Fjölrit RALA - 20.05.1997, Side 25

Fjölrit RALA - 20.05.1997, Side 25
15 Túnrækt 1996 Prófun yrkja á markaði (132-9317) Árið 1995 hófust tilraunir með prófun yrkja af ensku (fjölæru) rýgresi, hávingli og hvítsmára eftir óskum yrkishafa. Sáð var á tveimur stöðum, Korpu og Sámsstöðum, 1995. Árið 1996 var samkvæmt áætlun bætt við tilraunum á tveimur stöðum, Þorvaldseyri og Möðruvöllum. Enn fremur var á báðum stöðum sáð í tilraun nr. 725-96, NOR og beringspuntur. Loks var bætt við einni tilraun með hvítsmára á Korpu umfram áætlun og eru í henni þrjú yrki sem ekki eru í öðrum tilraunum. Samreitir eru 3 í öllum þessum tilraunum. Þorvaldseyri Tilraunin er á landi þar sem fóðurkál hefur verið ræktað í nokkur ár. Undir er framburður og sums staðar það grófur að upp koma steinar. Byggi var sáð í stykkið og borið á um leið. Sáð- magn var 170 kg/ha. Á eftir var sáð til tilraunanna. Rýgresi og hávingli var sáð með vél 20. apríl og hvítsmára og vallarfoxgrasi var sáð með höndum 30. apríl. Sáðmagn var svipað og árið áður, nema ekki var tekið tillit til lakari spírunar á Raigt5. Þegar kom fram á sumar kom í ljós að byggið þreifst ekki á stykkinu. Jarðvegssýni var tekið í júlí og reyndist pH vera 4,4. Kalkað var með um 500 kg/ha af dólómítkalki í ágúst. Byggið og grasið var svo slegið í byrjun september. Tilraunirnar voru metnar 30. sept. og voru þær taldar vera ýmist viðunandi eða í góðu lagi. Rýgresið er nógu þétt til að halda öðrum gróðri niðri. Þó eru nokkrar skellur í laut. Hávingullinn er ekki eins þéttur og nokkuð ber á öðrum gróðri. M.a. er nokkuð um njóla í flestum reitum. Möðruvöllum Tilraunirnar eru í Fjallastykki, sem er gamall kartöflugarður og því auðugt af illgresi, efst í túninu. Hinn 23. maí var sáð, borið á og valtað. Borið var á með höndum og var sáðmagn hátt í tvöfalt miðað við tilraunirnar á hinum stöðunum. Áburður var 30 kg N/ha í Græði la. Áður var borin á vatnsblönduð mykja. Miðað var við að alls væru borin á um 80 kg N/ha. Arfi var sleginn í ágúst og var hann þá mikill í öllu stykkinu. Hinn 9. sept. var stykkið slegið aftur. Víðast var arfi ríkjandi, en einnig var rýgresi og jafnvel hávingull svo mikið sprottið að það þurfti að slá. Sprettan var hins vegar mjög misjöfn. Getur það verið bæði vegna niturs í jarðvegi og jarðvegsraka, en þarna er hætt við þurrki. 20. okt. Þekja rýgresis metin í tilraun nr. 740-96. Hún var að meðaltali 72%. Líklegt er að þekjan sé nægileg á flestum reitum. Þekja hávinguls var metin í tilraun nr. 741-96. Hún var að meðaltali 36% og tvísýnt er að þessa tilraun megi nýta til uppskerumælinga. Ekki var unnt að meta einstaka reiti í hinum tilraununum, en hvítsmára er alls staðar að finna í tilraun nr. 742-96 svo að sú tilraun virðist í lagi.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fjölrit RALA

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjölrit RALA
https://timarit.is/publication/1497

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.