Fréttablaðið - 21.11.2020, Page 78

Fréttablaðið - 21.11.2020, Page 78
Til að birta andláts-, útfarar- eða þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is eða hringja í síma 550 5055 . Ég fattaði ekkert að hún væri að kveðja fyrir fullt og allt en síðar frétti ég að þann dag hefði hún gengið í sjóinn. Höfrungurinn leitaði heim. Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN Útfararþjónusta í yfir 70 ár Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Auðbrekku 1, Kópavogi síðan 1996 ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA Símar allan sólarhringinn: 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is Komum heim til aðstandenda og ræðum skipulag útfarar ef óskað er. Margrét Ásta GuðjónsdóttirSverrir EinarssonKristín Ingólfsdóttir Minningarkort á hjartaheill.is eða í síma 552 5744 Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Birte Dürke Hansen lést í faðmi fjölskyldunnar þriðjudaginn 17. nóvember á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð í Kópavogi. Ragnar D. Hansen Richard Hansen Sigríður Rósa Magnúsdóttir Solvej Dürke Bloch Michael D. Hansen Annemarie V. Hansen Anita Roland Brian Roland Rolf D. Hansen Manuel Parra Recuero John D. Hansen barnabörn og barnabarnabörn. Stúlkan sem ég er að minnast í þessu nýútkomna lagi mínu hét Anna Benný. Hún kom val-hoppandi og veifandi höndum á móti mér þegar ég hóf störf á geðdeild Landspítalans 6. september 1981 og spurði hvort ég væri engillinn sinn. Þessi dagur er versti dagur lífs míns því Rósa, þáverandi konan mín, hafði lent í alvarlegu slysi og lést þremur dögum síðar.“ Þannig byrjar Magnús Þór Sigmundsson tón- listarmaður að lýsa sögunni á bak við lagið Höfrunga stúlkan sem er nýkomið á veiturnar Spot ify og YouTube og hann er höfundur að. Heldur svo áfram frá- sögninni. „Anna Benný var sjúklingur, ung og falleg stúlka, og við fundum strax sterka tengingu. Ég var síðar settur sem aðgæslumaður hennar á deildinni. Hún varð mikil vinkona mín, við pössuðum svolítið hvort upp á annað. Ég fann til með henni því henni leið oft illa – þá sagðist hún vera höfrungur sem synti um. Mörgum árum seinna hringdi hún í mig, mjög yfirveguð og þakkaði mér þá vináttu sem ég hefði sýnt henni þegar hún var á deildinni. Tók fram að hún liti öðruvísi út núna, hún væri orðin feit af lyfjum. Ég fattaði ekkert að hún væri að kveðja fyrir fullt og allt en síðar frétti ég að þann dag hefði hún gengið í sjóinn. Höfrungurinn leitar heim. Magnús kveðst hafa samið bæði lag og texta sem hann tileinkaði þessari stúlku árið 2017. Hann hafi leyft vini sínum Ragnari Ólafssyni tónlistarmanni að heyra það fyrir tveimur árum, það hafi setið í honum og nú í sumar hafi Ragnar vakið máls á því að vinna þetta efni og gefa það út. „Já, alveg endilega, svaraði ég, og við gerðum nokkrar upptökur en það var ekki fyrr en Einar Scheving trommuleikari slóst í hópinn sem lagið lagðist rétt. Hann er snillingur,“ lýsir Magnús. „Svo fékk ég f leiri hljóðfæra- leikara, Matthías H. Mogensen bassa- leikara, Ara Braga á Flugel-horn og minn góða vin Jóhann Helgason og dóttur mína Þórunni Antoníu í bakraddir.“ Allt er að mestu búið til og hljóðritað heima hjá Magnúsi og Jennýju, konu hans, í Hveragerði, að hans sögn. „Ég hef verið að fjárfesta í upptökutækjum og er sjálf bjarga hvað það varðar, svo framarlega sem ég finn tæknimann,“ segir Magnús. „...og nú syndir Höfr- ungastúlkan um frjáls á Spotify.“ gun@frettabladid.is Höfrungurinn leitar heim Söngvaskáldið Magnús Þór Sigmundsson snertir við fólki með tónum og textum. Lagið Höfrungastúlkan sem er nýkomið út á Spotify og YouTube segir sterka sögu. Hluti hópsins sem að útgáfu Höfrungastúlkunnar kemur: Magnús Þór, höfundur, gítarleikari og söngvari, Einar Scheving slagverksleikari, Ari Bragi Kárason hornleikari og Ragnar Ólafsson, tónlistarmaður og upptökustjóri. MYND/AÐSEND Okkar ástkæra eiginkona, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, Þyri Dóra Sveinsdóttir snyrtisérfræðingur, sem lést á heimili sínu 11. nóvember, verður jarðsungin frá Fossvogskapellu þriðjudaginn 24. nóvember kl. 15, að viðstöddum nánustu ættingjum. Streymt verður frá athöfninni á slóð: youtu.be/PZhTKEoui7E Kjartan W. Ágústsson Kristinn Tómasson Herdís Sigurðardóttir Dóra K. Welding Hinrik Þráinsson Sveinn Helgi Kjartansson barnabörn og barnabarnabörn. Merkisatburðir 1763 Dómkirkja er vígð á Hólum í Hjaltadal sem byggð var fyrir norskt og danskt gjafafé. 1772 Tveir bæir á Látra- strönd, við austanverðan Eyjafjörð, verða fyrir snjóflóði. 1815 Annar Parísarsáttmálinn bindur endi á Napóleons- styrjaldirnar. 1945 Nürnberg-réttarhöldin hefjast í Þýskalandi. 1947 Elísabet krónprinsessa af Bretlandi giftist Filippusi, prins af Grikklandi. 1959 Samsteypustjórn Alþýðuflokks og Sjálf- stæðisflokks, kölluð Viðreisnarstjórn, tekur við völdum á Íslandi undir forystu Ólafs Thors. 1985 Stýrikerfið Win- dows 1.0 kemur út. 1992 Eldur kemur upp í Windsor-kastala og veldur miklu tjóni. 2 1 . N Ó V E M B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R34 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð TÍMAMÓT
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.