Rit Búvísindadeildar - 10.07.1996, Síða 33

Rit Búvísindadeildar - 10.07.1996, Síða 33
Plöntur af hrokkinmintum hafa stundum lifað af veturinn á bersvæði á Hvanneyri, þegar búið var að taka plastið af húsunum. Piparmintan lifði ekki af veturinn. Frá 1989-1995 voru plöntumar að meðaltali aldar upp í heitu gróðurhúsi í 52 daga. Uppskera stóð venjulega frá mánaðarmótunuin júní/júlí og fram í byrjun september. 5.9 Rósmarín (Rosmarinus officinalis) Árin 1989 og 1994 var reynt að rækta rósmarín í köldu plastgróðurhúsi. Fyrra árið var fræið frá Mj-frö. Eftir uppeldi í 52 daga var plöntunum plantað í húsið 25. maí. Uppskeran var nánast engin. Seinna árið var fræið frá Sper. Þá voru plöntumar hafðar í 93 daga í uppeldi í upphituðu gróðurhúsi. Uppskeran var mjög léleg, 20 g af plöntu. 5.10 Salvía (Salvía officinalis) Árið 1982 vom gróðursettar nokkrar plöntur af salvíu frá Garðyrkjuskóla ríkisins. Uppskeran var ágæt en plönturnar dóu um veturinn (Magnús Óskarsson, 1989). Árin 1990, 1992 og 1994 var aftur reynt að rækta salvíu í óupphituðu plastliúsi og 1995 vom plöntur, sem lifað höfðu frá árinu áður, uppskornar og var uppskeran allgóð. Uppskeran var lítil 1990, 1992 og 1994, árin sem plöntumar uxu upp af fræjum,79 g af plöntu eða 0,33 kg/m^. 5.11 Sígóð (Fennika) (Foeniculumvulgaris) Árið 1993 var sígóð ræktuð í óupphitaða plasthúsinu. Plönturnar náðu allgóðum þroska en blómstmðu snemma sumars. 5.12 Steinselja (Pétursselja eða persilla) (Petroselinum crispum) Árin 1988-1989 var ræktuð steinselja með fremur sléttum blöðum (ítölsk steinselja). Ræktunin tókst vel. Uppskera af plöntu var 430 g. Árin 1991-1993 var ræktuð steinselja, sem var með hrokkin blöð. Uppskeran var 1,67 kg/m.2. Uppeldi í heitu gróðurhúsi tók 52 daga að meðaltali og var það sennilega óþarflega langur tími. Uppskera fór fram á tímabilinu 23. júní til 10. ágúst. 27

x

Rit Búvísindadeildar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rit Búvísindadeildar
https://timarit.is/publication/1498

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.