Fjölrit RALA - 20.05.1997, Qupperneq 24
Túnrækt 1996
14
Tilraun nr. 743-95. Samanburður á yrkjum af háliðagrasi og skriðliðagrasi og bekk-
manníu frá Magadan, Korpu.
Borið á 118 kg N/ha í Græði 8 7.5. og 60 kg N/ha í Kjarna 28.6. Alls 178 kg N/ha.
Uppskera þe. hkg/ha Þekja
28.6. 28.8. Alls 14.5.
1. Seida Pla. 50,9 29,0 79,9 6,7
2. Lipex Lip. 63,9 34,2 98,1 6,7
3. 4042 Bar. 46,3 23,4 69,7 4,7
4. Skriðliðagras Magadan 62,0 29,5 91,5 6,3
Meðaltal 55,8 29,0 84,8 6,1
Staðalskekkja mismunarins 3,00 0,51 3,14 0,47
Við mat á þekju (mest 10) var sleppt vesturendunum á vestari reitaröðinni, sem var illa gróinn,
um 2m. í tilrauninni var einnig bekkmannía frá Magadan, en lítið lifði í reitunum. Þó virtist
meira lifandi fyrst um vorið, en líklegt er að frost hafi lyft veikburða plöntum í apríl og þær
drepist.
Klippt voru sýni til rannsókna á fóðurgildi 7.6., 18.6. og 27.6. I seinni skiptin voru
einnig klippt sýni af bekkmanníu.
Við seinni slátt, 28.8., var skriðliðagras verulega farið að gulna og Seida nokkuð.
Tilraun nr. 746-95. Samanburður á norskum yrkjum af ensku rýgresi, Korpu.
Uppskera þe. hkg/ha Þekja Skrið
19.6. 23.7. 30.8. Alls 14.5. 19.6.
Raigt2 57,1 24,1 25,6 106,8 5,7 3,3
Raigt5 59,4 22,7 25,4 107,5 5,3 4,0
Raigtó 54,0 24,3 24,9 102,3 3,7 5,3
Raigt7 53,6 22,9 22,9 99,4 4,7 1,7
Meðaltal 56,0 23,5 23,5 104,0 4,8 3,6
Staðalsk. mism. 2,98 1,42 1,19 3,48 0,41 0,45
Þessi tilraun er við hliðina á tilraun nr. 740-95. Tilraunirnar fengu sömu meðferð og sömu
einkunnir voru gefnar þótt þær komi ekki allar fram. Mismunandi þekja um vorið er vegna
mismunandi spírunar og þekju árið áður. Annað gras en rýgresi var einkum í reitum af Raigtó,
en það spíraði minnst.