Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.09.1981, Side 43

Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.09.1981, Side 43
ÍSL. LANDBÚN. j. agr. res. icel. 1981 13, 1-2: 41-47 Tengsl beinna áhrifa og móðuráhrifa á haustþunga lamba JÓN VlÐAR JÓNMUNDSSON Búnaðarfélag Island. YFIRLIT Rannsókn er gerð eftir upplýsingum úr skýrslum fjárræktarfélaganna um 3325 hrúta, sem höfðu átt hið fæsta 10 afkvæmi skýrslufærð og 10 afkvæmi hjá dætrum. Erfðafylgni þessi reyndist -0.43, þegar gert er ráð fyrir, að arfgengi beinna áhrifa og móðuráhrifa sé 0.20. INNGANGUR Við kynbætur sauðfjár er reynt að bæta fjölda eiginleika í stofninum samtímis. I íslenskri sauðfjárrækt eru mikilvægustu eiginleikar án efa frjósemi, vænleiki lamba og gæðaeiginleikar (kjöt, ull, gærur). Eiginleiki eins og haustþungi lamba ræðst bæði af umhverfls- og erfðaþáttum. Þessi eiginleiki ræðst bæði af eðli lambsins sjálfs til vaxtar, — því, sem hér eru kölluð bein áhrif, — og eiginleikum móðurinnar til að sjá lambinu fyrir næringu, sem hér er nefnt móðureiginleikar. Að sjálfsögðu er hugsanlegt, að þessir tveir þættir erfist ekki óháðir, heldur séu einhver erfðatengsl milli þeirra. I ritgerð þessari er skýrt frá niðurstöðum rannsóknar á þessu atriði. Fyrri rannsóknir. I ræktunarstarfi hér á landi er haustþungi lamba notaður sem mælikvarði bæði á vaxtagetu lamba og móðuráhrif (JÓN ViðarJónmundsson, 1979). Nokkrar athuganir hafa verið gerðar á arfgengi bæði beinna áhrifa og móðurá- hrifa á haustþunga lamba hér á landi, og má draga þær niðurstöður saman í eftir- farandi yfirlit: Bein áhrif. Sveinn Hallgrímsson (1971): Þungi á fæti, einlembingar 0.44 Þungi á fæti, tvílembingar 0.18 Jón ViðarJónmundsson (1971): Þungi á fæti, hrútar 0.19 Þungi á fæti, gimbrar 0.29 Stefán Sch. Thorsteinsson og HólmgeirBjörnsson (1971): Fallþungi, tvílembingshrútar 0.30 Jón Viðar Jónmundsson (1977a): Þungi á fæti 0.20 Fallþungi 0.13 Móðuráhrif Stefán Aðalsteinsson (1966): Fallþungaeinkunn 0.34 Stefán Aðalsteinsson (1971): Þungi lamba á fæti 0.21 JÓN Viðar Jónmundsson (1977b): Þungi lamba á fæti 0.22 Fallþungi 0.21 Jón Viðar Jónmundsson et al. (1977): Þungi lamba á fæti 0.23 Rannsóknir Sveins Hallgrímssonar (1971) og Jóns Viðars Jónmundssonar

x

Íslenskar landbúnaðarrannsóknir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslenskar landbúnaðarrannsóknir
https://timarit.is/publication/1499

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.