Fréttablaðið - 05.12.2020, Blaðsíða 24
Við Felix ætluðum að vera með 25 ára sam-st ar fsa f mælistón-leika í Háskólabíói í mars síðastliðnum. Við vorum búnir að
selja tvenna tónleika þegar COVID
skall á. Við frestuðum tónleikunum
fram í september en það varð ekki
af þeim heldur þá svo við erum
búnir að fresta til september 2021,“
segir Gunni.
„En nú í byrjun nóvember vorum
við að tala um að það stefndi í algert
jólaballaleysi og þar með myndi
jólaskemmtana- og jólasveinaleysi
hrjá íslensk börn ofan á allt annað.
Þannig að Felix hringdi í Lands-
bankann og spurði hvort þau væru
til í að hjálpa okkur að veita smá
jólagleði í líf íslenskra barna þessi
jólin. Og þau voru þvílíkt til. Þann-
ig að við munum bjarga jólunum
fyrir íslensk börn alls staðar í heim-
inum,“ segir Gunni í léttum tón.
Kenna börnum að undirbúa jól
Um er að ræða jólastreymi sem sent
verður út á Facebook-síðu Lands-
bankans sunnudaginn 6. desember
klukkan 14.00. Þeir félagar ætla að
tryggja réttu jólastemninguna með
því að kenna börnum þessa lands
hvernig á að standa að jólaundir-
búningnum: jólakveðjum, jóla-
skreytingum, jólagjafalistum, jóla-
þrifum, jólavináttu og jólakærleika.
Og auðvitað jólabakstri því það er
algerlega áreiðanlegt að Gunni
ætlar að kenna Felix að baka jóla-
smákökur.
Þeir félagar segja líklegt að jóla-
sveinar kíki í heimsókn og taki
lagið með þeim. „Það verða auð-
vitað engir áhorfendur en í staðinn
verða sex dansarar frá Dansskóla
Birnu Björns sem munu dansa með
Gunna á meðan Felix syngur jóla-
lög þeirra félaga. Og svo ætlar Felix
að kenna Gunna að skreyta jólatré
– á mettíma.“
Sofnaði ofan í aspassúpuna
Felix Bergsson er mikið jólabarn en
þegar hann var sex ára keyrði hann
sig svo út í spennu að hann sofnaði
ofan í aspassúpuna á aðfangadag.
Ertu mikið jólabarn?
Já, ég er það svo sannarlega og
hef verið allt frá því að ég sofnaði
sex ára ofan í aspassúpuna hans
pabba kl. 18.03 á aðfangadag. Var
víst orðinn aaaaaðeins of spennt-
ur.
Ertu búinn að skreyta?
Já, það er búið að skreyta fullt
heima hjá mér. Eiginmaðurinn er
jafnvel meira jólabarn en ég.
Hver er uppáhaldsjólaminning
þín?
Þegar Þórir bróðir gaf mér riffil
(leikfanga) í jólagjöf og ég varð svo
undrandi því ég var einmitt að
fara að gefa honum nákvæmlega
eins riffil. Ég skildi eiginlega ekki
hvernig þetta hefði getað gerst og
hafði ekki hugmynd um svokölluð
mömmuplott. Gleymi þessu aldrei.
Hvað er ómissandi á jólunum?
Börnin mín. Hef einu sinni verið
án þeirra og fannst það fáránlegt.
Hvert er besta jólalagið?
Ég fæ jólagjöf með Kósý. Svo er
lagið um jólagjafaóskalistann,
Sælla er að gefa en þiggja, með
Gunna og Felix gríðarlega gott og
falinn demantur.
Hvenær fer jólatréð upp á þínu
heimili?
Úff, erfið spurning. Við gerum
nefnilega svo mörg jólatré heima
hjá mér því hver og einn gerir sitt
jólatré og er þá gjarnan unnið með
konseptið jólatré frekar en að vera
með alvöru tré! Í fyrra voru „jóla-
trén“ sex talsins en nú verða þau
átta! Við ætlum að setja þau upp
um helgina.
Hverjir verða í „jólakúlunni“
þinni í ár?
Börnin mín, barnabörn, tengda-
börn og foreldrar. Svo verð ég að fá
að hitta systkini okkar Baldurs en
þá er það líka upptalið.
Hvernig getum við haldið í gleðina
þessi undarlegu jól?
Með því að gera fallegt í kringum
okkur, hlusta á jólalög og heyra bara
nógu oft í öllum sem við söknum, til
dæmis í síma eða á netinu.
Hvaða jólahefð má aldrei rjúfa?
Jólak lukkurnar í útvar pinu
klukkan sex á aðfangadag. Það má
aldrei breytast.
Fimm ára á aðfangadagskvöld
Gunnar Helgason verður alltaf eins
og fimm ára þegar farið er að opna
gjafirnar á aðfangadagskvöld og
skreytir meira í ár en nokkru sinni
fyrr.
Ertu mikið jólabarn?
