Rit Búvísindadeildar - 20.04.1998, Síða 58
4. tafla. Áhrif umhverfishita og þurrkstigs á verkun votheys (á rannsóknastofu)
Umhverfishiti um 6°C um 20°C SÝRUSTIG, pH
Þurrefni við hirðingu, %
19,5 4,54 5,06
33,2 4,89 4,84
44,5 6,44 5,35
LÉTTING VIÐ VERKUN
(efnatap með gasi), %
Þurrefni við hirðingu, %
19,5 1,3 3,2
33,2 0,7 2,1
44,5 1,8 1,5
Fyrstu niðurstöður benda til að áhrif umhverfishita á verkun votheys fari dvínandi
með hækkandi þurrefni. Ólokið er efiiamælingum á heysýnum úr þessari tilraun.
5. Að bjarga hröktu heyi
Aðstæður í júlí-mánuði 1997 voru óhagstæðar heyþurrkun í Borgarfirði. Er nær
dró Ólafsmessu fyrri hraktist nokkuð af fjárheyi á Hvanneyri sem fara átti í rúllur.
Þegar útséð var um öruggan þurrk var ákveðið að taka heyið saman í rúllur,
blanda maurasýruríku hjálparefni (Foraform) í hluta þess, auk þess sem reynt var
að þurrka hluta heysins eftir föngrnn í dægurlangri flæsu. Þannig sköpuðu
aðstæður nokkra heyflokka sem ætlunin er að bjóða gemlingum nú í vetur til þess
að kanna lysíugleikann auk þess sem hefðbundnar fóðurefnagreiningar verða
gerðar á heyinu.
6. Verkun og geymsla votheys í smáböggum
í samvinnu við Bútæknideild RALA var gerð rannsókn á votverkun heys í
hefðbundnum smáböggum sem hjúpaðir voru plasti (4- og 6-foldu). Var hún liður
í athugun Bútæknideildar á sérstakri pökkunarvél sem þangað kom til prófunar.
Tilraun var gerð með verkun háar á tvennum þurrkstigum; var það raunar sama
hráefnið og notað var í rannsókn sem sagt var fiá xmdir lið B.3. hér að ffarnan. Að
lokinni liðlega 3 mánaða útigeymslu var heyið athugað. Enn liggur aðeins fyrir
mæling á sýrustigi þess og eru meðaltölumar birtar í 5. töflu. Til samanburðar eru
teknar með tölur fyrir rúllubagga úr sama hráefni í 6-foldum plasthjúp:
51