Fréttablaðið - 21.11.2020, Page 100

Fréttablaðið - 21.11.2020, Page 100
Lífið í vikunni 15.11.20- 21.11.20 SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@ frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is VONIN UM LÍF Á HLEMMI Klaus Ortlieb lokar Hlemmi Square með sorg í hjarta og segir það per- sónuleg vonbrigði að þurfa að loka eftir sjö lífleg ár og margra mánaða COVID-hark en vonar að þetta sé ekki fyrir fullt og allt. HEFÐI ÞURFT ADHD-LYF Óttar Guðmundsson rýnir í Sturl- ungu og greinir helstu persónur og leikendur með aðferðum nútíma geðlæknisfræði, í bókinni Sturlunga geðlæknisins. Hann segir Sturlu Sighvatsson vafalaust hafa þurft á ADHD-lyfjum að halda. SÖGUR SEM BREYTA HEIMI Þorsteinn J. hefur komið víða við á löngum ferli í fjölmiðlum og veit að þar verður hjólið ekki fundið upp framar. Hann fann hins vegar nýjan takt í þáttunum Sögur sem breyta heiminum. EKKERT STOPPAR HANA Í dag kemur út myndband við lagið CLOSE með Sjönu Rut. Von er á nýrri plötu frá Sjönu, en á henni gerir hún upp kynferðisofbeldi sem hún varð fyrir í æsku. Hún heldur einnig úti hlaðvarpsþáttunum Ekki tabú. DORMA HOME sængurföt Sængurfötin frá Dorma Home eru ofin úr 300 gsm bómullarþræði sem gefur frábæra endingu, viðkomu og mýkt. Þau eru með OEKO-TEX® vottun um að þau séu framleidd án allra skaðlegra efna. Sængurfötin koma í nokkrum mismunandi mynstrum/litum og fást í 3 stærðum. ROMA svefnsófi Aðeins 74.900 kr. 25% AFSLÁTTUR HÁTÍÐAR SMÁRATORG HOLTAGARÐAR AKUREYRI ÍSAFJÖRÐUR Heima er best >> Jólin 2020 << Gerðu góð kaup i verslunum okkar eða á dorma.is og við sendum allar vörur frítt Holtagörðum, Reykjavík Smáratorgi, Kópavogi Dalsbraut 1, Akureyri Skeiði 1, Ísafirði Vel bólstraður og mjúkur click-clack svefnsófi í sterku áklæði sem fæst í 5 mildum, fallegum litum. Hægt er að lyfta höfða- eða fótahluta. Bak er tvískipt; hægt er að leggja annan eða báða hluta niður. Hæð sófa í svefnstöðu er 50 cm og svefnpláss er 120x200 cm. Fullt verð: 99.900 kr. Fullt verð 140 x 200 cm: 9.990 kr. Aðeins: 7.992 kr. Fullt verð 140 x 220 cm: 11.990 kr. Aðeins:9.592 kr. Fullt verð 200 x 200 cm: 16.990 kr. Aðeins: 13.592 kr. 20% AFSLÁTTUR HÁTÍÐAR DORMA HOME sængurföt Sólborg Guðbrandsdóttir hefur vakið athygli fyrir vasklega framgöngu sína sem baráttukona gegn kynferðisof beldi. Hún heldur úti aðganginum Fávitar á félagsmiðlinum Instagram og hefur nú gefið út bók með sama nafni. „Fávitar er samansafn af spurn- ingum sem ég hef fengið sendar til mín á samfélagsmiðlum og á fyrirlestrum síðastliðin ár. Þær fjalla meðal annars um líkamann, kynlíf, of beldi, samskipti og fjöl- breytileika og bárust mér aðallega frá ungu fólki, niður í tólf ára börn. Í Fávitum má finna svör við spurn- ingum um sjálfsfróun og annað kynlíf, þungunarrof, getnaðar- varnir, blæðingar, kynsjúkdóma og ýmislegt því tengt.