Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.09.1981, Blaðsíða 11
MJALTAVINNA f BÁSAFJÓSUM 9
Vinnuaðstaða og vinnuálag
I iðnaði er þekkt, að afköst við vinnu
minnka eftir því, sem aðstaða og um hverfi
er óþægilegra. Slæm vinnuaðstaða við
mjaltir er einnig líkleg til að valda heilsu-
tjóni, líkt og þekkt er frá öðrum vinnu-
stöðum.
Engar innlendar rannsóknir eru til um
áhrif vinnuaðstöðu og vinnuálags, við
mjaltir á heilsu manna. Hér verður því
aðeins greint frá nokkrum erlendum rann-
sóknum er snerta þetta efni.
Sem mælikvarða á vinnuálag notar For-
ster (1971) stærð horna í gráðum sem
hryggur og læri mynda annars vegar og
lærleggur og fótleggur mynda hins vegar
(mynd 3). Vinnuálagið eykst eftir því sem
hornasumman er minni og léttust verður
því vinnan við mjaltir þar sem hægt er að
standa uppréttur.
Annar mælikvarði á vinnuálagið er súr-
efnisupptaka (O^) mjaltamanns við
öndun. Þetta atriði hefur verið rannsakað
(Morris og fl. 1955) á þann hátt að hæð-
arstaða mjaltamanns miðað við kúna var
breytileg. Niðurstöður þessara mælinga
eru sýndar í töflu 2, en þar er gefin upp
aukning á súrefnisupptöku í hlutfalli við
hvíldarstöðu. Afþessum niðurstöðum var
3. mynd: Vinnuaðstaða við mjaltir á fjósbás og á
mjaltabás (Forster, 1971).
Fig. 3. Working stance during milking. a) cubicle milking b)Par-
lour milking.
dregin sú ályktun að heppilegur hæðar-
munur væri 81-91 cm.
Þriðja aðferðin til að mæla vinnuálag er
tíðni hjartsláttar, Schön og fl. (1974)
fundu að tíðni féll úr 110 slögum á mínútu
við mjaltir á fjósbásum í um 85 slög við
mjaltir í mjaltabásum. Þá fundu þeir að
vegalengdin sem ganga þarf við mjaltir í
einstæðu básafjósi var um 17 metrar á
kúna í mál en við mjaltir í mjaltabás var
vegalengdin um 6 metrar. Þá hefur komið
fram í athugunum (Wahlström, 1974) að
mjaltamaður er munn betur varinn gagn-
vart sparki frá kúnum þegar unnið er í
2. TAFLA.
Hlutfallsleg súrefnisupptaka mjaltamanns við ólíka mjaltaaðstöðu (Morris og fl., 1955).
Table 2. Relative oxygen uptake by dairyman in different working conditions.
Aukning í súrefnisupptöku (O2).
Hvíldarstaða= 100
lncrease in U2 uptake
Resting uptake = 100
Kýr o g mjaltamaður í sömu hæð . . Cows and dairyman standing at same hight. 166
Kýr 41 cm (16") ofar en mjaltamaður Cows 41 cm (16") higher than dairyman. 165
Kýr 71 cm (28") ofar en mjaltamaður 71(28") 167
Kýr 81 cm (32") ofar en mjaltamaður 81(32") 132
Kýr 91 cm (36") ofar en mjaltamaður 91(36") 102