Já, það er engin spurning. Ég verð
alltaf spenntur á jólunum og finnst
mjög gaman af öllum hefðunum,
gömlum sem nýjum. Nú í ár erum
við Björk eiginkona mín að ganga
lengra í að skreyta húsið en áður og
það er hrikalega gaman. Svo eru það
gjafirnar, ég verð alltaf eins og fimm
ára þegar við förum að taka upp.
Hver er uppáhaldsjólaminning
þín?
Það ryðjast fram góðar jólaminn-
ingar, úff! Það er kannski þegar
skíðin komu úr pakkanum þarna
1977. Þau breyttu lífi manns því
maður varð svo miklu betri á skíð-
um og fór að komast á verðlaunapall
og svona. Og svo fyrstu jólin sem við
Björk áttum saman með eldri syni
okkar, fyrstu fjölskyldujólin. Þau
fannst mér æðisleg. Og þegar yngri
sonur okkar fékk það hlutverk
fimm ára að dreifa pökkunum eftir
að þeir höfðu verið lesnir upp. Hann
var eiginlega spenntari að sjá hvað
aðrir voru að fá en hann sjálfur. Það
fannst mér svo fallegt því það er
sælla að gefa en þiggja.
Hvað er ómissandi á jólunum?
Laufabrauð. Eða sko laufabrauðs-
partíið, þegar stórfjölskyldan hittist
og gerir laufabrauð saman. En það
má ekki núna þannig að í ár kaup-
um við sennilega bara laufabrauð
úti í búð.
Hvert er besta jólalagið?
Jólagjafalagið okkar Felix. Ég segi
það algerlega kinnroðalaust. Það er
geggjað lag. Já og svo Þú komst með
jólin til mín.
Hvenær fer jólatréð upp á þínu
heimili?
Það fór alltaf upp á Þorláksmessu
en það hefur verið að færast framar
á dagatalinu því að ég er alltaf
svo upptekinn dagana fyrir jól og
leiðinlegt að gera það í einhverju
stressi. Ég býst bara við að það fari
upp í næstu viku.
Hverjir verða í „jólakúlunni“
þinni í ár?
Það er nú stóra spurningin. Við
verðum sennilega bara fjögur, ég
Björk og strákarnir okkar. En von-
andi mega tengdaforeldrarnir vera
hjá okkur á aðfangadag. Hins vegar
er nokkuð ljóst að stóra skötuboðið
okkar á Þorláksmessu verður ekki
í ár. Þangað hafa komið allir eldri
meðlimir stórfjölskyldunnar og
svo Felix. Þetta hefur alltaf verið
í hádeginu og svo hef ég farið með
strákunum niður í bæ á meðan
Björk hefur byrjað á humarsúpunni.
En við bíðum bara og sjáum hvað
má og hvað má ekki hafa marga hjá
sér.
Hvernig getum við haldið í gleðina
þessi undarlegu jól?
Mín leið hefur verið sú að búast
ekki við neinu. Ég hef litið svo
á að þetta COVID-ástand muni
standa fram á næsta ár þannig að
ég verð aldrei fyrir vonbrigðum
með ákvarðanir þríeykisins. Og
jólin í ár stefna í að verða þann-
ig að við litla fjölskyldan verðum
meira saman en áður og fínt bara
að stefna á nándina og rólegheitin.
Reyna kannski að búa til nýjar jóla-
hefðir. Ég er náttúrlega ekki með
lítil börn en það væri hægt að finna
leiðir eins og að kíkja í Jólaþorpið í
Hafnarfirði, fara að höggva jólatré
saman og svo auðvitað að horfa
á jólaskemmtunina okkar Felix.
Hún kemur vonandi sem sára-
bót fyrir allar jólaskemmtanirnar
sem börnin missa af í ár. Við erum
búnir að semja við jólasveinana og
þeir ætla að kíkja til okkar þannig
að þó að allt annað klikki þá munu
börnin hitta jólasveina hjá okkur á
morgun.
Hvaða jólahefð má aldrei rjúfa?
Það má rjúfa þær allar. Það eina
sem maður verður að halda í er jóla-
andinn. Sælla er að gefa en þiggja
og það er ógeðslega gaman að pæla
í jólagjöfum fyrir frúna og börnin.
Og Felix!
Bjóða öllum börnum á jólaball
Þeir Gunnar Helgason og Felix Bergsson, betur þekktir sem Gunni og Felix, tóku ráðin í sínar hendur þegar
stefndi í algert jólaballaleysi í ár og halda jólastreymisball fyrir börn og auðvitað fullorðna á morgun, sunnudag.
Félagarnir Gunni og Felix eru mikil jólabörn og fannst því algjörlega ótækt að stefndi í algjört jólaballaleysi hjá íslenskum börnum í ár. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Uppáhaldsjólaminning Felix er
þegar hann gaf bróður sínum riffil.
Ein uppáhaldsjólaminning Gunna er
þegar skíðin komu úr pakkanum.
Björk
Eiðsdóttir
bjork@frettabladid.is
5 . D E S E M B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R22 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
HELGIN