Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.09.1982, Side 49
ISL. LANDBÚN.
J. AGR. RES. ICEL.
1982 14, 1-2: 47-54
Beitarálag metið með mælingum á gróðri
Friðrik Pálmason
Rannsóknarstofnun landbúnaðarins, Keldnaholti Reykjavík.
YFIRLIT
Með mælingum á uppskeru af gróðri og hrápróteíni í gróðri á ábornu landi og óábornum mýrum á
láglendi virðist mega meta beitarálag við sauðfjárbeit. Sett hafa verið upp ákveðin mörk fyrir
beitargróður með ákveðið hrápróteínmagn í gróðri, sem skilji á milli mikils beitarálags og miðlungs-
beitarálags. Niðurstöður eru fengnar af beitartilraunum á fimm stöðum árin 1975-1979.
Mörk milli þungrar beitar og hóflegrar hafa verið áætluð 0,6-1,6 tonn af þurrefni í gróðri á hektara,
misjafnt eftir jarðvegi, áburði og þroska gróðurs. Þroskinn er metinn eftir hrápróteíni í gróðri.
Stuðzt var við þá flokkun beitarþunga, sem notuð hefur verið á hverjum tilraunastað. Má vera, að þörf
sé á nákvæmari skilgreiningu á beitarálagi en í þeirri flokkun felst. Einnig er ljóst, að óvissa er um slík
mörk milli hóflegrar og mikillar beitar. Það er því ekki ætlazt til þess, að þær tölur, sem hér koma fram,
séu notaðar til annars en hliðsjónar við frekari rannsóknir á mati beitarþunga með mælingum á gróðri.
INNGANGUR
Með beitarrannsóknum þeim, sem gerðar
hafa verið víða um land í tengslum við
landgræðsluáætlun ‘), hafa opnazt nýjar
leiðir til þess að meta beitarálag með
gróðurrannsóknum.
Við athugun á mælingum á hrápróteíni í
gróðri kom í ljós, að hrápróteín, % í
þurrefni, fer aðjafnaði vaxandi með beitar-
þunga á landinu. Gróður á landinu, mæld-
ur sem þurrefni í hkg/ha, fer hins vegar
minnkandi eftir því, sem beitarálag vex,
eins og vænta má. Mælingin nær ekki til
þess, sem bitið er. Því þótti vænlegt að
kanna, hvort meta megi beitarálag með
mælingum á beitargróðri og hrápróteíni í
gróðri. Hugmyndin er þá jafnframt sú, að
hrápróteínið komi í stað dagsetninga á
mælingum sem betri mælikvarði á þroska-
stig gróðurs. Að sjálfsögðu er Ijóst, að
hrápróteínmagnið er einnig háð niturlosun
í jarðvegi og niturgjöfí áburði. Aðhvarfs-
líkingin eða fylgni beitargróðurs við hrá-
próteínið er notuð til þess að kanna
notagildi þessara mælinga við mat á
beitarálagi.
Beitargróður eða gróður er í þessari
grein látinn tákna þann gróður, sem er á
beitilandinu hverju sinni, þegar mælt er.
Beitargróður eða gróður er þá sömu merk-
ingar og enska heitið Standing herbage.
Þegar talað er um mælingar á beitargróðri
eða orðalag sýnir, að átt sé við magn af
beitargróðri, þá er um að ræða þurrefni af
flatareiningu, t. d. hkg/ha.