Fréttablaðið - 12.12.2020, Blaðsíða 50

Fréttablaðið - 12.12.2020, Blaðsíða 50
Jóhanna María Einarsdóttir johannamaria@frettabladid.is Gnægtahorn (lat. cornu copiae, e. Cornucopia) er ein elsta gjafakarfan sem finna má í þekktum sögnum, en um er að ræða lúðurlaga form yfirfullt af ferskmeti, blómum eða hnetum. Gnægtahornið er þekkt tákn í klassískri fornöld og var, eins og nafnið gefur til kynna, merki um ofgnótt og næringu. Körfur eða klyfjatöskur af þessari gerð voru notaðar til forna í Vestur-Asíu og Evrópu til þess að ferja nýtínda uppskeru og matarafurðir. Formið var hentugt að því leyti að hægt var að smeygja körfunni utan um sig og voru hendurnar því lausar til tínslu. Allsnægtastrákur Grikkir útskýrðu uppruna gnægtahornsins með goðsögnum, en eitt best þekkta dæmið um slíkt finnst í sögunni um Seif þegar hann var ungbarn. Hvít- voðungnum hafði verið naumlega forðað frá Krónosi föður sínum rétt áður en hann lenti í gini hans með systkinum sínum. Seifur var falinn í helli á eyjunni Krít þar sem vel var séð um hann. Geitin Amal- thea gaf honum mjólk að sjúga af spena. Þessi verðandi konungur guðanna bjó yfir miklum styrk og eitt sinn þegar hann lék við geitina tókst honum að brjóta eitt hornið af henni. Hornið var gætt þeim töfrandi eiginleika að geta séð fyrir óendanlegu magni af nær- ingu, líkt og geitin fyrir guðinn. Gnægtahornið varð að tákni fyrir ýmis grísk og rómversk goð- mögn sem tengdust uppskeru og ríkidæmi sem og persónugervinga jarðarinnar eins og Gaiu og Terru. Goðmögn eins og Plútus, guð ríki- dæmis; korngyðjan Demeter; dísin Maia og Fortúna, lukkugyðjan sjálf, gátu öll stuðlað að velmegun og hafa oft verið sýnd með gnægta- horn í fórum sér í listasögunni. Sama á við um ýmsa aðra guði og gyðjur. Gnægtahornarmótífið var eins og frægt er orðið, notað í bókunum um Hungurleikana, en aðalsögu- þráður bókanna snýst um raun- veruleikaþátt þar sem keppendum er komið fyrir í lokuðu umhverfi og ráða hvern annan af dögum uns einn stendur eftir sem sigurvegari. Leikurinn hefst í sérstöku rými fullu af vopnum og verkfærum. Keppendum er komið þar fyrir og byrjar leikurinn oftast þannig að þátttakendur keppast við að næla sér í vopn og drepa hver annan. Rýmið nefnist því kaldhæðnis- lega nafni „Gnægtahornið“ enda frekar þversagnakennt að tengja allsnægtir við eitthvað sem drepur í stað þess að næra. Frægasta gjafakarfa Evrópu Í ævintýrinu um Rauðhettu litlu kemur fram annars konar gnægtahorn, í formi gjafakörfu. Biður móðir Rauðhettu hana um að skottast til ömmu sinnar með körfu fulla af hollum mat. Þekktasta útgáfan var rituð á bók af Charles Perrault og síðar bættu Grimmsbræður sögunni við safnið sitt. Meðal krása í körfu Rauðhettu mátti finna osta, brauð, jarðarber úr garðinum, köku sem móðir Rauðhettu bakaði og svo var þar að sjálfsögðu vínflaska. Þessar kræsingar munu hafa verið ömmu Rauðhettu að skapi en þær freistuðu ekki verunnar í rúminu hennar ömmu. Rauðhetta undrar sig á útlitsbreytingum ömmu sinnar og spyr hana hvers vegna röddin sé svo djúp, hví augun og eyrun hefðu stækkað svo, af hverju hendurnar séu svo hramma- legar og hvernig standi á því að munnurinn sé svo stór. Amman hefur svör á reiðum höndum við hverri spurningu, lýkur samtalinu á því að gleypa Rauðhettu í heilu lagi og hunsar gjafakörfuna með víninu góða. Af þessu má væntan- lega draga þann lærdóm að til þess að hitta í mark með gjafakörfu þá sé best að hugsa vel um hver viðtakandi gjafakörfunnar er. Það þýðir lítt að bjóða úlfi vín líkt og það myndi seint hitta í mark að lauma tvíreyktum hangikjötsbita að veganista. Jötunn og Rauðhetta Þess má geta að hliðstæðu samtals Rauðhettu og úlfsins áður en hún verður sjálf ásamt ömmunni, að eins konar gjafakörfu eða gnægta- horni fyrir úlfinn, má finna í hinni Norrænu Þrymskviðu. Jötuninn Þrymur hafði rænt Þórshamri og krefst þess að fá að kvænast Freyju hinni fögru gegn því að skila hamrinum. Guðirnir sættast á þessi skipti en Freyja mótmælir harkalega þessum skiptasamningi. Því taka guðirnir upp á því að klæða Þór upp sem gyðjuna Freyju og senda hann á fund Þryms. Þegar jötunninn lítur Þór augum í dulargervi Freyju furðar hann sig á því hvers vegna augu hennar séu svo ókvenleg og hvernig standi á því að hún éti svo mikið og drekki. Þá svarar Loki því að Freyja hafi hvorki sofið, étið eða drukkið vegna þess hve spennt hún sé fyrir brúðkaupinu. Gnægtahorn og hungraðir úlfar Gjafakörfur birtast víða í menningarsögunni, allt frá gnægtahorni Seifs í forngrískum goðsögum til Ávaxtakörfunnar á leikhúsfjölum nútímans. Þá er ljóst að gjafakörfur fara seint úr tísku. „En mikil ósköp ert þú með stóran munn amma mín.“ FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY. Ekki gefa bara eitthvað, gefðu frekar hvað sem er. Með gjafakorti Landsbankans er ekkert mál að velja réttu jólagjöfina. Þú ákveður upp- hæðina og sá sem þiggur velur gjöfina. Þú færð gjafakortið á landsbankinn.is/gjafakort. landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn 4 KYNNINGARBLAÐ 1 2 . D E S E M B E R 2 0 2 0 L AU G A R DAG U RGJAFAKÖRFUR & GJAFAKORT
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.