Fjölrit RALA - 20.05.1997, Page 20
Túnrækt 1996
10
Tilraun nr. 761-95. Spretta, þroskaferill og fóðurgildi túngrasa á íslandi, Grænlandi og í
Færeyjum.
Þessi tilraun var lögð út á fjórum stöðum, Korpu, Upernaviarsuk og Narsarsuaq á Grænlandi
og á tilraunastöðinni í Kollafirði í Færeyjum sumarið 1995. Sáð var í tilraunina á Korpu þann
23. júlí eftir langvarandi þurrkakafla. Eftirfarandi tegundum og stofnum var sáð á Korpu:
Vallarfoxgrasi (Engmo og Vega), vallarsveifgrasi (Fylking og Lavang), háliðagrasi (Seida),
língresi (Leikvin), túnvingli (Leik), snarrót (Unnur) og beringspunti (Norcoast). Fjórar
síðastnefndu tegundirnar eru ekki með í hinum löndunum og teljast ekki með í hinni eiginlegu
tilraun.
Vorið 1996 litu reitimir vel út nema vallarsveifgrasið, snarrótin og beringspunturinn.
Reitir með þessum tegundum vom gisnir og fræi bætt í þá snemma vors. Uppskera var
einungis mæld á vallarfoxgrasi og háliðagrasi þetta árið. Fyrstu fjórar uppskerumælingarnar
voru klippingar, tvær 0,2 m2 rendur voru klipptar í hverjum reit. I fimmtu mælingunni voru
reitirnir slegnir með sláttuvél.
Uppskera, þe. hkg/ha
Uppskerudagur
4.6. 18.6. 2.7. 16.7. 30.7.
Seida 14,6 30,0 44,3 50,3 47,6
Vega 12,1 31,9 44,2 64,9 80,4
Engmo 8,9 27,6 47,1 72,0 82,5
Staðalfrávik 3,3 5,1 4,6 5,6 8,1
Hæð grasanna var mæld við hverja uppskerumælingu og fylgst var með þroska þeirra.
Seida byrjaði að skríða 3. júní, en vallarfoxgras 28. júní. Seida byrjaði að blómstra 14. júní en
vallarfoxgras 9. ágúst.
Allt illgresi var hreinsað úr sýnunum, en ekki var mikið af því.
Borið var á tilraunina 17. maí 80 kg N/ha, 17 kg P, 52 kg K, 9 kg S og 16 kg Ca.
Tilraun nr. 702-91. Áhrif beitar og áburðartíma á endingu vallarfoxgrass, Korpu.
Markmið tilraunarinnar var að mæla hvort vorbeit og áburðartími á vorin hefðu áhrif á
endingu vallarfoxgrass. í stað þess að beita reitina voru þeir slegnir með tilraunasláttuvél.
Þungbeittu reitirnir voru slegnir þrisvar sinnum. Fyrsti sláttutíminn var strax og komin var
nógu mikil ló á reitina til þess að sláttuvélin næði einhverju, síðan var slegið með viku
millibili. Léttbeittu reitirnir voru slegnir einu sinni, við miðsláttutímann.
Reitirnir voru fyrst meðhöndlaðir vorið 1992, en uppskeran var ekki vigtuð um
sumarið. Árin 1993 og 1994 var uppskeran mæld og vegin og þekja vallarfoxgrass metin
síðara árið. Tilrauninni er nú lokið. í ár var hvorki borið á tilraunina né hún slegin. Einungis
var metin þekja vallarfoxgrass og má líta á það sem eftirverkun meðferðar fyrri ára og um leið
aðalniðurstöðu tilraunarinnar.
Þekja vallarfoxgrass í tilrauninni var metin 16. ágúst 1994 og aftur 6. júní 1995.
Þekja vallarfoxgrass, %
Áburður: 1/3 fyrir, 2/3 eftir beit Allt eftir beit Meðaltal
‘94 ‘95 ‘94 ‘95 ‘94 ‘95
Friðað 40 43 43 53 42 48
Léttbeitt 19 35 31 40 25 38
Þungbeitt 9 23 15 25 12 24
Meðaltal 23 34 30 39