Rit Búvísindadeildar - 10.07.1996, Síða 16
Upphaf uppskerutímans er miðað við það ár og þann dag, sem uppskera
hófst fyrst þau ár, sem stofninn var í ræktun. Sama á við um lok uppskerutímans.
Það hefur tekist nokkuð vel að rækta asíumar í óupphituðu plastgróðurhúsi
á Hvanneyri. Plönturnar vom aldar upp í heitu gróðurhúsi að vorinu og vom
uppeldisdagar að meðaltali 39. Plönturnar urðu nokkmm sinnum fyrir áföllum
vegna vorkulda, þegar þær vom nýkomnar í plasthúsið. Árið 1983 var fyrst reynt
að rækta asíur f óupphituðu gróðurhúsi á Hvanneyri, en flestar plöntumar dóu af
völdum frosts, nætumar 1.-3. júní. Vorið vom asfur gróðursettar út í gróðurhús
21. maí. Tíu sólahringum seinna fór næturhitinn niður í 2°C. Þá dóu allar
plöntumar af Nanet. Plöntur af tveimur öðmm afbrigðum, Carola og RS 81054,
biðu mikinn hnekki af kuldanum, en lifðu af og gáfu dálitla uppskeru. Vorið 1985
vom asíumar gróðursettar 7. júní og þá fór hitastigið niður í 1°C þann 13. júní.
Asíur af afbrigðunum Carola og Wilma lifðu af, en urðu fyrir vemlegu áfalli.
Þegar kuldi skemmir asíuplöntur, hvítna blöðin upp.
Ef dregin er saman sú reynsla, sem fengist hefur af áhrifum vorkulda á
uppskeru af asíum þau 12 ár, sem athuganir hafa staðið, er hún þessi:
3 Asíur vom gróðursettar fimm sinnum í óupphitað gróðurhús 27.-29. maí og
urðu fjómm sinnum fyrir áberandi áföllum af völdum kulda.
O Átta sinnum vom asíur gróðursettar 1.-14. júní. Þær urðu tvisvar fyrir
áberandi áföllum vegna kulda.
2.13 Þrúgugúrkur
9. tafla. Stofnar og uppskera af þrúgugúrkum.
Table 9. Varieties and yields ofgrape cucumbers.
Stofn Ár í athugunum Uppskera, kg/rn^, Uppskera af Fjöldi gúrkna af
meðaltal plöntu, kg plöntu
Variety Years of Mean Yield Weight of Numbers of
observations kg/tn2 a plant, kg cucumbers
on plant
Levo 1989-1990 4,75 3,69 39
Rhinsk 1989 2,65 2,19 29
Rhinsk er gamalt afbrigði, sem ekki er líklegt að verði notað hér á landi.
Hins vegar er Levo tiltölulega nýtt einkynja afbrigði (Aamlid, K. 1987). Þau tvö
ár, sem þrúgugúrkur vom reyndar, hófst uppskera á Levo þrúgugúrkum 20. júlí og
9. ágúst. Það var 14 og 17 dögum seinna en uppskera hófst á Wilma asíum.
Hugsanlega hefði átt að uppskera þrúgugúrkumar nokkrnm dögum fyrr. Árið
1989 var kalt vor, þá virtust þrúgugúrkumar þola kulda betur en asíumar og
Minibar gróðurhúsagúrkur.
2.2 Mergja (grasker) (Cucurpita pepo)
Áður hefur verið gerð grein fyrir athugunum með mergju á Hvanneyri (Magnús
Óskarsson, 1989). í 8 töflu eru áður birtar niðurstöður ásamt nýrri mælingum.
10