Fréttablaðið - 21.11.2020, Qupperneq 78
Til að birta andláts-, útfarar- eða þakkartilkynningar
í Fréttablaðinu þarf að senda tölvupóst á
timamot@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055 .
Ég fattaði ekkert að hún væri að
kveðja fyrir fullt og allt en síðar
frétti ég að þann dag hefði hún
gengið í sjóinn. Höfrungurinn
leitaði heim.
Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is
VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN
Útfararþjónusta
í yfir 70 ár
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Auðbrekku 1, Kópavogi síðan 1996
ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA
Símar allan sólarhringinn: 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is
Komum heim til aðstandenda og ræðum skipulag útfarar ef óskað er.
Margrét Ásta GuðjónsdóttirSverrir EinarssonKristín Ingólfsdóttir
Minningarkort á hjartaheill.is
eða í síma 552 5744
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Birte Dürke Hansen
lést í faðmi fjölskyldunnar
þriðjudaginn 17. nóvember á
hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð í Kópavogi.
Ragnar D. Hansen
Richard Hansen Sigríður Rósa Magnúsdóttir
Solvej Dürke Bloch
Michael D. Hansen Annemarie V. Hansen
Anita Roland Brian Roland
Rolf D. Hansen Manuel Parra Recuero
John D. Hansen
barnabörn og barnabarnabörn.
Stúlkan sem ég er að minnast í þessu nýútkomna lagi mínu hét Anna Benný. Hún kom val-hoppandi og veifandi höndum á móti mér þegar ég hóf störf á geðdeild Landspítalans 6.
september 1981 og spurði hvort ég væri
engillinn sinn. Þessi dagur er versti
dagur lífs míns því Rósa, þáverandi
konan mín, hafði lent í alvarlegu slysi
og lést þremur dögum síðar.“ Þannig
byrjar Magnús Þór Sigmundsson tón-
listarmaður að lýsa sögunni á bak við
lagið Höfrunga stúlkan sem er nýkomið
á veiturnar Spot ify og YouTube og hann
er höfundur að. Heldur svo áfram frá-
sögninni.
„Anna Benný var sjúklingur, ung
og falleg stúlka, og við fundum strax
sterka tengingu. Ég var síðar settur sem
aðgæslumaður hennar á deildinni. Hún
varð mikil vinkona mín, við pössuðum
svolítið hvort upp á annað. Ég fann til
með henni því henni leið oft illa – þá
sagðist hún vera höfrungur sem synti
um.
Mörgum árum seinna hringdi hún í
mig, mjög yfirveguð og þakkaði mér þá
vináttu sem ég hefði sýnt henni þegar
hún var á deildinni. Tók fram að hún liti
öðruvísi út núna, hún væri orðin feit af
lyfjum. Ég fattaði ekkert að hún væri að
kveðja fyrir fullt og allt en síðar frétti ég
að þann dag hefði hún gengið í sjóinn.
Höfrungurinn leitar heim.
Magnús kveðst hafa samið bæði lag og
texta sem hann tileinkaði þessari stúlku
árið 2017. Hann hafi leyft vini sínum
Ragnari Ólafssyni tónlistarmanni að
heyra það fyrir tveimur árum, það hafi
setið í honum og nú í sumar hafi Ragnar
vakið máls á því að vinna þetta efni og
gefa það út. „Já, alveg endilega, svaraði
ég, og við gerðum nokkrar upptökur
en það var ekki fyrr en Einar Scheving
trommuleikari slóst í hópinn sem lagið
lagðist rétt. Hann er snillingur,“ lýsir
Magnús. „Svo fékk ég f leiri hljóðfæra-
leikara, Matthías H. Mogensen bassa-
leikara, Ara Braga á Flugel-horn og minn
góða vin Jóhann Helgason og dóttur
mína Þórunni Antoníu í bakraddir.“
Allt er að mestu búið til og hljóðritað
heima hjá Magnúsi og Jennýju, konu
hans, í Hveragerði, að hans sögn. „Ég
hef verið að fjárfesta í upptökutækjum
og er sjálf bjarga hvað það varðar, svo
framarlega sem ég finn tæknimann,“
segir Magnús. „...og nú syndir Höfr-
ungastúlkan um frjáls á Spotify.“
gun@frettabladid.is
Höfrungurinn leitar heim
Söngvaskáldið Magnús Þór Sigmundsson snertir við fólki með tónum og textum.
Lagið Höfrungastúlkan sem er nýkomið út á Spotify og YouTube segir sterka sögu.
Hluti hópsins sem að útgáfu Höfrungastúlkunnar kemur: Magnús Þór, höfundur, gítarleikari og söngvari, Einar Scheving
slagverksleikari, Ari Bragi Kárason hornleikari og Ragnar Ólafsson, tónlistarmaður og upptökustjóri. MYND/AÐSEND
Okkar ástkæra eiginkona, móðir,
tengdamóðir, amma og langamma,
Þyri Dóra Sveinsdóttir
snyrtisérfræðingur,
sem lést á heimili sínu 11. nóvember,
verður jarðsungin frá Fossvogskapellu
þriðjudaginn 24. nóvember kl. 15, að
viðstöddum nánustu ættingjum. Streymt verður frá
athöfninni á slóð: youtu.be/PZhTKEoui7E
Kjartan W. Ágústsson
Kristinn Tómasson Herdís Sigurðardóttir
Dóra K. Welding Hinrik Þráinsson
Sveinn Helgi Kjartansson
barnabörn og barnabarnabörn.
Merkisatburðir
1763 Dómkirkja er vígð
á Hólum í Hjaltadal sem
byggð var fyrir norskt og
danskt gjafafé.
1772 Tveir bæir á Látra-
strönd, við austanverðan
Eyjafjörð, verða fyrir
snjóflóði.
1815 Annar Parísarsáttmálinn bindur endi á Napóleons-
styrjaldirnar.
1945 Nürnberg-réttarhöldin hefjast í Þýskalandi.
1947 Elísabet krónprinsessa af Bretlandi giftist Filippusi,
prins af Grikklandi.
1959 Samsteypustjórn
Alþýðuflokks og Sjálf-
stæðisflokks, kölluð
Viðreisnarstjórn, tekur
við völdum á Íslandi
undir forystu Ólafs
Thors.
1985 Stýrikerfið Win-
dows 1.0 kemur út.
1992 Eldur kemur upp
í Windsor-kastala og
veldur miklu tjóni.
2 1 . N Ó V E M B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R34 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT