Fréttablaðið - 12.12.2020, Page 41

Fréttablaðið - 12.12.2020, Page 41
Femarelle vörurnar eru nátt-úruleg lausn fyrir konur sem finna fyrir einkennum vegna hormónabreytinga. Breytinga- skeiðið er eitthvað sem engin kona sleppur við. Einkennin geta verið afar mismunandi og sumar konur sleppa nokkuð vel og finna lítið fyrir breytingunum. Hvað er breytingaskeið Breytingaskeiðið hefst þegar eggjastokkar konunnar draga úr framleiðslu á kvenhormónum og að lokum hætta henni. Þetta hefst oftast þegar konur eru á bilinu 45-52 ára en þó eru mörg dæmi þess að þetta ferli byrji fyrr og jafnvel síðar. Á þessu skeiði kemst ójafnvægi á hormónana sem getur lýst sér á margvíslegan máta en þetta eru einkenni eins og: n Fyrirtíðaspenna, n óreglulegar blæðingar, n hitakóf og nætursviti, n svefntruflanir, n skapsveiflur, n þurr húð og minni teygjanleiki, n minni orka þreyta og slen, n pirringur, n aukinn hjartsláttur, n höfuðverkur, n minni kynlöngun, n kvíði og sorgartilfinning. Hormónar og beinþynning Beinþynning í tengslum við tíða- hvörf leiðir í mörgum tilfellum af sér beinbrot og er það talin alvarleg ógn í vestrænum þjóðfélögum þar sem meðalaldur fer sífellt hækk- andi. Fyrstu tvo áratugi ævinnar byggjum við upp beinin okkar og upp úr 30 ára aldri fer smám saman að draga úr beinþéttninni. Vegna minnkandi estrógenframleiðslu hjá konum eru þær mun útsettari fyrir beinþynningu heldur en karlar. Helsta innihaldsefnið í Femarelle kallast DT56a en þetta er efnasamband unnið úr óerfða- breyttu soya og viðurkenndar rannsóknir sýna að það örvar estrógennema í staðbundnum vef, slær á einkenni tíðahvarfa og eykur beinþéttni, án þess að hafa nokkur neikvæð áhrif á vef í móðurlífi eða brjóstum. Femarelle virkar! Halldóra Ósk Sveinsdóttir hefur fundið fyrir einkennum breytinga- skeiðsins í þó nokkur ár og hafa þau farið stigvaxandi með hækkandi aldri. Að lokum voru einkennin þó orðin þannig að ekki var lengur við unað. Hún hefur þetta að segja um Femarelle: „Þegar að því kom að ég vildi gera eitthvað í málunum, hugnaðist mér ekki að fara á horm- ónalyf svo ég frestaði alltaf að panta mér tíma hjá lækni. Einhvers staðar rakst ég á umfjöllun um náttúru- lega lausn sem var Femarelle og góðar reynslusögur af því. Ég ákvað að kaupa mér einn pakka og prufa, það gæti varla skaðað nokkuð. Eftir 7 til 10 daga inntöku samvisku- samlega kvölds og morgna, fór ég að finna mun. Líkamsofninn minn var farinn að kveikja á yfirhita í tíma og ótíma en það hætti alveg. Ég vaknaði 4 til 6 sinnum á nóttu vegna svita og almenns pirrings en sef núna mjög vel sem skilar sér í meiri orku og úthaldi. Fótapirring- ur sem hefur hrjáð mig í mjög mörg ár hefur einnig minnkað til mikilla muna. Þetta allt þakka ég Femarelle Recharge töflunum því ef ég á þær ekki til þá láta einkennin aftur á sér kræla. Þess vegna get ég sagt með góðri samvisku að Femarelle virkar. Fyrir konur frá 30 ára aldri Femarelle hefur aðstoðað margar konur sem finna fyrir einkennum breytingaskeiðs. Flestar eru sam- mála því að þær finna minna fyrir hitakófum, hafi jafnara skap, fái betri svefn ásamt því að finna mun á húð og hári. Femarelle vörurnar eru fáan- legar í þremur gerðum sem henta konum á mismunandi stigum tíðahvarfa en þau hefjast yfirleitt upp úr þrítugu þó svo að einkenna verði ekki vart strax. Svitakóf hurfu og svefninn batnaði Femarelle hefur hjálpað fjölda kvenna sem glíma við einkenni breytingaskeiðs. Halldóra Ósk Sveinsdóttir deilir með okkur reynslu sinni af bættum lífsgæðum eftir að hún prófaði Femarelle. Halldóra Ósk fann fljótt mun á sér eftir að hún fór að taka inn Femarelle. Eftir 7 til 10 daga inntöku samvisku- samlega kvölds og morgna, fór ég að finna mun. Svitakóf, pirringur, óreglulegur svefn og fótaóeirð heyrir nú sögunni til Halldóra Ósk Sveinsdóttir Magnesíum Sleep baðflögur Better You baðflögurnar innihalda steinefnið magnesíum klóríð ásamt ilmkjarnaolíunum lavender og kamillu sem geta hjálpað til við að undirbúa líkamann fyrir væran svefn. Baðflögurnar leysast auðveldlega upp í vatni og upptökum við steinefnið í gegnum húðina. Örugg og áhrifarík leið til að fylla á magnesíum birgðirnar. Við mælum með að bæta flögunum út í baðið, heita pottinn eða fara í magnesíum fótabað til að endurnæra líkamann eftir erfiðan dag. Magnesium sleep húðmjólk Better You húðmjólkin inniheldur steinefnið magnesíum sem stuðlar að því að draga úr þreytu og lúa ásamt því að stuðla að eðlilegri starfsemi taugakerfisins. Blandan inniheldur einnig lavender og kamillu sem geta hjálpað til við að undirbúa líkamann fyrir væran svefn. Við mælum með að bera á sig húðmjólkina fyrir svefninn. Magnesíum húðmjólkin smýgur auðveldlega inn í húðina og getur auðveldað líkamanum að ná slökun og þar af leiðandi betri svefngæðum til að endurnæra sig fyrir nýjan dag. Fæst í apótekum, heilsubúðum og stórmörkuðum. Magnesium Sleep Gefðu gjöf sem gefur! FÓLK KYNNINGARBLAÐ 3 L AU G A R DAG U R 1 2 . D E S E M B E R 2 0 2 0
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.