Rit Búvísindadeildar - 10.07.1996, Blaðsíða 38

Rit Búvísindadeildar - 10.07.1996, Blaðsíða 38
Blaðsalat Eftir þeim athugunum á blaðsalati, sem að framan er greint frá, má búast við að fá uppskeru af salati 40-60 dögum eftir að því er sáð í óupphitað plastgróðurhús. Ef salatplönturnar eru forræktaðar er unnt að byrja uppskeruna fyrr. Garðar R. Árnason (1994) segir: "Blaðsalat er samheiti fyrir salattegundir, sem mynda ekki neina eða mjög lausvafna hausa. Til eru margar gerðir af blaðsalati með ljósgræn, dökkgræn eða rauðlituð blöð og lögun blaðanna getur verið mjög breytileg, allt frá heilrendum blöðurn yfir í mjög miklar blaðskerð- ingar." Þó flestum beri saman um að bragðgæði blaðsalats séu ekki eins mikil og höfuðsalats, þá hefur ræktun þess aukist að undanförnu, m.a. vegna þess hvað blöðin eru falleg. Garðar bendir á að: "Einn helsti ókostur blaðsalats er að það þolir illa flutninga og geymslu, því að blöðin slappast fljótt eftir skurð. Víða erlendis hafa rauð afbrigði náð miklum vinsældum og má merkja aukna eftirspum eftir slíku salati hér á landi." Blaðsalat, sem ræktað er í heimilisgörðum, má nota með því að tína blöðin af salatinu jafnóðum og þau þroskast. Ef blaðsalat. á að fara á markað verður að uppskera alla blaðhvirfinguna. Raunar skipta menn gjaman blaðsalati í tvo flokka. Annars vegar skurðsalat, sem myndar þéttar blaðhvirfingar, sem auðveldast er að skera upp sem heild. Hins vegar er tínslusalat, "plokksalat" þar sem blöðin sitja þannig að auðvelt er að tína þau smám saman af stönglinum, þegar þau hafa náð hæfilegri stærð. Á gmndvelli þeirra athuganna, sem hér um ræðir, er mjög örðugt að benda á afbrigði af blaðsalati, sem er öðmm betra. Amerískt plukksalat, Australische Gel og Carthgon eru allt falleg og sæmilega bragðgóð afbrigði. Bragðgæði Red Rebosa vom talin minni en hinna afbriganna, en plöntumar vom lítið hrjáðar af kvillum. Höfuðsalat í þeim athugunum, sem gerðar vom á Hvanneyri, bar töluvert á blaðrandarvisnun í salatinu. Þessi sjúkdómur er lífeðlisfræðilegur. Oft kemur sjúkdómurinn fyrst fram í yngstu blöðunum, í miðju höfðinu. í blaðröndunum er lítið af kalsíum, sem þaxf þó ekki að stafa af því að of lítið sé af kalsíum í jarðveginum. Það hefur jafnvel dugað að sprauta kalki daglega á yngstu blöðin. Rannsóknir benda til, að það séu venjulega ýmsir aðrir þættir en kalsíumskoitur, sern valda sjúkdómnum, eða víxlverkanir margra þátta. Rosenfeld, H.J. og Rosenfeld, I.S. (1994) segja, að nýjar rannsóknir sýni, að það sem hafi áhrif á blaðrandaskemmdir sé, mikil birta, íangur birtutími, hátt hitastig, mikill loftraki og mikið magn af koltvísýringi í loftinu. Allir þessir þættir, nema e.t.v. sá síðasti, geta haft áhrif í plastgróður- húsum. Áður nefndir höfundar telja, að hiti að deginum ætti ekki að fara yfir 20°C og næturhiti ætti að vera um 15°C. Nýjar rannsóknir, sem gerðar voru með íssalat að Ási í Noregi (Balvoll, G. 1995), bentu til að hin mikla birta um mitt sumarið valdi fremur blaðranndaskemmdum en hátt hitastig. í norsku tilraununum hafði það ekki mikil álirif á blaðranndaskemmdimar hvort íssalatið var ræktað í óupphituð plasthúsi, sem var lokað á næturnar, plasthús sem var opið á nætumar 32
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62

x

Rit Búvísindadeildar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Rit Búvísindadeildar
https://timarit.is/publication/1498

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.