Fréttablaðið - 21.11.2020, Síða 100
Lífið í
vikunni
15.11.20-
21.11.20
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is
FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson
jonivar@frettabladid.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@
frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
VONIN UM LÍF Á HLEMMI
Klaus Ortlieb lokar Hlemmi Square
með sorg í hjarta og segir það per-
sónuleg vonbrigði að þurfa að loka
eftir sjö lífleg ár og margra mánaða
COVID-hark en vonar að þetta sé
ekki fyrir fullt og allt.
HEFÐI ÞURFT ADHD-LYF
Óttar Guðmundsson rýnir í Sturl-
ungu og greinir helstu persónur og
leikendur með aðferðum nútíma
geðlæknisfræði, í bókinni Sturlunga
geðlæknisins. Hann segir Sturlu
Sighvatsson vafalaust hafa þurft á
ADHD-lyfjum að halda.
SÖGUR SEM BREYTA HEIMI
Þorsteinn J. hefur komið víða við á
löngum ferli í fjölmiðlum og veit að
þar verður hjólið ekki fundið upp
framar. Hann fann hins vegar nýjan
takt í þáttunum Sögur sem breyta
heiminum.
EKKERT STOPPAR HANA
Í dag kemur út myndband við lagið
CLOSE með Sjönu Rut. Von er á nýrri
plötu frá Sjönu, en á henni gerir hún
upp kynferðisofbeldi sem hún varð
fyrir í æsku. Hún heldur einnig úti
hlaðvarpsþáttunum Ekki tabú.
DORMA HOME sængurföt
Sængurfötin frá Dorma Home eru ofin úr 300 gsm bómullarþræði sem
gefur frábæra endingu, viðkomu og mýkt. Þau eru með OEKO-TEX®
vottun um að þau séu framleidd án allra skaðlegra efna. Sængurfötin
koma í nokkrum mismunandi mynstrum/litum og fást í 3 stærðum.
ROMA svefnsófi
Aðeins 74.900 kr.
25%
AFSLÁTTUR
HÁTÍÐAR
SMÁRATORG HOLTAGARÐAR
AKUREYRI ÍSAFJÖRÐUR
Heima er best
>> Jólin 2020 <<
Gerðu góð kaup i verslunum okkar eða
á dorma.is og við sendum allar vörur frítt
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
Vel bólstraður og mjúkur click-clack svefnsófi í sterku áklæði sem fæst
í 5 mildum, fallegum litum. Hægt er að lyfta höfða- eða fótahluta. Bak
er tvískipt; hægt er að leggja annan eða báða hluta niður. Hæð sófa í
svefnstöðu er 50 cm og svefnpláss er 120x200 cm.
Fullt verð: 99.900 kr.
Fullt verð
140 x 200 cm: 9.990 kr.
Aðeins: 7.992 kr.
Fullt verð
140 x 220 cm: 11.990 kr.
Aðeins:9.592 kr.
Fullt verð
200 x 200 cm: 16.990 kr.
Aðeins: 13.592 kr.
20%
AFSLÁTTUR
HÁTÍÐAR
DORMA HOME sængurföt
Sólborg Guðbrandsdóttir hefur vakið athygli fyrir vasklega framgöngu sína sem baráttukona gegn kynferðisof beldi. Hún heldur úti aðganginum
Fávitar á félagsmiðlinum Instagram
og hefur nú gefið út bók með sama
nafni.
„Fávitar er samansafn af spurn-
ingum sem ég hef fengið sendar
til mín á samfélagsmiðlum og á
fyrirlestrum síðastliðin ár. Þær
fjalla meðal annars um líkamann,
kynlíf, of beldi, samskipti og fjöl-
breytileika og bárust mér aðallega
frá ungu fólki, niður í tólf ára börn.
Í Fávitum má finna svör við spurn-
ingum um sjálfsfróun og annað
kynlíf, þungunarrof, getnaðar-
varnir, blæðingar, kynsjúkdóma og
ýmislegt því tengt.“
Virkilega þakklát
Bókin er myndskreytt af listamann-
inum Ethorio.
