Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.09.1982, Blaðsíða 22

Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.09.1982, Blaðsíða 22
20 ÍSLENZKAR LANDBÚNAÐARRANNSÓKNIR ligena Bres. (Hákon Bjarnason, 1979) og Cytospora rubescens Fr.ex. Fr. (Jörstad, 1963, Ingólgur Davíðsson 1962). Flestir hafa talið, að óhagstæð vaxtarkjör og frostkal ættu mikinn þátt í barkskemmd- um, og Jörstad telur, að kal sé oftast frumorsök skemmda, sem Cytospora finnst í. Þar sem heimildum virtist ekki bera saman um orsakir reyniátu og erlendar heimildir eru fáar, var talin ástæða til þess að leita svara við eftirfarandi spurningum: II. EFNI OG AÐFERÐIR Til þess að kanna barkskemmdir var reynt að athuga allmörg tré á aðgengilegum stöðum og flokka skemmdir. Athugað var, hvort sár voru á stofni og hve margar særðar og dauðar greinar fundust á hverju tré. Auk þess voru athuguð ýmis önnur atriði, svo sem aldur trjáa, sem áætlaður var út frá ummáli stofns, hæð, næringará- stand, fjöldi rótarskotao. fl. Þarsem ekkert augljóst samband virtist á milli þessara þátta og skemmda á stofni og greinum, er einungis getið um fjölda sára og dauðra greina í niðurstöðum. Flest tré voru athug- uð í kirkjugarðinum við Suðurgötu í Reykjavík og í lystigarðinum á Akureyri. Sýnum var safnað af skemmdum berki og reynt að hreinrækta skaðvaldinn á sveppaæti (kartöflu-dextrósa-agar, KDA) á ræktunarskálum, eftir að börkurinn hafði verið sótthreinsaður að utan með 70% etanóli, sem brennt var af. Þar sem gróhirzlur (pykniður) fundust, var svepp- urinn ræktaður út frá gróum. Alls var safnað 22 sveppaeinstaklingum (ísólötum) og einni bakteríu, og gerð var Hvaða sveppir geta valdið átusárum á reyni? Er munur á sveppunum, að því er varðar sýkingarhæfni (pathogenicity)? Er munur á mótstöðu (resistens) einstakra trjáa, og af hverju stafar sá munur? Hversu alvarlegur er sjúkdómurinn? Er útbreiðsla og tíðni reyniátu eins háð veðurfari og margir hafa talið? Könnunin var að mestu gerð sumarið 1980. tilraun til að sýkja lifandi börk með þeim til þess að ákvarða sýkingarhæfni ísólatanna. Ungar greinar (7—13 mm í þvermál) af sama tré voru klipptar niður í um 5 cm langa búta og þeir særðir með H-laga skurði nærri miðju, svo að tveir barkflipar mynduðust. Endar voru sótthreinsaðir með 70% etanóli. Sveppþráðum úr agar- ræktun var síðan komið fyrir í sárinu undir flipunum. Þrír bútar með sama ísólati voru látnir saman í petriskál og skálarnar settar í plastpoka og geymdar við stofuhita. Skemmd í berki var mæld fjórum og níu dögum eftir smitun. Tilraunin var endur- tekin með þeim ísólötum, sem sýndu vöxt í fyrri tilrauninni, og nú hafðir fjórir bútar í hverjum lið og mælt eftir sex og tíu daga. Til þess að komast að því, hvort munur væri á mótstöðu ólíkra reynitrjáa, var safnað greinum af tíu trjám í kirkjugarðin- um við Suðurgötu og tveimur í Elliðaár- hólma. Smitun fór fram á sama hátt og áður, en nú var aðeins smitað með því ísólati, sem áður hafði sýnt hraðastan vöxt.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94

x

Íslenskar landbúnaðarrannsóknir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslenskar landbúnaðarrannsóknir
https://timarit.is/publication/1499

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.