Fréttablaðið - 12.12.2020, Qupperneq 46
arsdóttir, Brynja Hjálmsdóttir,
Brynj ar Jóhannesson, Brynjólfur
Þorsteinsson, Efe Duyan, Eiríkur
Örn Norðdahl, Fríða Ísberg, Gígja
Jónsdóttir, Kristín Eiríksdóttir,
Kristín Ómarsdóttir, Kristín Svava
Tómasdóttir, Luke Allan, Max
Hoefler, Morten Langeland, Ragnar
Helgi Ólafsson, Robert Currie og
Sigurður Ámundason.
Ásta segist strax vera farin að
hlakka til að bjóða fólki að vera
með á næsta ári. „Þetta er tilvalið
tækifæri til að fanga nýstár lega
strauma í íslenskri ljóðlist og tengja
við það sem er í gangi í erlendri
ljóðasenu. Hér er svo margt spenn
andi að gerast eins og svikaskáldin,
skriðuskáld in, alls konar tímarit og
blogg um ljóðlist, ný útgáfufyrir
tæki og ég finn að ritlistin í Háskól
anum hefur haft mikil áhrif.“
Ljóðið er vatn
Suttungur átti upphaflega að fara
fram í Mengi en plönin breytt
ust vegna faraldursins. „Það var
spurning um að breyta eða fresta.
En það er einmitt á svona tímum
þegar faraldur geisar sem við
þurfum á svona að halda, fólk er
fast heima og má ekki hitta neinn.
Þá er skáldskapur og ljóð besta
meðalið. Mér finnst svo fallegt að
heyra skáld lesa upp ljóðin sín.
Hvert hljómfall, hver tilfinning,
hvert orð flæðir beint úr uppsprett
unni! Það er verið að hella orðum
á þessari hátíð, úr lindinni, það er
verið að gefa fólki vatn að drekka,
vatnið er ljóð og ljóðið er vatn fyrir
þyrstar sálir.“
Ég er bara gangavörður
Ásta fékk með sér nokkra góða
aðila til að láta ljóðadrauminn
verða að veruleika. Donna Her
mannsdóttir sér um forritun og
heimasíðugerð og streymi, Anna
Pawlowska um hönnun og Sig
mann Þórðarson um kynningar
mál. „Ég er sjálf framkvæmdastjóri
eða eins konar listrænn stjórnandi.
Það er samt svo skrítið að hugsa til
þess að einhver sé að stýra, því það
er ekki hægt að stýra listinni, ég er
ekki að stýra neinu, þetta er ekki
skip. Þetta er planta og ég er bara
að sjá um hana, gefa henni vatn. Í
raun er ég gangavörður. Passa að
allir fari út í frímínútur og fái ferskt
loft, það er það sem þessi hátíð er,
ferskt loft.“
Netheimar og framtíð ljóða
Ásta bindur vonir við að Suttungur
fái að eiga sér stað aftur á næsta ári.
„En það fer eftir því hvernig hátíðin
leggst í fólk og hvort að ríkisstjórn
og sjóðir sjái verðmæti í því að
skapa nýjan vettvang fyrir list og
ljóð. Við eigum Miðstöð íslenskra
bókmennta mikið að þakka að
styðja við hátíðina. Það er tímabært
að við stofnum nýja alþjóðlega
ljóðahátíð hér. Ég man hvað nýhil
ljóðahátíðirnar höfðu breið áhrif
á ljóðasenuna og þó svo þær hafi
verið öðruvísi en þessi hátíð, þá
vonar maður að Suttungur kveiki
einhverja elda, ef ekki nema til þess
að fólk finni til kennda að stofna
fleiri og betri ljóðahátíðir en þessa
og við verðum rík hér af hátíðum.“
Suttungur
Nafnið á ljóðahátíðinni kemur úr
norrænni goðafræði. Jötunn að
nafni Suttungur bjó í fjalli og faldi
þar skáldamjöð. Óðinn heyrði af
því, breytti sér í snák, tældi tröll
konu, stal miðinum og flaug burt
sem örn. „Þetta er svo fáranleg og
fyndin hetjusaga, algjört James
Bond í bland við Marvel. En það er
fallegt að hugsa til þess að skálda
mjöðurinn sé falinn inni í fjalli. Ég
hugsa að öll ljóð séu á einhvern hátt
falin í fjöllum, og það er okkar að
beita klækjum, ná í þau og fljúga
með þau út í heiminn.“ Þess má
geta að myndböndin fá að lifa ein
hverju lengur en þann tíma sem
hver flutningur tekur svo ef fólk
hefur ekki tök á að fylgjast með
frá upphafi þá er hægt að komast í
efnið síðar.
