Fréttablaðið - 12.12.2020, Page 48

Fréttablaðið - 12.12.2020, Page 48
Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Björn Víglundsson Sölumaður auglýsinga: Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Óskaskrín er 10 ára gamalt fyrirtæki en fyrstu Óska-skrínin voru kynnt til sög- unnar árið 2011. Óskaskrín hefur hannað og þróað þemabundnar gjafaöskjur eða gjafakort, sem virka þannig að sá sem eignast Óskaskrín getur valið úr fjölda ólíkra upplifana,“ segir Hrönn Bjarnadóttir sölu- og markaðs- stjóri Óskaskríns. Fjölbreytt og einfalt Úrval valkosta er fjölbreytt og hægt að velja á milli ólíkra þema. „Þannig er Gourmet Óskaskrín sem hefur að geyma úrval veit- ingastaða sem hægt er að velja úr og borða dýrindis veislu. Í Róman- tík er boðið upp á gistinótt á fjölda hótela með kvöldmat og morgun- mat víða um land. Í Dekurstund er boðið upp á margar mismunandi dekurmeðferðir. Samtals erum við með 19 mismunandi Óskaskrín auk fjögurra tegunda af fyrir- tækjaöskjum,“ útskýrir Hrönn. „Sá sem fær Óskaskrín að gjöf velur einn af valmöguleikum sem í boði eru, bókar sína upplifun hjá þjónustuaðilanum, mætir svo á staðinn og greiðir með því að afhenda gjafakortið við komu á hótelið, á veitingastaðinn, á snyrtistofuna eða allt í takt við þá tegund af Óskaskríni sem við- takandinn fékk að gjöf.“ Hrönn segir mikinn metnað lagðan í að velja inn þau fyrir- tæki sem veiti þjónustuna og að viðskiptavinir geti því treyst á að upplifunin verði eins og best verður á kosið. „Við veljum sam- starfsaðila okkar af mikilli kost- gæfni því við viljum vera örugg um að handhafi Óskaskríns fái ætíð góðar viðtökur þegar hann mætir til að njóta þess sem hann á von á. Við erum líka ótrúlega stolt af því að segja frá því að upp- lifun korthafa er nánast undan- tekningarlaust góð og samstarf okkar við samstarfsaðila sem eru veitingastaðir, hótel, snyrtistofur, alls kyns aðilar í ferðaþjónustu og f leiri, er mjög gott.“ Fallegar minningar Sérstaða Óskaskríns er hin mikla fjölbreytni og hið mikla val sem handhafi öskjunnar hefur. „Óska- skrín er ekki eins og hefðbundið gjafakort sem gildir einungis á einn tiltekinn stað. Óskaskrín er hægt að nota á mörgum stöðum og er því ólíkt öllu því sem er í boði á markaðnum. Við höfum líka bent á að þó svo að einn eða f leiri staðir loki þá sjáum við til þess að ætíð séu til staðar margir valkostir að velja úr. Það er því ákveðin áhættudreifing í því fólgin að gefa Óskaskrín. Gjafakort frá Óska- skríni verður aldrei verðlaust þó svo að einhverjir heltist úr lestinni.“ Vegna þeirra ótal valmögu- leika sem í boði eru hentar gjöfin breiðum hópi fólks. „Óskaskrín er frábær gjöf þar sem hún hentar öllum, ungum sem eldri, Íslend- ingum og útlendingum, pörum og einstaklingum, konum og körlum. Úrvalið er fjölbreytt og upplif- anir ólíkar og eigandi Óskaskríns hefur mikið um það að segja hvað hann vill upplifa. Óskaskrín er svo auðvitað mjög umhverfisvæn og eftirminnileg gjöf.“ Þá hefur gjöf af þessu tagi sérstaka þýðingu á tímum sem þessum. „Að gefa Óskaskrín tónar líka mjög vel við ástandið í dag með hvatningunni um að ferðast innanlands og styrkja við bakið á íslenskum fyrirtækjum. Með því að gefa Óskaskrín ertu þannig að styðja við bakið á veitinga- stöðum, hótelum, snyrtistofum og fyrirtækjum í ferðaþjónustu sem mörg hver eru að berjast í bökkum vegna ástandsins í þjóðfélaginu. Með Óskaskríni ertu að gefa upp- lifun, upplifun sem á að skilja eftir sig fallegar minningar um stund og stað og hlýlegar hugsanir til þeirra sem færðu þér gjöfina.“ Gjöf sem klikkar ekki Hrönn segir öll Óskaskrínin seljast vel og hafa þau enn fremur notið mikilla vinsælda sem gjafir frá fyrirtækjum til starfsfólks. „Gourmet hefur lengi selst mjög vel sem og dekurskrínin. Glaðn- ingur fyrir tvo og Rómantík eru einnig mjög vinsæl skrín sem og Bröns fyrir tvo sem kom á markað hjá okkur fyrir rösku ári síðan. Fyrirtæki hafa svo verið að auka það mjög að gefa Óskaskrín til jólagjafa og alls konar tækifæris- gjafa.“ Fyrirtæki eiga þá kost á að fá Óskaskrín sem eru sérstaklega sniðin að þeirra hugmyndum og þörfum. „Við erum búin að útbúa sérstök Óskaskrín fyrir fyrirtæki þar sem búið er að blanda saman upplifunum úr ólíkum öskjum og búið þannig til pakka sem hentar pottþétt mjög ólíkum hópi starfsmanna. Við sérmerkjum líka öskjur fyrir fyrirtæki til dæmis með lógó og lit fyrirtækja og með sérstökum kveðjum. Í raun er það bara hugmyndaflugið sem er takmarkandi þáttur í því. Þessar gjafir njóta mjög mikilla vin- sælda,“ segir Hrönn. „Við mælum með því að gefa Óskaskrín í jólagjöf. Segjum bara að það sé gjöf sem geti ekki klikk- að. Að Óskaskrín henti öllum. Við höfum líka verið að benda á að sumaröskjurnar okkar eins og Keila, Bröns fyrir tvo og Burger fyrir tvo eru frábærar möndlu- gjafir – gjöfin sem gleymist alltaf að kaupa!“ Hægt er að nálgast Óskaskrín á vefnum, í völdum verslunum og Kringlunni. „Óskaskrín eru seld í öllum verslunum Pennans Eymundsson og verslunum Hag- kaups og svo líka á vefnum okkar, oskaskrin.is Við bjóðum upp á heimsendingu innan 24 klst. og svo er líka hægt að sækja til okkar og kaupa beint á skrifstofunni okkar á Suðurlandsbraut 30, 4. hæð. Við erum líka með sölubás á 2. hæð í Kringlunni núna fyrir jólin eins og fyrri ár og þar er bæði hægt að versla Óskaskrín og sækja pantanir keyptar á vefnum.“ Með Óskaskríni er hægt að velja á milli fjölda ólíkra upplifana og því hægt að finna eitthvað við allra hæfi. FRÉTTABLAÐIÐ/SIG- TRYGGUR Hjá Óskaskríni er hægt er að velja á milli fjölda ólíkra upplifana sem endurspegla bæði áhugasvið viðtakanda og hlýhug gefanda. Úrvalið er fjöl- breytt og upplif- anir ólíkar og eigandi Óskaskríns hefur mikið um það að segja hvað hann vill upplifa. Óska- skrín er svo auðvitað mjög umhverfisvæn og eftirminnileg gjöf. Framhald af forsíðu ➛ 2 KYNNINGARBLAÐ 1 2 . D E S E M B E R 2 0 2 0 L AU G A R DAG U RGJAFAKÖRFUR & GJAFAKORT
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.