Fréttablaðið - 05.12.2020, Blaðsíða 6
VIÐSKIPTI Auglýsing frá fyrirtækinu
Hugbergi á atvinnuleitarvélinni
Alfreð hefur verið fjarlægð. Var hún
nefnd „sölu og kynningarverkefni“
og kom þar fram að söluvaran væri
„fjölmargar áhugaverðar alþjóð
legar internetþjónustur“.
Þegar fólk sótti um kom í ljós að
um var að ræða áskriftir að Crowd1
sem BBC og f leiri hafa lýst sem
píramídasvindli og er einkum beint
að fólki í Afríku.
Crowd1 hefur verið bannað í
nokkrum Afríkuríkjum og sum ríki
hafa gefið út viðvaranir vegna starf
seminnar.
Gunnar Jón Jónasson, eigandi
Hugbergs, þvertekur f yrir að
Crowd1 sé píramídasvindl. Hann
segir að Crowd1 gangi út á að safna
meðlimum, í dag séu þeir 21 milljón.
„Það sem menn selja er með
limaaðgangur. Það eru netnámskeið
sem fylgja ef þú ert meðlimur,“ segir
Gunnar Jón.
Spurður hvaðan tekjur fyrirtæk
isins komi segir hann þær koma í
gegnum samninga við netfyrirtæki.
„Sem dæmi er samningur við
bókunarsíðu, síðan beina meðlimir
sér að þessu bókunarfyrirtæki og
eiga viðskipti við það. Þá deilir þessi
bókunarsíða tekjunum sem mynd
ast við viðskiptin. Þessir viðskipta
vinir eru eyrnamerktir Crowd1.
Þannig myndast tekjurnar,“ segir
Gunnar Jón.
„Númer eitt, tvö og þrjú, þá eru
menn að kaupa sig inn í þennan
pakka og hafa þá aðgang að þessum
fyrirtækjum sem koma inn í skýið.
Þetta er í sjálfu sér mjög einfalt.“
Í umfjöllun BBC frá því í byrjun
nóvember kemur hins vegar fram
að Crowd1 hafi sjálft sett upp þessar
netsíður. Til dæmis veðmálasíðuna
AffilGo og leikjasíðuna Miggster.
Þar kemur einnig fram að texti
sem notaður sé í tímaritið Crowd
og netnámskeiðin, sem kallast My
Grithub, sé afritaður nánast orð
fyrir orð upp úr eldri greinum og
bókum, til að mynda bókinni How
to be an Estate Investor sem hægt
sé að nálgast frítt á netinu. Einnig
er fjallað um fyrrnefnda bókunar
síðu, Life Trends. Í rannsókn BBC
kom í ljós að á síðunni er ekki notast
við eigin kerfi, heldur kerfi Book
ing. com og Expedia.
Borið hefur á því að Íslendingar
auglýsi Crowd1, til dæmis í Face
book hópum. Algengara er að fólk
sendi skilaboð til fólks í nærum
hverfinu og reyni að selja aðganga
og „menntunarpakka“ fyrir frá 99
til 2.499 evra, eða allt að 385 þúsund
króna.
Í rannsókn BBC kemur fram að
sá sem selur fær um tíu prósent af
eigin sölu, og hluta af sölulaunum
hins næsta og koll af kolli. Pening
arnir streymi því upp píramídann
til toppanna.
Gunnar Jón veit ekki hversu
margir Íslendingar eru meðlimir í
Crowd1. „Ekki minnstu.“
Gunnar Jón vildi ekki svara hvers
vegna Crowd1 væri ekki tekið fram
í starfsauglýsingunni. „Menn fá þær
upplýsingar í framhaldinu.“
Crowd1 var stofnað árið 2018
og hefur strax fengið á sig mikla
gagnrýni. Enda einstaklingar þar
innanborðs sem hafa áður tengst
píramídasvindli, f lestir frá Svíþjóð
og Noregi.
Nefnir BBC til dæmis þrjá menn
sem hafi tengsl við OneCoin, eitt
stærsta píramídasvindl sögunnar.
Þar á meðal stofnandann Jonas Eric
Werner.
Auglýsingin er ekki lengur sýni
leg á vef Alfreðs. Ingvi Þór Georgs
son, framkvæmdastjóri Alfreðs,
ræðir ekki málefni einstakra við
skiptavina en segir að almennt
þurfi fyrirtæki sem auglýsa að gang
ast undir skilmála um að öll notkun
fyrirtækja takmarkist við almenna
og löglega starfsemi.
„Komi í ljós að ekki sé farið eftir
þessu verður það skoðað nánar,“
segir Ingvi.
kristinnhaukur@frettabladid.is
Ekki er vitað hversu
margir Íslendingar hafa
keypt aðgang að Crowd1 en
borið hefur á auglýsingum
Íslendinga í Facebook-hóp-
um.