Ég beið lengi og ímyndaði mér hver væri í aðstöðu til þess að skapa svona vettvang.
Viðkomandi þyrfti að þekkja til
ljóða hátíða og vera nógu fífldjarfur
til að halda að svona ljóðahátíð
myndi virka. Svo rann það upp
fyrir mér að það var einmitt ég sem
væri þessi manneskja,“ segir Ásta,
sem stendur fyrir nýrri alþjóðlegri
ljóðahátíð sem nefnist Suttungur
og fer nú fram í fyrsta sinn klukkan
fimm í dag á vefsíðunni suttungur.
com.
Listinn endalausi
Ásta setti saman lista af fólki sem
hún vildi sjá. „Listinn var svo
langur að ljóðahátíðin hefði líklega
tekið svona tvo mánuði í flutningi.
Ég skipti hon um því niður í holl, og
á laugardaginn kemur fyrsta hollið
fram, en það eru tuttugu listamenn
og ljóðskáld.“
Að þessu sinni taka lista menn
einnig þátt í ljóðahátíðinni en allir
tengj ast ljóðinu á einhvern hátt,
hafa gefið út ljóðabækur eða gert
ljóðagjörninga. Suttungur er vett
vangur fyrir tilraunir með mynd
bandsljóð eða gjörninga. „Þetta
eru myndbönd í öllum lengdum,
allt frá 30 sekúndum upp í tíu
mínút ur. Sumir gera tilraunir með
gjörninga, hljóð eða sjónrænt efni
og aðrir lesa upp heima í stofu.“
Þátttakendur í ár eru þau: Aless
andro Burbank, Ang ela Rawlings,
Anne Carson, Ásdís Sif Gunn
Þetta er svo fárán
leg og fyndin
hetjusaga, algjört James
Bond í bland við Marvel.
En það er fallegt að
hugsa til þess að skálda
mjöðurinn sé falinn inni
í fjalli.
Ásta Fanney Sigurðardóttir
Listinn var svo
langur að ljóðahá
tíðin hefði líklega tekið
svona tvo mánuði í
f lutningi.
Ásta Fanney Sigurðardóttir
Rafmagnsgítar Rafmagnsbassi Klassískur gítar KassabassiKassagítar Gítarbanjó
Fiðla
26.900
Heyrnartól
Míkrafónar
í úrvali
Þráðlaus míkrafónn
Gítarinn ehf
Stórhöfða 27 • 110 Reykjavík • S. 552 2125 • gitarinn@gitarinn.is • www.gitarinn.is
Hljómborð í úrvali
Ukulele
Kajun tromma
í úrvali
Jólagjafir
Gítarmagnari
fyrir rafmagnsgítara
Magnari fyrir kassagítar
og míkrafón
Kassagítarar
á tilboði
Hljómborð
á tilboði
OPIÐ ALLA DAGA TIL JÓLA
LAUGARDAG OG SUNNUDAG
11 TIL 15
Ljóðin eru falin inni í fjöllunum
Skáldkonan og listakonan Ásta Fanney Sigurðardóttir hafði lengi beðið eftir því að einhver tæki
sig til og stofnaði spennandi alþjóðlega ljóðahátíð sem fagnaði fjölbreytileika ljóðsins í dag.
Ásta Fanney hefur lengi verið bendluð við framúrstefnu og stendur nú fyrir
alþjóðlegri ljóðahátíð kl. 17 í dag í netheimum. FRÉTTABLAÐIÐ/ ERNIR.
Jóhanna María
Einarsdóttir
johannamaria@frettabladid.is
8 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 2 . D E S E M B E R 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R