Fjölrit RALA - 20.05.1997, Qupperneq 39
29
Jarðvegslíf 1996
2. Áhrif ræktunar á smádýralífið.
Sumarið 1996 var hafin söfnun smádýra á sex spildum á Möðruvöllum. Sýnum var safnað af
þremur túnum og hliðstæðum úthaga. Sex gildrum, endurtekningum merktum A-F, var komið
fyrir á hverri spildu. Spildurnar voru þessar:
Spilda nr. Heiti spildu Nýting Jarðvegur
1 Hólmi Tún Sandkenndur
2 Þýfðaspilda Beitiland Sandkenndur
3 Miðmýri Tún Mýrkenndur
4 Gmndarmýri Beitiland Mýrkenndur
5 Slættir Tún Mókenndur
6 Beitarhúsapartur Beitiland Mókenndur
Þann 30. maí voru teknar myndir af tilraunablettunum sex og var þá gerð eftirfarandi
vettvangslýsing:
Spiida 1, Hólmi. Þetta er gamalt flæðiengi sem hefur verið heyjað mjög lengi og sennilega
notað sem tún í meira en 30 ár. Ovíst er hvort það hefur nokkurn tíma verið unnið og það
hefur aldrei fengið búfjáráburð. Ríkjandi gróður er snarrót, háliðagras, vallarsveifgras og
túnvingull. Landið er flatt með náttúrulegum skorningum, og náði tilraunasvæðið úr botni eins
skorningsins og upp á flatann. Gildra A var í lægð þar sem snarrót ríkti, en gildra F stóð hæst
og þar var háliðagras ríkjandi.
Spilda 2, Þýfðaspilda er stórþýft land sem aldrei hefur fengið áburð en hefur stundum verið
beitt. Þúfurnar eru snarrótarþúfur, allt að 40 sm háar. Landið er mjög sinuríkt og á milli
þúfnanna er iíngresi og svolítið af vallarsveifgrasi og túnvingli, og umfeðmingur var að koma
upp. Landið er stórþýft en flatt og eru gildrur A, B og C á milli þúfna, gildra D uppi á
þúfnakolli og E og F utan í þúfum.
Spilda 3, Miðmýri er þurrkuð mýri sem líklega var fyrst ræktuð á milli 1950 og 1960 en síðast
endurunnin upp úr 1980. Túninu hallar örlítið til austurs. Það hefur alltaf fengið tilbúinn áburð
og oft einnig búfjáráburð, og á því er talsverð sina frá árinu áður. Gróður er aðallega vallar-
sveifgras, vallarfoxgras og snarrót, en í kallægð er varpasveifgras, haugarfi og blóðarfi. Gildra
A er í kalinni lægð, B á mörkum hins kalna og gróna lands. Aðrar eru í graslendi og við gildru
F er vallarfoxgras ríkjandi.
Spilda 4, Grundarmýri er um 100 metra breið ræma á milli skurða, sem grafnir voru fyrir
1960. Sennilega hefur uppgrefti úr skurðunum verið dreift yfir spilduna. Hún er flöt en
stórþýfð og aðallega vaxin snarrót, vallarsveifgrasi og língresi. Spildan hefur aldrei fengið
tilbúinn áburð, en oft verið beitt. Landið er flatt og gildrur A, C og E eru í lægðum á milli
þúfna, B á smáhæð á milli þúfna, D ofan á þúfu og F utan í þúfu.
Spilda 5, Slættir er ævagamalt tún sem fær tilbúinn áburð árlega og mjög oft búfjáráburð.
Aðalgróðurinn er háliðagras, snarrót, vallarfoxgras, vallarsveifgras og túnvingull. í kallægð er
varpasveifgras, haugarfi, njóli, túnfífill og blóðarfi. Tilraunalandinu hallar nokkuð til austurs,
en gildrurnar ná úr kallægð og upp á flata. Gildra A er í lægðinni, B á mörkum kals og gróins
lands, C í snarrót, D í háliðagrasi, E í vallar-sveifgrasi og F, sem stendur hæst, er í túnvingli.
Spilda 6, Beitarhúsapartur, er beitiland sem alltaf er mikið beitt og þar er allmikill skítur frá
beitargripum. Þó er nær aldrei borinn á búfjáráburður. Aðalgróðurinn er snarrót, língresi og
háliðagras, og þarna er talsverð sina frá fyrra ári. Spildan er slétt og hallar til austurs. Gildra A
er neðst og er á flata, gildra B í háliðagrasbrúski, C í sinuþófa, D utan í lítilli snarrótarþúfu, E
ofan á lítilli snarrótarþúfu og F í snarrótar- og háliðagrasbrúski.