Fréttablaðið - 12.12.2020, Blaðsíða 44
Í Kína eru sæbjúgu þekkt sem heilsubótarfæði og notuð til bóta við hinum ýmsu meinum.
Kínverjar kalla sæbjúgu gjarnan
„ginseng hafsins“ og til eru sagnir
um notkun sæbjúgna þar fyrir
meira en þúsund árum. Arctic
Star sæbjúgnahylkin innihalda
yfir fimmtíu tegundir af nær-
ingarefnum sem geta haft jákvæð
áhrif á lífeðlisfræðilega starfsemi
mannslíkamans, til dæmis er
mikið kollagen í þeim, en það er
eitt helsta uppbyggingarprótein
líkamans.
Finnur mikinn mun á sér
Á síðustu árum hefur Arctic
Star sérhæft sig í þróun á fæðu-
bótarefnum, svo sem framleiðslu,
markaðssetningu og sölu á hágæða
sæbjúgnahylkjum. Hylkin eru
framleidd úr íslenskum, hágæða,
villtum sæbjúgum sem eru veidd í
Atlantshafinu.
Magnús Friðbergsson hefur
tekið sæbjúgnahylkin frá Arctic
Star undanfarin ár. „Vinur minn
kynnti mig fyrir sæbjúgnahylkj-
unum og þar sem ég hafði lengi
verið slæmur í hnjám, með liðverki
og lítið getað beitt mér, ákvað ég að
prófa. Tveimur til þremur vikum
seinna fann ég mikinn mun.
Nú hef ég tekið sæbjúgnahylkin í
tvö ár og fer allra minna ferða án
óþæginda. Það er algjör bylting
frá því sem áður var. Nú get ég
gert hluti eins og að fara í langar
gönguferðir, sem ég gat varla gert
áður. Að minnsta kosti gerði ég
það ekki með bros á vör og það tók
mig langan tíma að jafna mig eftir
álag,“ útskýrir hann. Magnús, sem
er 71 árs, hafði fengið að heyra frá
lækni að mikið slit væri í hnjám
hans og ekki væri von á að það
gengi til baka. „Hann sagði mér að
kíkja á fæðingardaginn minn og að
ég gæti ekki búist við að fara aftur
í tíma. Mér fannst vont að heyra
þetta og var því tilbúinn að prófa
ýmislegt sem gæti mögulega lagað
þetta. Sæbjúgnahylkin frá Arctic
Star virka mjög vel á mig og ég
mæli með að fólk prófi þau.“
Framleiðandi sæbjúgna er Arctic
Star ehf. Allar nánari upplýsingar
fást á arcticstar.is.
Arctic Star sæbjúgnahylki fást í
flestum apótekum, heilsubúðum,
í Hagkaupum og í Fjarðarkaup.
Sæbjúgnahylkin eru bylting
Magnús Friðbergsson mælir með sæbjúgnahylkjum frá Arctic Star, en hann finnur mun á sér
eftir að hann fór að nota þau. Sæbjúgu innihalda yfir fimmtíu tegundir af næringarefnum.
Magnús er betri í hnjám og finnur
minna fyrir liðverkjum eftir að
hann fór að taka sæbjúgnahylkin.
Hylkin eru nú komin í nýjar um-
búðir eins og sjá má á myndinni.
Afmælisbarn dagsins er eng-inn annar en Frank Sinatra (12. desember, 1915-14. maí,
1998) en um er að ræða vinsælasta
tónlistarmann 20. aldarinnar. Þá
hafa selst yfir 150 milljón platna
með honum á heimsvísu sem gerir
hann að einum mest selda tón-
listarmanni allra tíma.
Þriðja stúdíóplata Sinatra er
líklega sú sem flestir tengja við
söngvarann og leikarann, en það
er platan Christmas Songs by
Sinatra. Platan kom út árið 1948 og
innihélt átta jólalög: Silent Night,
Adeste Fideles, White Christ-
mas, Jingle Bells, Little Town of
Bethlehem, It Came Upon a Mid-
night Clear, Have Yourself a Merry
Little Christmas og Santa Claus
is Comin' to Town. Nú má bóka
að einhverjir lesendur séu þegar
komnir með einhvern af þessum
hátíðlegu söngvum á heilann og
dragi jafnvel seiminn í röddinni,
eins og honum einum var lagið, í
huganum.
Sinatra varð að eins konar fyrir-
mynd fyrir hinn harðgerða ítalsk-
bandaríska verkamann. Þrátt fyrir
fjölskyldutengsl sín inn í ítölsku
mafíuna þá neitaði hann því ávallt
að hann væri viðriðinn skipulagða
glæpastarfsemi, eða eins og hann
orðar það: „Þær fregnir um að ég sé
í bræðralagi með ribböldum eða
fjárglæframönnum eru illkvittnar
lygasögur.” Haft var þó eftir
honum að ef ekki hefði verið fyrir
áhuga hans á tónlist, þá hefði hann
líklegast fetað glæpaveginn.
Frank Sinatra átti skrautlegt
ástarlíf og á árunum 1951-1957 var
hann í stormasömu hjónabandi
með Hollywoodstjörnunni Övu
Gardner. Ári síðar sleit hann trú-
lofun við Lauren Ball og 1962 við
Juliet Powse. Í júlí 1966 kvæntist
hann Miu Farrow og lauk því
hjónabandi í Mexíkó í ágúst 1968.
Árið 1976 kvæntist hann Barböru
Marx og stóð það hjónaband uns
Sinatra lést árið 1998.
Engin eru jólin
án Franks
Frank Sinatra var rómaður fyrir
heillandi bros sitt og fallegu bláu
augun enda var hann oft kallaður
“Ol’ blue eyes“. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY.
Haft var þó eftir
honum að ef ekki
hefði verið fyrir áhuga
hans á tónlist, þá hefði
hann líklegast fetað
glæpaveginn.
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 2 . D E S E M B E R 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R