Fjölrit RALA - 30.11.2003, Qupperneq 14

Fjölrit RALA - 30.11.2003, Qupperneq 14
Bútjáráburður 2002 6 Áhrif niðurfellingar á búfjáráburði á efnanýtingu, ísáðar fræplöntur og smádýralíf (161-9505) Verkefnið er unnið í samvinnu Búrekstrarsviðs Rala á Möðruvöllum, Bútæknisviðs Rala á Hvanneyri, Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri og fjögurra bænda. Tilraunir voru lagðar út vorið 2002 á fjórum bæjum, Möðruvöllum í Hörgárdal, Keldudal í Skagafírði, Húsavík á Ströndum og Neðra-Hálsi í Kjós. Hugmyndin var að bera saman yfirbreiðslu og niðurfellingu (idreifmgu) búfjáráburðar að vori og hausti og athuga hvemig grasfiræ íblandað í búfjár- áburðinn spíraði. Vatn var notað til samanburðar við búfjáráburðmn, Uppskera var mæld á öllum vordreifðum reitum og smádýrum safnað í völdum reitum. Búfjáráburður var felldur niður á öllum fjórum stöðunum og fyrri sláttur og seinni sláttur sleginn (nema á Neðra-Hálsi). í Keldudal og á Húsavík var svo búfjáráburður felldur niður að hausti og verður einungis þeim tveimur tilraunum haldið áffam. Úr dagbók Möðruvellir Tilraunin er á Prestsspildu nr. 6 (Melar) þar sem jarðvegur er þurr og moldarblendinn ofan á malarruðningi. Túnið er ffiðað fyrir beit. Tafir urðu á vorídreifmgunni vegna bilana og grasið var orðið þverhandarhátt þegar tilraunin var lögð út. Tækin sporaðu því mikið. Dreifingardaginn var lofthiti um 20 °C í heiðríkju. ídreifingin tókst mjög vel. Blandað var sem svarar um 700 g af Öddu vallarfoxgrasffæi í rúmmetra af mykju eða vatni. Engirm tilbúinn áburður var borinn á um vorið. Borinn var á tilbúinn áburður eftir fyrsta slátt. Vegna köggla í áburðinum varð dreifingin greinilega mjög ójöfn með þeim afleiðingum að uppskeran í seinni slætti er marklaus. í ffamhaldinu var ákveðið að leggja af þessa tilraun. Neðri-Háls Tilraunin er á ffamræstri áfoksmýri. Túnið var orðið algrænt og einstaka vallarsveifgras skriðið, þegar tilraunin var lögð út í nokkuð hlýju og björtu veðri. Túnið er ffiðað fyrir beit. í mykjuna var blandað um 700 g af Öddu vallarfoxgrasffæi í rúmmetra af mykju. Túnið fékk einnig fiskimjöl sem áburð en um magn er ekki vitað. Vegna aflleysis dráttarvélar náðist ekki að þrýsta áburðinum ofan í svörðinn þannig að einungis var um yfirbreiðslu að ræða. Þá var ekki heldur hægt að koma við vatnsdreifmgu. Því var ákveðið að leggja af þessa tilraun. Keldudalur Tilraunin er á ffamræstri mýri. Tún ekki orðið algrænt þegar tilraunin var lögð út í hlýju og björtu veðri. Túnið er vorbeitt og slegið en eftir vorídreifinguna var engin beit. ídreifingin gekk mjög vel, bæði um vorið og haustið, en afl dráttarvélar hefði mátt vera meira. Mykjan þrýstist niður í 3-4 sm dýpt. Um haustið var ffostskán á jörðu og þurrt. Mykjan var í bæði skiptin þynnt geldneytamykja. Um vorið var borinn á Græðir 9 sem svarar 110 kg N/ha. Blandað var sem svarar um 700 g af Öddu vallarfoxgrasffæi í rúmmetra af mykju eða vatni bæði við vor og haustdreiflnguna. Við haustdreifinguna var leitað eftir vallarfoxgrasplöntum í rásum, sem sáð var í um vorið, en engar fundust. Húsavík Tilraunin er á móatúni þar sem grunnt er á mel. Vatnsþynnt sauðatað var fellt niður vorið 2001 og sáust þess enn merki um vorið þegar tilraunin var lögð út í björtu og hlýju veðri. Túnið var ffiðað fýrir beit. Blandað var sem svarar um 900 g af Öddu vallarfoxgrasfræi í rúmmetra af mykju eða vatni um vorið en 700 g um haustið. Einn reitur (nr. 29) fékk meiri mykju en aðrir reitir um vorið vegna þess að þar var ekið aðeins hægar í gegn eða 3,6 km/t í stað 4,6 km/t eða 1,27 sinnum meira. Að öðru leyti gekk niðurfellingin mjög vel. Afl
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Fjölrit RALA

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjölrit RALA
https://timarit.is/publication/1497

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.