Fréttablaðið - 05.12.2020, Blaðsíða 52
Umsóknarfrestur er til
17. desember nk.
Umsóknir óskast fylltar út
á hagvangur.is
Nánari upplýsingar veita:
Hlynur Atli Magnússon,
hlynur@hagvangur.is og
Stefanía Hildur Ásmundsdóttir,
stefania@hagvangur.is
Ísfugl leitar að öflugum og traustum kjötiðnaðarmanni til að í slást í hóp framúrskarandi starfsmanna
fyrirtækisins. Kjötiðnaðarmaður starfar á gólfi í vinnslu og hefur umsjón með og skipuleggur störf í
vinnslu í samvinnu við sláturhússtjóra. Kjötiðnaðarmaður þarf að kunna skil á störfum sláturhússtjóra
til að leysa hann af í fríum og fjarveru.
Óskað er eftir metnaðarfullum og framsýnum einstaklingi með góða samskiptahæfni sem hefur mikið
frumkvæði og drifkraft til að þróa áfram starfsumhverfi, sinna stöðugum endurbótum á verkferlum og
gæðamálum sem og koma að vöruþróun með tilheyrandi uppfinningasemi og hugmyndaauðgi.
KJÖTIÐNAÐARMAÐUR
Reykjabúið í Mosfellsbæ er eitt af elstu starfandi alifuglabúum landsins. Það er fjölskyldubú í eigu Jóns Magnúsar
Jónssonar og Kristínar Sverrisdóttur bænda á Reykjum. Höfuðstöðvar Reykjabúsins eru í fallegu og gróðursælu
umhverfi við rætur Reykjafells og eru þau hjónin þriðja kynslóðin sem ræktar þar fugla. Í dag er rekstur Reykjabúsins
tvíþættur; annars vegar stofnrækt fyrir kalkúna og kjúklinga Ísfuglsbænda og hins vegar eldi kjúklinga og kalkúna.
Á Reykjum er heimasala sem selur kalkúnaafurðir beint til neytenda. Reykjabúið tók alfarið yfir rekstur Ísfugls árið
2012. Ísfugl í Mosfellsbæ er fyrsta tæknivædda alifuglasláturhús og -kjötvinnsla á Íslandi og hefur starfað allt frá árinu
1979. Ísfugl er jafnframt elsta starfandi fyrirtækið í greininni og hið eina sem slátrar og vinnur íslenskan kalkún, auk
kjúklinga. Úr þeim eru síðan unnar margvíslegar matvörur fyrir mötuneyti, veitingahús og neytendamarkað.
Reginn hf. er íslenskt fasteignafélag sem
fjárfestir í, leigir út og annast rekstur á
atvinnuhúsnæði. Fasteignasafn Regins
telur 114 fasteign og er heildarstærð
safnsins um 375 þúsund fermetrar. Félagið
er hlutafélag í dreifðu eignarhaldi og skráð
í Kauphöll Íslands.
Umsóknarfrestur er til 15. desember nk.
Umsóknir óskast fylltar út á hagvangur.is.
Nánari upplýsingar veitir Sverrir Briem,
sverrir@hagvangur.is
VERK-/TÆKNIFRÆÐINGUR
með þekkingu og áhuga á sjálfbærni í tengslum við uppbyggingu og rekstur fasteigna
Helstu verkefni:
• Áætlanagerð vegna framkvæmda-, umhverfis- og sjálfbærniverkefna
• Vinna við umhverfisvottanir fasteigna
• Þátttaka í að byggja upp nýjar og auknar áherslur til vistvænni fasteignarekstrar
• Undirbúningur, stýring og eftirlit með verkefnum á sviði fasteignarekstrar
• Stýring viðhalds- og framkvæmdaverkefna
• Samskipti við viðskiptavini, leigutaka og verktaka
• Þátttaka í ýmsum starfs- og verkefnahópum
VÉLVIRKI/VÉLSTJÓRI
Helstu verkefni:
• Rekstur, viðhald og endurnýjun raf-, vél- og stýrikerfa tengdum fasteignum félagsins
• Úttektir og eftirlit á raf-, vél- og stýrikerfum í fasteignum félagsins
• Umsjón og rekstur hússtjórnarkerfa
• Þátttaka í áætlanagerð vegna reksturs og viðhalds fasteigna
• Þátttaka og eftirfylgni með sértækum aðgerðum á sviði orkusparnaðar
• Stýring og utanumhald minni viðhalds- og rekstrarverkefna
• Samskipti við viðskiptavini, leigutaka og verktaka
• Þátttaka í ýmsum starfs- og verkefnahópum
VERKEFNASTJÓRI Á REKSTRAR-
OG ÞJÓNUSTUSVIÐI
Helstu verkefni:
• Áætlanagerð vegna reksturs fasteigna, s.s. orkumál, ræsting, þrif, húsumsjón, öryggisgæsla, þjónustuborð
• Kostnaðarstýring og eftirfylgni áætlana, m.a. stýring og utanumhald á þjónustusamningum vegna reksturs í fasteignum
• Utanumhald rekstrarfélaga og verkefni tengd þeim
• Stýring og utanumhald minni viðhalds- og rekstrarverkefna
• Utanumhald húsfélaga og gerð uppgjöra
• Samskipti við viðskiptavini, leigutaka og verktaka
• Þátttaka í ýmsum starfs- og verkefnahópum
Mörg spennandi og krefjandi verkefni eru framundan hjá Fasteignafélaginu Regin
Við leitum því að kraftmiklum einstaklingum til að verða hluti af stóru teymi sem fæst við
rekstur og viðhald fasteigna.
SPENNANDI STÖRF HJÁ REGIN