Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.09.1982, Side 50
48 ÍSLENZKAR LANDBÚNAÐARRANNSÓKNIR
EFNIVIÐUR
Beitartilraununum þeim, sem stuðzt er við
í þeim athugunum, er grein þessi fjallar
um, hefur áður verið lýst í áfangaskýrslum
'), erindum á ráðunautafundum 6) og
greinum, sem birzt hafa í erlendum ritum2’
3'4'5).
Mælingar á beitargróðri og hrápróteíni
voru teknar úr áfangaskýrslum, og var
eingöngu stuðzt við þá tilraunaliði, þar
sem sauðfé eingöngu var beitt. Tilrauna-
staðirnir, sem þessi athugun nær til, eru
Auðkúluheiði, Álftaver, Kálfholt, Hvann-
eyri og Hestur á árunum 1975—1979.
NIÐURSTÖÐUR
Niðurstöður koma fram á myndum 1-6 og í
1. töflu. Á myndunum eru aðhvarfslínur og
líkingar, þar sem gróður, þurrefni hkg/ha
(Y) er fa.ll af hrápróteíni í gróðri, %
þurrefni (X). Aðhvarfsjöfnurnar byggjast
á mælingum allra tilraunaliða, endurtekn-
inga og ára. Hrápróteín er aðjafnaði mest í
gróðri í byrjun beitartímans, en fer
minnkandi eftir því, sem líður á sumar,
þótt frávik séu á þessu, einkum fyrsta
tilraunaárið og á undan áburðargjöf.
Beitargróður á ábornu landi fer hins vegar
vaxandi fram eftir sumri og fram á haust, ef
beit er vægileg, en gróður vex minna eða
ekki við þunga beit. Undantekning er
niðurstöður frá Auðkúluheiði, sbr. líkingar
íviðaukaoglínuritin.Áóábornalandinuer
sýnilega eríiðara að meta beitarálagið,
annað hvort vegna þess hve lítill gróðurinn
er, eins og á Auðkúluheiði (mynd 1, línur
1.1, 1.2 og 1.3) og í Álftaveri (mynd 2, 1.1—
1.3), eða vegna þess, hve ójafnt land hefur
valist undir tilraunaliði eins og í Kálfholti
(4. mynd, lína 1.2, sker sig úr hinum).
Áburðarnotkun var sem svarar 104 N og
25 P kg/ha á Auðkúluheiði, í Álftaveri og
Kálíholti. Á Hvanneyri voru notuð 104 N,
27 Pog61 Kárið 1975, en 1976 og 77 voru
notuð 100 N, 30 P og 60 K í síðari hluta
maímánaðar og 20 kg/ha N í byrjun ágúst í
kalkammon. Á Hesti voru í sprettubyrjun
notuð 92 N, 25 P og 30 K og síðsumars 60 N,
13 P og 25 K kg/ha í kalkblönduðum
áburði.
Á Auðkúluheiði (1. mynd, lína 1.6) er
gróður mjög lítill á þungbeitta, áborna
landinu í byrjun beitartímans, innan við
2 hestburðir, en nær um 13 hestburðum í
GRÓÐUR
þurrefni, hkg/ha
Mynd 1. Áhrif beitarþunga á gróður og hráprótein
í gróðri, frá byrjun til loka beitartíma á Auðkúlu-
heiði á árunum 1975 — 79.