10
milljörðum króna verður
varið á næstu þremur árum
til að nútímavæða þjónustu
Reykjavíkurborgar.69
prósent íbúa fimm sveitar-
félaga á Suðurlandi styðja
sameiningu þeirra.
11,3
milljarðar króna er halli Reykja-
víkurborgar á næsta ári.
40
prósent Íslendinga
telja hryðjuverka-
ógn aukast hér-
lendis með auknum
fjölda innflytjenda
frá múslimalöndum. 518
voru á biðlista eftir innlögn
á Vog þann 9. nóvember
síðastliðinn.
TÖLUR VIKUNNAR 29.11.2020 TIL 5.12.2020
Ólafur Helgi Kjartansson
fyrrverandi lögreglustjóri á
Suðurnesjum
hefur auk tveggja
starfsmanna
embættisins
verið kallaður
til yfirheyrslu
í tengslum við
rannsókn héraðs
saksóknara. Miklar deilur voru
innan embættisins í sumar, þar
á undan hafði verið mikið um
samskiptaörðugleika. Ólafur lét
af störfum sem lögreglustjóri á
Suðurnesjum í ágúst síðastliðnum
og tók hann við starfi sérfræðings í
dómsmálaráðuneytinu.
Sig ríður Á. Ander sen
fyrrverandi dóms mála ráð herra
sagði niður stöðu
yfir deildar Mann
réttinda dóm stóls
Evrópu í Lands
réttar málinu
vera pólitískt
at gegn sér. Allir
sautján dómarar
dómstólsins komust að þeirri
niðurstöðu í vikunni að íslenska
ríkið hefði brotið gegn ákvæði
Mannréttindasáttmálans þegar
dómarar sem ekki voru skipaðir
í samræmi við lög dæmdu mál í
Landsrétti. Sigríður var þá dóms
málaráðherra.
Ásmundur Einar Daðason
félags- og barnamálaráðherra
kynnti í tveimur
frumvörpum
fyrirhugaðar
breytingar á
barnaverndar
kerfi sem eiga að
tryggja samþætt
ingu þjónustu í þágu
farsældar barna. Þar er lagt til að
stofnaðar verði tvær nýjar stofn
anir þar sem rík á hersla verður á
þjónustu við börn og fjöl skyldur
þeirra. Unnið verður eftir sam
ræmdum mæli kvarða sem hjálpar
við að tryggja sam fellda þjónustu
sem hæfir börnum.
Þrjú í fréttum
Frumvörp, öt
og yfirheyrslur
Crowd1 að hreiðra um sig hér
Borið hefur á því að Íslendingar reyni að selja aðgang að Crowd1 sem BBC og fleiri lýsa sem píramída
svindli. Eigandi Hugbergs sf. sem leitaði að sölufólki þvertekur þó fyrir að Crowd1 sé píramídasvindl.
Crowd1 hefur mest verið beint að Afríkubúum og er starfsemin bönnuð í nokkrum ríkjum. SKJÁSKOT/YOUTUBE
ÞJÓNUSTUVERKSTÆÐI, VARA- OG AUKAHLUTAVERSLUN
Pallbílahús frá ARE á alla USA pallbíla
Varahlutaverslun ÍSBAND býður upp á gott úrval vara- og aukahluta og
íhluta til breytinga. Allir helstu varahlutir í okkar vörumerkjum eru til á
lager. Sérpöntum varahluti í aðra USA bíla.
Úrval af felgum fyrir
Jeep® og RAM
Upphækkunarsett
í Wrangler
Upphækkunarsett
í RAM
Falcon demparar
ÍSLENSK-BANDARÍSKA EHF • VERKSTÆÐI OG VARAHLUTAVERSLUN • SMIÐSHÖFÐA 5 • 110 REYKJAVÍK
SÍMI 590 2323 • THJONUSTA@ISBAND.IS • WWW.ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA KL. 07:45 - 18:00
ALMENNT BÍLAVERKSTÆÐI OG
SMURÞJÓNUSTA FYRIR ALLA BÍLA
ALLIR VINNA - ENDURGREIÐSLA VSK.
FIAT HÚSBÍLAR - ÁBYRGÐAR OG
ÞJÓNUSTUVERKSTÆÐI
BREYTINGAR Á JEEP®, RAM
OG ÖÐRUM USA PALLBÍLUM
ALLIR BÍLAR SÓTTHREINSAÐIR
STUTTUR BIÐTÍMI SÍMI 590 2323
UMBOÐSAÐILI
5 . D E S E M B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð