskóla. Umsækjendur eru beðnir um að sækja um starfið á heimasíðu Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is/storf
Nánari upplýsingar veitir Ingibjörg M. Gunnlaugsdóttir, skrifstofustjóri fagskrifstofu leikskólamála, sími 411 1111.
Netfang: ingibjorg.m.gunnlaugsdottir@reykjavik.is
Meginhlutverk leikskólastjóra er að:
• Vera faglegur leiðtogi leikskólans og móta framtíðarstefnu
hans innan ramma laga, reglugerða, aðalnámskrár og
stefnu Reykjavíkurborgar.
• Bera ábyrgð á daglegu starfi í leikskólanum.
• Skipuleggja foreldrasamstarf í samvinnu við foreldra og
starfsmenn.
• Hafa yfirumsjón með innra mati á starfi leikskólans og um-
bótaáætlunum.
• Hvetja til þróunar og nýbreytni í leikskólastarfi.
• Stýra rekstri leikskólans á grundvelli fjárhagsáætlunar.
• Bera ábyrgð á starfsmannamálum, svo sem ráðningum,
vinnutilhögun og starfsþróun.
• Skipuleggja tengsl skólans við ýmsa samstarfsaðila.
Í öllu starfi skóla- og frístundasviðs er unnið að innleiðingu
Menntastefnu Reykjavíkur, „Látum draumana rætast“, þar
sem leiðarljósin eru virkni og þátttaka barna, aukið sam-
starf og fagmennska.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf kennara.
• Viðbótarmenntun í stjórnun eða kennslureynsla á leik-
skólastigi.
• Reynsla af stjórnun æskileg.
• Stjórnunarhæfileikar og vilji til að leita nýrra leiða.
• Þekking á rekstri, áætlanagerð og fjármálastjórnun.
• Lipurð og hæfni í samskiptum.
• Sjálfstæði og frumkvæði.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir
borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Alþýðusamband Íslands er stærsta fjöldahreyfing launafólks á landinu
með ríflega 130 þúsund félagsmenn í 46 aðildarfélögum. Alþýðusambandið
berst fyrir bættum kjörum félagsmanna sinna og stendur vörð um réttindi
þeirra. Félagsmenn í aðildarfélögum ASÍ eru starfandi á flestum sviðum
samfélagsins, á almennum vinnumarkaði og hjá ríki og sveitarfélögum. ASÍ
sinnir margvíslegri þjónustu við aðildarfélög og félagsmenn og tekur virkan
þátt í erlendu samstarfi samtaka launafólks.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Halla Gunnarsdóttir
framkvæmdastjóri ASÍ í síma 535 5600.
Vinnumarkaðs-
sérfræðingur
Alþýðusamband Íslands auglýsir eftir sérfræðingi í vinnumarkaðsmálum til liðs við
öflugan hóp starfsmanna. Leitað er að einstaklingi sem hefur ríka þekkingu og brennandi
áhuga á vinnumarkaðsmálum og kjörum og hagsmunum launafólks. Viðkomandi þarf að
vera kraftmikill og jákvæður og geta sýnt frumkvæði í starfi og sjálfstæð vinnubrögð.
Fólk af öllum kynjum og ólíkum uppruna er hvatt til að sækja um.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Stefnumótun og greiningar á sviði
vinnumarkaðsmála.
• Þátttaka í nefndum og ráðum fyrir
hönd ASÍ.
• Umfjöllun um málefni vinnumarkaðar
framtíðar með tilliti til loftslagsbreytinga
og nýrrar tækni.
• Samstarf við kjörna forystu og aðildar-
félög ASÍ og önnur samtök launafólks.
Fríðindi í starfi
• Sveigjanlegur vinnutími.
• Samgöngustyrkur.
• Íþróttastyrkur.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólamenntun í vinnumarkaðsfræði eða í
öðrum sambærilegum greinum sem veita góðan
undirbúning fyrir starfið.
• Staðgóð þekking á íslenskum vinnumarkaði,
stofnunum hans og umhverfi kjarasamninga.
• Góð þekking á helstu forritum Microsoft Office.
• Góð íslensku- og enskukunnátta og hæfni til að
tjá sig í ræðu og riti. Kunnátta í Norðurlandamáli,
pólsku eða öðrum tungumálum er æskileg.
• Góð samskiptahæfni.
• Þekking á norrænum vinnumarkaði og reynsla af
félagsstörfum er kostur.
Alþýðusamband Íslands
Sími 528 9000 • www.rarik.is
RARIK óskar eftir tilboðum í:
RARIK 20011
Larsenstræti 4, Selfossi -
Jarðvinna og
undirbúningur lóðar
Um er að ræða jarðvegsskipti undir
nýbyggingu. Uppfyllingu undir sökkla
og botnplötu ásamt fyllingu vegna
lóðaframkvæmda.
Helstu magntölur:
Gröftur á lausum jarðvegi : 4.600 m³
Fylling undir undirstöður: 4.800 m³
Fylling í lóð: 4.600 m³
Verkinu skal lokið eigi síðar en
1. mars 2021.
Útboðsgögn er hægt að sækja, án
greiðslu, á vefsíðu RARIK, www.
rarik.is (útboð í gangi) frá og með
þriðjudeginum 24. nóvember 2020.
Skila þarf tilboðum fyrir kl. 14:00,
þriðjudaginn 8. desember 2020 á
skrifstofu RARIK, Dvergshöfða 2, 110
Reykjavík eða með því að senda tilboð
í rafrænu formi á netfangið
ulfing@rarik.is.
Vegna sóttvarna verður tilboðsgjöfum
sent fjarfundarboð að morgni
opnunardags sem þeir geta nýtt til
að tengjast og fylgjast með opnun
tilboða. Fjarfundurinn fer fram í
gegnum fjarfundarforritið Teams frá
Microsoft. Hægt verður að tengjast
fundinum beint í gegnum vafra eða
nálgast Teams fyrir tölvur í Office
svítu Microsoft og fyrir snjallsíma og
spjaldtölvur má sækja forritið í Play
Store, App Store eða Google Play.
ÚTBOÐ
intellecta.is
RÁÐNINGAR