„Ég er virkilega þakklát fyrir alla
sem komu að gerð bókarinnar og
hefði ekki tekist þetta án þeirra
og fjölskyldunnar minnar, sem
hefur staðið þétt við bakið á mér
allt ferlið og hjálpað mér gríðar-
lega,“ segir Sólborg, en fjölskyldan
hennar skutlaði forpöntunum af
bókinni með henni um Suðurnesin
og höfuðborgarsvæðið.
Heimsfaraldurinn hafði ekki
mikil áhrif á útgáfuna, þó að Sól-
borg hafi vissulega ekki haft færi
á að halda útgáfufögnuð eða fylgja
bókinni eftir með upplestri.
„Ég hef ekki getað hitt fólk og
spjallað um bókina eða áritað ein-
tök augliti til auglitis. Það er smá
fúlt en við getum lítið gert í því. Í
staðinn hef ég bara verið virkari á
samfélagsmiðlum og átt í samskipt-
um við fólk þar. Það gengur vel.“
Góðar viðtökur
Viðtökurnar hafa verið frábærar að
sögn Sólborgar.
„Ég er búin að fá virkilega góð við-
brögð og bókin hefur selst vel, bæði
meðal unglinga og fullorðins fólks.
Bókin er á leið í endurprentun í
þessum töluðu orðum til að tryggja
að hún sé til fyrir f leiri sem hafa
óskað eftir henni í jólagjöf. Í síðast-
liðinni viku komst hún í 5. sæti met-
sölulista Eymundsson og jafnframt
í 2. sæti metsölulista Forlagsins,“
segir hún.
Sólborg segir skóla víðs vegar um
landið nú þegar hafa fest kaup á ein-
tökum og sumir þeirra stefni á að
nýta hana í kennslu á unglingastigi.
„Aðrir þeirra munu bjóða upp á
hana á bókasöfnum skólanna. Svo
hefur fjöldi félagsmiðstöðva einnig
tryggt sér eintak.“
Eftirspurnin hefur ekki komið
Sólborgu á óvart, enda mikil vöntun
á kynfræðsluefni á íslensku.
„En það hversu hratt hún hefur
selst hefur gert það. Á meðan skóla-
kerfið tryggir ekki kynfræðslu fyrir
öll ungmenni landsins, þá þurfum
við að finna aðrar leiðir til að koma
upplýsingunum til skila. Ég er eigin-
lega viss um að þessi bók geti kennt
öllum sem lesa hana eitthvað, hvort
sem það eru unglingar, foreldrar,
fólk sem vinnur með börnum og
unglingum eða aðrir.“
Mikil vinna
Þetta hefur verið virkilega lærdóms-
ríkt ferli og skemmtilegt.
Sólborg hlakkar mikið til að
halda upp á jólin í faðmi fjölskyld-
unnar og njóta þess að slaka á eftir
þessa miklu keyrslu sem fylgir
útgáfunni.
„Það er alveg ótrúlega skemmti-
legt að gefa út bók en mikið rosalega
er það mikil vinna. Rithöfundar og
útgefendur eiga mikið lof skilið og
það er frábært að sjá hversu margar
bækur eru að koma út núna fyrir
þessi jól til að stytta okkur stundir í
þessu heimsástandi. En annars ætla
ég bara að bíða róleg eftir bóluefni
og finna mér eitthvað skemmtilegt
að gera í millitíðinni.“
steingerdur@frettabladid.is
Eftirspurnin er mikil
Í bókinni Fávitum eftir Sólborgu Guðbrandsdóttur geta lesendur
fræðst um líkamann, kynlíf, samskipti, fjölbreytileika og fleira.
Bókin er til sölu um nánast allt land og bæði er hægt að kaupa hana í búðum og panta á netinu. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Á MEÐAN SKÓLA-
KERFIÐ TRYGGIR EKKI
KYNFRÆÐSLU FYRIR ÖLL
UNGMENNI LANDSINS, ÞÁ
ÞURFUM VIÐ AÐ FINNA AÐRAR
LEIÐIR TIL AÐ KOMA UPPLÝS-
INGUNUM TIL SKILA.
2 1 . N Ó V E M B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R56 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð