Rit Búvísindadeildar - 15.06.1996, Qupperneq 11
Lömb bændanna tveggja voru skoðuð og vigtuð í upphafi og síðan stiguð
og vigtuð fyrir slátrun, þá eingöngu þau iömb sem ákveðið var að senda tii
slátrunar. Lömb hinna voru einnig vigtuð og stiguð fyrir slátrun. Þau iömb sem
ekki töldust sláturhæf voru aiin áfram. Hrútum var ekki slátrað fyrir jól og þeir
hrútar geltir sem áætlað var að slátra eftir áramót. Bændur sáu sjálflr um að flytja
lömbin í sláturhús.
Stigun lamba á fœti og ígálga
Þau lömb sem voru taiin innleggshæf voru stiguð fyrir slátrun og síðan stiguð og
mæld í gálga.
Stigun á fæti:
Hold á baki - lömbum voru gefin stig á bilinu 1-5 (1, 1+, 2~....4+, 5~, 5, alls
13 stig)
Hold í lærum og mölum - gefin stig á bilinu 1-5 (alls 13 stig)
Fita á síðu - metin með átaki á svipuðum stað og fíta er mæld á skrokkum í
sláturhúsi (J-mál), fituþykktin metin í mm líkt og gert er við mælingu J-
máls.
Fengju lömb iægri holdastig en 3 ' voru þau ekki send til slátrunar, né heldur ef
fitustigun á síðu var yfir 11 mm eða undir 5 mm.
Stigun og mæling f gálga:
Holdfylling í baki og á herðum - gefin stig á bilinu 1-5 (alls 13 stig)
Holdfylling í lærum og á mölum - gefin stig á bilinu 1-5 (alls 13 stig)
Fituþykkt á síðu (J-mál) - mæld í mm 11 sm frá hryggsúlu við 12. rif
Auk þess var lífþungi, fallþungi og flokkun skráð. Nokkur lambanna voru
ómmæld en þau gögn reyndust of lítil til að eitthvert gagn mætti af þeim hafa.
Stigun var breytt lítilsháttar frá því sem var hjá Sveini Hallgrímssyni. Stigun fyrir
fitu á síðu var breytt yfír í millimetra í stað stiga á bilinu 1 - 5 og gefin voru
sameiginleg síig fyrú' læri og malir á fæti í stað læra eingöngu samkvæmt
ábendingum frá Sveini. Vert er að taka fram að fyrir frekari útreikninga var
stigum (1-5) breytt yflr í tölur, (1 varð að 1, 1+ að 2,...og 5 að 13).
3