Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.09.1981, Síða 7

Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.09.1981, Síða 7
MJALTAVINNA í BÁSAFJÓSUM 5 og fötum, en upp úr stríðsárum komu jafnhliða svonefndar lausavélar. Pær höfðu ekki fasta soglögn, heldur var sogdæla og mótor á vagni, sem ekið var um fjósið (Árni G. Eylands, 1950). Lítið er um samstæðar heimildir um þróun mjaltatækni árin 1950—1960, en í blaðaviðtali við bændur í Þrándarholti í Gnúpverjahreppi (Gísli Kristjánsson, 1961) kemur fram, að þar hafi verið reist lausagöngufjós árið 1956. I því fjósi var mjaltabás. I viðtalinu kemur fram, að þar og í fjósi á Laugarvatni voru einu fjósin á landinu með mjaltabás. Árið 1961 var sett upp rörmjaltakerfi í fjósinu að Helgavatni í Þverárhlíð (DlÐR- ik Vilhjálmsson, 1979), og mun það hafa verið með hinum fyrstu hér á landi. Ekki er með vissu vitað, hvenær fyrst var gerður mjaltabás við venjulegt básafjós hér á landi, en 1962 var slíkur bás settur upp í Hvanneyrarfjósi að tilhlutan Guð- mundar Jóhannessonar bústjóra. Innflutningur rörmjaltakerfa eykst verulega árin 1966—’68 og er þá um 30—35% afinnfluttum mjaltakerfum, en árin 1975—1978 um og yfir 90% (Har- aldur Árnason, 1979), en þar í eru tæki bæði fyrir mjaltir á fjósbásum og á mjalt- abásum. Áhugi bænda á mjaltabásum við venjuleg básafjós verður ekki verulegur fyrr en um og eftir 1970. Síðan hafa verið gerðir allmargir mjaltabásar við venjuleg básafjós, en ekki eru tiltækar tölur um fjölda þeirra. Hlutdeild mjaltavinnu við kúahiðringu Vinnumagn við kúahirðingu er mjög breytilegt milli búa. Samkvæmt búreikn- ingum (1978) er verulegur munur á vinnumagni eftir bústærð. Þannig er árs- vinna að meðaltali um 129 klst. á kúgildi, þegar bústærð samsvarar 20 kúgildum, en 93 klst., þegar um 40 kúgildi eru á býlinu. Þennan mun má væntanlega að hluta rekja til meiri tækjabúnaðar og betri vinn- uaðstöðu á stærri búunum. Þá er einnig munur á vinnumagni eftir árstíma. Mest er vinnan í maí, um 17 mín/kúgildi á dag, en minnst í ágúst, um 13 mín. (ÁRS- skýrsla Búreikningastofu Landbún- aðarins, 1978). Beinar tímamælingar, sem gerðar hafa verið í fjósum (Grétar Einarsson, 1976), benda til þesss, að dagleg vinna sé á bilinu 8—12 mín. á kú (ekki kúgildi) á dag eftir bústærð og öðr- um aðstæðum. Af eðlilegum ástæðum ber nokkuð á milli niðurstaðna úr búreikningum og tímamælingum. I síðara dæmi er einungis mæld hin reglubundna vinna, þ. e. sú vinna, sem daglega þarf að inna af hendi um innistöðutímann, en ekki sú vinna, sem unnin er utan venjulegs fjósatíma. Af hinni reglubundnu vinnu tóku mjaltirnar í áðurnefndum tímamælingum að meðaltali um 64% af tímanum, en hlutdeild mjaltanna var mjög breytileg eftir búum (meðalfrávik um 9,5%) eftir mjaltaaðstöðu og hlutdeild annarra verk- þátta. Þá var einnig mikill munur eftir búum á vinnumagni við mjaltir, frá um 5 mín/kú á dag upp í 10 mín. Þennan mun má rekja til ólíkra vinnubragða, tækja- búnaðar og vinnuaðstöðu við mjaltirnar. I 1. töflu eru sýndar einfaldir útreikn- ingar á ársvinnu við mjaltir með breyti- legum forsendum. Þar kemur t. d. fram, að ársvinna er um 1460 klukkustundir, þar sem 30 kýr eru að jafnaði mjólkandi, og mjaltatíminn um 8 mannmín/kú á dag. Nemur það um 80% af venjulegu ársstarfi í dagvinnu. I töflunni má einnig sjá, hve
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Íslenskar landbúnaðarrannsóknir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslenskar landbúnaðarrannsóknir
https://timarit.is/publication/1499

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.