Fréttablaðið - 12.12.2020, Blaðsíða 80
Sandra Guðrún
Guðmundsdóttir
sandragudrun@frettabladid.is
Fyrir marga er það árleg hefð að fylgjast með jólalestinni en sögu hennar má rekja til árs-
ins 1995. Fyrsta jólalestin var ekki
alvöru lest heldur var hún hluti af
vel heppnaðri auglýsingaherferð
Coca-Cola undir nafninu Holidays
are Coming, eða hátíðirnar nálg-
ast. Í auglýsingunni sem gerð var
af amerísku auglýsingastofunni W.
B. Doner var tæknibrellum beitt til
að láta þrjá risatrukka líta út eins
og langa lest af ljósum skreyttum
trukkum, á hverjum trukk voru
yfir 30.000 ljósaperur. Í aug-
lýsingunni sést trukkalestin keyra
yfir hæðir og dali og í gegnum
snæviþakta skóga í gegnum bæ
þar sem fólk flykkist að til að berja
dýrðina augum. Auglýsingin endar
þegar sést aftan á einn trukkinn
þar sem er mynd af jólasveininum
haldandi á kókflösku. Hann tekur
sopa og blikkar feðga sem horfa
hugfangnir á dýrðina.
Fyrirtækið sem sá um tækni-
brellurnar í auglýsingunni er sama
fyrirtæki og hefur búið til tækni-
brellur í Stjörnustríðsmyndunum
svo það er ekki að undra að þær
hafi komið vel út. Það er greinilegt
að ekkert var til sparað við gerð
auglýsingarinnar.
Í framhaldi af þessari aug-
lýsingu voru gerðar fleiri aug-
lýsingar næstu jól um ferðalag
jólalestarinnar en auglýsingarnar
voru sýndar í yfir 100 löndum og
milljónir manna fylgdust með.
Það var svo sex árum seinna,
árið 2001, sem auglýsingin svo að
segja lifnaði við, en þá fór fyrsta
ljósum prýdda raunverulega
trukkalestin á ferðalag um Banda-
ríkin og heimsótti þar borgir og
bæi, í kjölfarið fylgdi fjöldi ann-
arra landa. Að fylgjast með jólalest
Coca-Cola er nú orðið að árlegri
hefð hjá fólki víða um heim.
Rauði búningurinn
Coca-Cola fyrirtækið hefur
reyndar haft meiri áhrif á jólasiði
og venjur fólks en marga grunar. Í
ár fagnar fyrirtækið því að 100 ár
eru liðin frá því að fyrsta jólaaug-
lýsingin frá því var birt. Því er oft
haldið fram að Coca-Cola beri
ábyrgð á rauðum lit jólasveina-
búningsins, en hið rétta er að
myndir af jólasveini í rauðum
búningi með hvítt skegg birtist
fyrst í blaðinu Harper‘s Bazaar
árið 1881, 40 árum áður en Had-
don Sundblom teiknaði hann í
rauðum fötum í jólaauglýsingu
Coca-Cola. En það er þó Coca-
Cola auglýsingunni að þakka að
rauði búningurinn festist í sessi í
Bandaríkjunum, þaðan sem hann
hefur svo smitast yfir til jóla-
sveina annars staðar í heiminum.
En fram að þeim tíma sem Coca-
Cola frumsýndi sinn rauðklædda,
glaðlega, skeggjaða jólasvein var
allur gangur á því í hvernig litum
fötum og formi hann var teikn-
aður.
Jólalest Coca-Cola keyrir sinn
árlega hring um höfuðborgar-
svæðið í dag og leggur af stað
klukkan 17.00. Jólalestin verður
þó með breyttu sniði í ár. Vegna
samkomutakmarkana mun Jóla-
lestin ekki stoppa á auglýstum
stöðum eins og hún hefur gert
fyrri ár en það er gert til að tak-
marka fjölda fólks sem kemur
saman. Á jólalestin.is er hægt að
fylgjast með lestinni og sjá hve-
nær hún verður á hverjum stað.
Svart gos kemur með jólin
Coca-Cola á stóran þátt í jólahefðum fólks um allan heim hvort sem því líkar betur eða verr. 100
ár eru liðin frá því fyrsta kók-jólaauglýsingin birtist og 25 ár frá því að jólalestin ók fyrst af stað.
Að fylgjast með jólalestinni er orðin árleg hefð hjá fólki víða um heiminn.
Jólasveinn í
rauðum búningi
er ekki upphaf-
lega hugmynd
Coca-Cola eins
og svo margir
halda. MYNDIR/
AÐSENDAR
Fyrirtækið sem sá
um tæknibrellurnar
í auglýsingunni er sama
fyrirtæki og hefur búið
til tæknibrellur í
Stjörnustríðsmynd-
unum svo það er ekki að
undra að þær hafi komið
vel út.
14 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 2 . D E S E M B E R 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R