Fjölrit RALA - 20.05.1997, Page 63
53
Korn 1996
Níturáburður á bygg
í hverri tilraun var áburðarliður, þar sem staðalyrkin Mari og Arve fengu aukalega sem
svarar 30 kg N/ha í Kjarna. Samanburður á áburðariiðum sýndi, hvernig tekist hafði til, þegar
áburður var áætlaður á einstakar tilraunir. I töflunni er meðaltal staðalyrkja. Þroskaeinkunn er
eins og fyrr reiknuð sem meðaltal af þúsundkornaþunga, rúmþyngd og hlutfalli korns af heild.
Síðastnefnda mælingin var einungis gerð á Mari því að Arve hafði víða misst korn í veðrum.
Hæð á við Mari og er mæld á kornbindi. Um fjölda samreita og staðalfrávik vísast í töflur hér
á undan.
Tilraununum er hér raðað upp eftir því hvernig kornið brást við auknum nituráburði. Efst
eru tílraunir þar sem staðalskammtur var allsendis ónógur. Neðstar í töflunni eru svo
tilraunimar þar sem áburður var óhóflega mikill. Langflestar tilraunimar hafa þó fengið áburð
við hæfi. Þá bætir viðbótaráburður lítillega við uppskeruna, en dregur úr þroska.
Tilraunastaður Staðal- Uppsk. þe. hkg/ha Korn af heild , % Hæð,
áburður +30N Staðal Auki +30N Staðal Auki sm
Árnanesi 70N 26,6 18,7 8,9 50,3 49,2 1,1 58
Ásgarði 50N 36,7 29,9 6,8 45,5 44,5 1,0 72
Skógum 40N 30,1 23,5 6,6 45,8 46,8 -1,0 47
Korpu 2 90N 36,8 33,2 3,6 43,9 44,3 -0,4 67
Ökmrn 100N 25,4 22,6 2,8 47,2 47,4 -0,2 49
Voðmúlastöðum 65N 18,9 15,6 3,3 42,1 42,9 -0,8 65
Miðgerði 105N 47,5 45,3 2,2 52,4 52,6 -0,2 73
Ósi 100N 13,3 11,8 1,5 43,5 43,1 0,2 64
E-Hrauni 100N 22,6 21,1 1,5 44,7 44,6 0,1 55
Korpu 1 60N 33,5 31,5 2,0 37,4 37,9 -0,5 63
Birtingaholti 100N 24,1 21,4 2,7 43,8 45,2 -1,4 76
Lágafelli 30N 18,8 17,1 1,7 33,8 34,7 -0,9 65
Þorvaldseyri 70N 27,8 25,2 2,6 43,6 45,0 -1,4 70
N-Hundadal 60N 38,8 37,4 1,4 43,8 44,5 -0,7 66
Páfastöðum 30N 31,1 29,0 2,1 38,9 40,3 -1,4 69
V-Reyni 40N 30,3 28,6 1,7 41,5 43,4 -1,9 66
Selparti 100N 20,4 19,2 1,2 42,6 44,2 -1,6 59
St-Ásgeirsá 50N 7,4 7,1 0,3 20,6 21,4 -0,8 67
Vindheimum 100N 39,9 40,6 -0,7 50,6 50,6 0,0 55
Húsatóftum 70N 24,0 25,6 -1,6 38,2 39,8 -1,6 78
Leirá 40N 28,3 33,5 -5,2 36,0 37,4 -1,4 64
Minna má á þumalfingursreglu, sem segir, að mælist Mari lægra en 65 sm á velli (60 sm
mælt á bindi eins og hér er gert), mætti áburður vera meiri. Lítið virðist hafa verið að marka
þá viðmiðun í ár og annað ráðið hæð korns en áburður, til dæmis aðgangur að vatni.
Tilraunir nr. 749-96 og 750-96. Áburður á bygg.
Fjórar tilraunir voru gerðar í einu lagi á Korpu. Ein tilraun að auki var gerð á sandi austur í
Selparti í Flóa og var það dreifingartímatilraun og hliðstæða einnar tilraunarinnar á Korpu.
Niðurstöður eru gefnar upp sem kornuppskera og þroskaeinkunn. Það síðarnefnda er nýmæli
og er meðaltal þúsundkornaþunga í grömmum, rúmþyngdar í grömmum á 100 ml og
hundraðshluta korns af heild. Frá Selparti vantar síðasta atriðið af þessu þrennu og þroska-
einkunnin er ófullkomin en birt samt.