Fréttablaðið - 12.12.2020, Blaðsíða 32
ÞAÐ HEFUR LÍKA SKAPAST
SÚ HEFÐ HJÁ OKKUR
HJÓNUM AÐ HAFA NÝ-
BAKAÐ BAGUETTE, OSTA,
ÓLÍFUR OG GRAFLAX Í
BRÖNS Á AÐFANGADAGS-
MORGUN EÐA -HÁDEGI.
Ma r ía seg ist í d ag aða l leg a upplifa jólin í gegnum börnin sín. „Sem barni fannst mér heil
eilífð líða á milli jóla og tilhlökkun-
in því mikil. Þá var ekki jólaskreytt
fyrr en í fyrsta lagi á aðventunni og
jólatréð sett upp á Þorláksmessu. Á
fullorðinsárum finnst mér nánast
vera komin jól aftur þegar maður er
nýbúinn að taka niður jólaskrautið.
Tíminn líður líka svo hratt svo mér
finnst alltaf vera jól. Núna upplifi
ég jólin meira í gegnum börnin mín
og gegnum þeirra tilhlökkun og
spennu.“
Hvernig jólaskrauti skreytirðu
með?
„Ég er alltaf að láta mig dreyma
um að kaupa mér jólaskraut sem er
tímalaust og látlaust og þar sem allt
er í stíl. Þegar ég ætla svo að ráðast
í að skipta þessu út guggna ég alltaf
þar sem skrautið er farið að hafa til-
finningalegt gildi fyrir mig og alla
fjölskylduna. Það er allt hvert úr
sinni áttinni, rautt, gyllt, kremað
og bara nefndu það, svo það er bara
hist og her stemning í mínu skrauti,“
segir María sem var rétt að byrja að
skreyta þegar ljósmyndara Frétta-
blaðsins bar að garði og enn var
stemningin frekar látlaus á miðri
aðventu og lítið fór fyrir því sem
hún hér lýsir.
Hvaða hefð er ómissandi?
„Það er að baka engiferkökurnar
hennar tengdó, sykurpúðasalat með
hamborgarhryggnum og svo jóla-
maturinn sjálfur þar sem engu má
breyta barnanna vegna.“
Hvað borðið þið á aðfangadag?
„ Það er a l lt a f ha mborga r-
hryggur og sykurgljáðar kartöf lur
og sykurpúðasalat á aðfangadag.
Það hefur líka skapast sú hefð hjá
okkur hjónum að hafa nýbakað
baguette, osta, ólífur og graf lax í
bröns á aðfangadagsmorgun eða
-hádegi.“
Arroz con Leche
spænskur spari grjónagrautur
María heldur úti vefsíðunni paz.is
þar sem hún birtir reglulega girni-
legar uppskriftir. Þar sem María
á ættir að rekja til Spánar slæðast
oft spænsk áhrif með og fengum
við hana til að deila með lesendum
spænskum spari grjónagraut sem á
vel við á jólum.
„Arroz con Leche er í miklu
uppáhaldi hjá mér, en það er
spænskur grjónagrautur í ætt við
möndlugraut eða rísmjólk, nema
mér finnst þessi svo mikið betri.
Á Spáni er Arroz con leche ekkert
sérstaklega tengt jólunum en það
er meira notað sem eftirréttur og
er grauturinn borðaður kaldur.
Þar sem grauturinn er mjög sætur
er hann eingöngu kryddaður með
kanil en ekki kanilsykri. Ég mæli
með að þið prófið að gera hann á
aðventunni og ég lofa að krakk-
arnir munu líka elska hann.“
Upplifir jólin í
gegnum börnin sín
Sælkerinn og fagurkerinn María Gomez lætur sig reglulega
dreyma um að skipta út öllu jólaskrauti sínu og kaupa allt í stíl
en guggnar alltaf enda skrautið farið að hafa tilfinningalegt gildi.
Stílhreint og látlaust jólaborð að
hætti Maríu Gomez.
María ver töluverðum tíma í fallegu stílhreinu eldhúsinu.
Spænski spari-
grauturinn og
heita súkku-
laðið sómir
sér vel í fallegu
Mumin-stellinu.
MYND/MARÍA
GOMEZ
Fjölskyldan
festi nýverið
kaup á húsi í
Garðabænum
sem þau gerðu
upp að miklu
leyti. Þessi
fallegi arinn
mun sannarlega
verða nýttur
um jólin. MYND/
MARÍA GOMEZ
Fallegu jóla-
skrauti raðað
saman ofan á
stofuskápinn.
Arroz con leche er spænskur sparigrautur og tilvalinn á aðventu eða jólum.
Arroz con leche
Uppskrift fyrir fjóra
n 150 g grjón (best að nota stór
og feit grjón eins og notuð eru
í risotto)
n 300-400 g vatn
n ½ tsk. salt
n 1 dós niðursoðin mjólk
(Condensed milk, fæst í Kína-
deild verslana)
n 7-8 dl nýmjólk
n ½ tsk. vanilludropar
n 2 ræmur af appelsínuberki
(ekki raspa heldur skræla 2x10
cm ræmur og sem minnst af
hvíta partinum undir)
n 1 ræma sítrónubörkur (ekki
raspa heldur skræla)
n 1 stk. kanilstöng
n Hreinn kanill (ekki kanilsykur)
Byrjið á að sjóða grjónin með
vatni og salti í sirka 15-20 mínútur
eða þar til allt vatn er gufað upp.
Bætið þá allri mjólkinni og van-
illudropum út í og hrærið saman.
Skrælið svo börkinn af appels-
ínu og sítrónu í eins og sirka 10
sentímetra ræmur og setjið út í
(börkurinn er hafður heill en ekki
raspaður því hann er svo veiddur
upp úr og honum hent).
Setjið á sama tíma kanilstöng-
ina með og látið byrja að sjóða
við lágan til meðalhita.
Hrærið í mjög reglulega á
meðan suðan er að koma upp
svo brenni ekki við botninn á
pottinum og lækkið svo hitann
þegar suðan er komin upp.
Sjóðið í 40-50 mínútur eða þar
til grjónin eru vel mjúk og passið
að hræra reglulega í, á meðan.
Að suðutíma liðnum eru
börkur og kanilstöng veidd upp
úr með gaffli og hent. Skammtið
graut í fallegar desertskálar og
látið kólna uppi á borði.
Setjið þá tóman kanil í þunnu
lagi og alls ekki of mikið yfir
grautinn og kælið í ísskáp.
Grautinn má líka borða eftir
að hafa kólnað við stofuhita en
þannig eða úr kæli er hann lang-
bestur.
Björk
Eiðsdóttir
bjork@frettabladid.is
1 2 . D E S E M B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R32 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð