Rit Búvísindadeildar - 10.07.1996, Blaðsíða 9
INNGANGUR
Fyrsta gróðurhúsið á íslandi var byggt á Sauðárkróki árið 1896, af dönskum
kaupmanni, sem hét Carl Knudsen (Kristmundur Bjamason, 1969). Hann hitaði
húsið upp með hrossataði, sem hann lét gerjast. í húsinu ræktaði Knudsen
matjurtir til heimilis og hóf þar með, fyrstur manna, heimilisgarðrækt í gróðurhúsi
á íslandi.
Einar I. Siggeirsson (1957) skrifaði um notkun plastefna við garðyrkju, en
þá mun plast enn hafa verið lítið notað til slíkra hluta á íslandi. Þetta er líklega
ein fyrsta grein, sem skrifuð hefur verið á íslensku um þessa notkun á plasti.
Sturla Friðriksson (1968) greindi frá ræktunartilraunum þar sem hann notaði
plast. Upp úr því fer notkun á plasti í garðyrkju vaxandi.
Vorið 1982 var reist gróðurhús úr plasti á Hvanneyri, með það fyrir augum
að gera athuganir á ræktun matjurta. Hús þetta er 40 m^ að stærð. Árið 1984
var annað plastgróðurhús byggt, sem er 72 að stærð. Óli Valur Hansson
(1985) lýsir vel gerð plastgróðurhúsa, eins og þau eru á Hvanneyri. Seinna húsið
hefur reynst óhentugt fyrir rannsóknir, vegna þess hve stórt það er. Uppskera í
miðju húsinu er að öðru jöfnu meiri en uppskeran út við dyrnar, líklega vegna
hitamismunar. Lengi vel var ekki til upphitað gróðurhús á Hvanneyri. Á 100 ára
afmæli skólans árið 1989, var tekið í notkun nýtt og gott upphitað gróðurhús. Það
gjörbreytti m.a. aðstæðum til uppeldis á plöntum. Áður en upphitaða gróðurhúsið
var byggt ólu eftirtaldir aðilar upp plöntur fyrir skólann: Garðyrkjuskóli ríkisins,
Rannsóknarstofnun landbúnaðarins og Tómas M. Ludwig garðyrkjumaður, Klöpp
í Reykholtsdal. Þessir aðilar eiga þakkir skildar fyrir hjálpina. Einnig voru aldar
upp plöntur við Ijós á fjósloftinu á Hvanneyri, við erfiðar aðstæður.
Öllum þeim tilraunum og athuganum, sem getið er um í þessu riti, hefur
verið lýst í árlegum skýrslum bændaskólans á Hvanneyri (Fjölrit Bændaskólans á
Hvanneyri Nr. 59, 60 og 64, ásamt Ritum Búvísindadeildar nr. 2, 3, 5, 9 og 12).
Þess vegna er hér ekki skýrt frá öllum upplýsingum um hveija athugun eða
tilraun, t.d. um áburð, reitastærð o.fl.
í plastgróðurhúsunum á Hvanneyri hafa fáar tilraunir verið gerðar með
samreitum. Hins vegar hefur mikið verið gert af athugunum, þar sem hver
tilraunameðhöndlun er aðeins á einum reit. Þetta hefur orðið til þess að unnt
hefur verið að reyna margar tegundir og afbrigði matjurta, en niðurstöðumar em
ekki nákvæmar. Á grundvelli athugananna er þó hægt að benda á þær matjurtir
með nokkurri vissu, sem unnt er að rækta í köldum plastgróðurhúsum.
Köld plastgróðurhús em mest notuð af fólki, sem ræktar matjurtir til
heimilisnota. Ný gróðurhús úr plastdúk eru ekki dýr miðað við hús úr gleri eða
hörðu plasti. Hins vegar endist plastið utan á þeim venjulega aðeins 2-5 ár,
þannig að rekstrarkostnaður er töluverður. Plast er aðallega búið til úr olíu eða
jarðgasi. Ef þessi hráefni hækka í verði, eins og búast má við, hækkar verð á
plasti og þar með verður dýrara að nota plast eða trefjadúk við ræktun.
3