“ Virkilega þakklát Bókin er myndskreytt af listamann- inum Ethorio. „Ég er virkilega þakklát fyrir alla sem komu að gerð bókarinnar og hefði ekki tekist þetta án þeirra og fjölskyldunnar minnar, sem hefur staðið þétt við bakið á mér allt ferlið og hjálpað mér gríðar- lega,“ segir Sólborg, en fjölskyldan hennar skutlaði forpöntunum af bókinni með henni um Suðurnesin og höfuðborgarsvæðið. Heimsfaraldurinn hafði ekki mikil áhrif á útgáfuna, þó að Sól- borg hafi vissulega ekki haft færi á að halda útgáfufögnuð eða fylgja bókinni eftir með upplestri. „Ég hef ekki getað hitt fólk og spjallað um bókina eða áritað ein- tök augliti til auglitis. Það er smá fúlt en við getum lítið gert í því. Í staðinn hef ég bara verið virkari á samfélagsmiðlum og átt í samskipt- um við fólk þar. Það gengur vel.“ Góðar viðtökur Viðtökurnar hafa verið frábærar að sögn Sólborgar. „Ég er búin að fá virkilega góð við- brögð og bókin hefur selst vel, bæði meðal unglinga og fullorðins fólks. Bókin er á leið í endurprentun í þessum töluðu orðum til að tryggja að hún sé til fyrir f leiri sem hafa óskað eftir henni í jólagjöf. Í síðast- liðinni viku komst hún í 5. sæti met- sölulista Eymundsson og jafnframt í 2. sæti metsölulista Forlagsins,“ segir hún. Sólborg segir skóla víðs vegar um landið nú þegar hafa fest kaup á ein- tökum og sumir þeirra stefni á að nýta hana í kennslu á unglingastigi. „Aðrir þeirra munu bjóða upp á hana á bókasöfnum skólanna. Svo hefur fjöldi félagsmiðstöðva einnig tryggt sér eintak.“ Eftirspurnin hefur ekki komið Sólborgu á óvart, enda mikil vöntun á kynfræðsluefni á íslensku. „En það hversu hratt hún hefur selst hefur gert það. Á meðan skóla- kerfið tryggir ekki kynfræðslu fyrir öll ungmenni landsins, þá þurfum við að finna aðrar leiðir til að koma upplýsingunum til skila. Ég er eigin- lega viss um að þessi bók geti kennt öllum sem lesa hana eitthvað, hvort sem það eru unglingar, foreldrar, fólk sem vinnur með börnum og unglingum eða aðrir.“ Mikil vinna Þetta hefur verið virkilega lærdóms- ríkt ferli og skemmtilegt. Sólborg hlakkar mikið til að halda upp á jólin í faðmi fjölskyld- unnar og njóta þess að slaka á eftir þessa miklu keyrslu sem fylgir útgáfunni. „Það er alveg ótrúlega skemmti- legt að gefa út bók en mikið rosalega er það mikil vinna. Rithöfundar og útgefendur eiga mikið lof skilið og það er frábært að sjá hversu margar bækur eru að koma út núna fyrir þessi jól til að stytta okkur stundir í þessu heimsástandi. En annars ætla ég bara að bíða róleg eftir bóluefni og finna mér eitthvað skemmtilegt að gera í millitíðinni.“ steingerdur@frettabladid.is Eftirspurnin er mikil Í bókinni Fávitum eftir Sólborgu Guðbrandsdóttur geta lesendur fræðst um líkamann, kynlíf, samskipti, fjölbreytileika og fleira. Bókin er til sölu um nánast allt land og bæði er hægt að kaupa hana í búðum og panta á netinu. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Á MEÐAN SKÓLA- KERFIÐ TRYGGIR EKKI KYNFRÆÐSLU FYRIR ÖLL UNGMENNI LANDSINS, ÞÁ ÞURFUM VIÐ AÐ FINNA AÐRAR LEIÐIR TIL AÐ KOMA UPPLÝS- INGUNUM TIL SKILA. 2 1 . N Ó V E M B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R56 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.