Fréttablaðið - 12.12.2020, Qupperneq 116
Þetta er bara lang, langstærsta verkefnið sem við höfum ráðist í,“ segir Stefán Ingvar Vigfússon, sem stofnaði uppistandsgrínhópinn
VHS í fyrra ásamt þeim Vilhelm
Neto og Hákoni Erni Helgasyni, um
jólasýninguna VHS biðst fyrir, sem
uppistandsgrínhópurinn heldur
í þetta eina skipti í Tjarnarbíói í
kvöld.
„Ég er einmitt tæknistjórinn í
Tjarnarbíói samhliða uppistandinu
og ég er búinn að vera að tala um
það við þau sem eru með mér hérna
að ef að einhver önnur uppistands
sýning kæmi hérna inn í einn dag og
vildi gera þetta allt saman þá myndi
ég stíga fast á bremsuna mín megin,“
segir Stefán og leggur áherslu á að
ekkert verði til sparað í kvöld.
Alveg geggjað
„Við komum fram ásamt hinni
margrómuðu k.óla, Katrínu Helgu
Ólafsdóttur og hljómsveit, sem er
alveg geggjað. Þetta er uppáhalds
hljómsveitin mín allavegana og í
miklu uppáhaldi hjá okkur öllum.
Þau eru alveg geggjuð,“ segir Stefán.
Hann segir sýninguna byggða á tón
list, uppistandi og sketsum og bætir
við að Hraðar hendur muni tákn
málstúlka sýninguna.
„Við hugsuðum þetta þannig að
þetta er í fyrsta skipti sem við gerum
eitthvað svona jólalegt og vildum
þá bara gera það almennilega og fá
túlka með okkur til þess að þetta sé
aðgengilegt öllum sem annaðhvort
tala táknmál eða íslensku.“
Hagkvæmur jólaandi
Aðstæður leyfa ekki nema 50 gesti
í sæti og til þess að allir komist að
verður sýningunni streymt ókeypis
á vhs.hringdu.is. „Það er hægt að
kaupa miða í sal en streymið verður
frítt vegna þess að okkur bara lang
aði að dæla jólaanda út eins og við
gátum,“ segir Stefán, en gerir svo
litla játningu þegar hann er spurður
hvort hópurinn sé í hugsjónastarfi.
„Ég ætla reyndar að koma alveg
hreint fram,“ segir hann og viður
kennir að þau hafi í upphafi íhugað
að selja miða á streymið. „En það
var síðan bara svo f lókin útfærsla
tæknilega að við ákváðum bara að
láta jólaandann og praktíkina ráða.
Þetta er svona praktískur jólaandi.“
Jólaglugginn
Stefán segir söluna á þeim 50 miðum
sem í boði eru á sýninguna sem hefst
klukkan 20 í Tjarnarbíói í kvöld hafa
gengið vel og þegar þetta er skrifað
er tæpur helmingur eftir. „Þannig
að við bara vonumst til þess að fólk
vilji nýta þennan glugga núna til
þess að geta farið í leikhús og verið
meðal annarra. Maður er ekkert
bjartsýnn á að það endist eitthvað
lengi sko,“ segir Stefán, sem er ekki í
hópi þeirra sem treysta á að allt verði
betra á næsta ári.
„Ég er svartsýnn að eðlisfari. Ég
held sko bara að 2. janúar 2021 þegar
fólk er búið að stíga upp úr þynnk
unni þá fatti það að við erum enn þá
í sama skítnum.“
Vigdís Hafliðadóttir gekk til liðs
við hópinn í sumar í tengslum við
sýninguna VHS biðst forláts, sem
gekk fyrir fullu húsi þegar COVID
19 sagði hingað og ekki lengra.
„COVID lék okkur grátt og við
þurftum því miður að fella sýning
una niður.“
Beðið eftir sprautunni
Stefán segir aðspurður að jóla
sýningin sé alls ekki endurvinnsla
á sýningunni í sumar þó vissulega
sé vont að þurfa að hætta leik með
nánast ónotað efni þá hæst hann
stendur.
„Þetta er glænýtt. Þetta er 90
mínútna langt prógramm með tón
list og alles og það eru í mesta lagi að
leka kannski einhverjar fimm mín
útur frá sýningunni okkar í sumar
og eldri sýningum yfir í þessa nýju.
Við erum að vonast til að halda
VHS biðst forláts aftur á næsta ári.
Að vera með einhverja svona eina
lokasýningu. Það eru margir búnir
að biðja okkur um það. Þegar það
verður búið að sprauta alla niður.“
toti@frettabladid.is
Lífið í
vikunni
06.12.20-
12.12.20
ÉG ER SVARTSÝNN AÐ
EÐLISFARI. ÉG HELD
SKO BARA AÐ 2. JANÚAR 2021
ÞEGAR FÓLK ER BÚIÐ AÐ STÍGA
UPP ÚR ÞYNNKUNNI ÞÁ FATTI
ÞAÐ AÐ VIÐ ERUM ENN ÞÁ Í
SAMA SKÍTNUM.
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is
FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson
jonivar@frettabladid.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@
frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
FAXAFENI 5
Reykjavík
588 8477
DALSBRAUT 1
Akureyri
588 1100
SKEIÐI 1
Ísafirði
456 4566
Frá 19.120 kr. JÓLATILBOÐ
Fullt verð frá: 23.900 kr.
A F S L ÁT T U R
20%
L Ú X U S B A Ð S L O P P A R
T I LV A L I N J Ó L A G J Ö F
SYNGJANDI SÍÐAN Í VÖGGU
Jóhanna Elísa Skúladóttir gaf
nýlega út plötuna Mystic Moon en
hún sótti innblástur í lögin til mál-
verka og sökkti sér ofan í ævintýra-
heim við gerð plötunnar og nýtti
tímann vel í upphafi faraldursins
þótt aðstæðurnar hafi orðið lýjandi
þegar á leið.
MEÐ SKYRTUR Á HÖFÐINU
Fjöllistamaðurinn Stefán Elí segist
vilja virkja fólk með tónlist sinni og
fjölbreyttri heimspeki sem krist-
allast mögulega í litskrúðugum
höfuðböndum sem hann saumar
úr gömlum skyrtum. Þessi tvítugi
Akureyringur gaf smáskífuna
Candle Flame út, en segir óvíst
hvenær stóra platan kemur.
GJÖRNINGABLANDA
Listamaðurinn Anton Lyngdal gaf
út bókina Mr. Awkward Show Pre-
sents: Mr. POSER og fylgdi henni
úr hlaði með sýningu á verkum
úr bókinni í Núllinu galleríi. Hann
segist ekki festa sig við eitt list-
form og í bókinni blandast saman
gjörningar og vegglist.
JÓLAFLÓTTINN MIKLI
Þeir sem elska að hata jólalagið
sígilda Last Christmas með Wham!
geta nú keyrt upp jólastressið í
leiknum Whamageddon og reynt
að komast í gegnum aðventuna án
þess að heyra lagið. Vitaskuld hæg-
ara sagt en gert í ljósi vinsældanna
en takmarkið í leiknum er að halda
út til miðnættis 24. desember.
Praktísk jólahugsjón
Skaðræðisveiran lék grínarahópinn VHS grátt í sumar, en heltekin
af „praktískum jólaanda“ bjóða þau í kvöld upp á ókeypis streymi
frá VHS biðst fyrir, sem verður aðeins sýnt einu sinni í Tjarnarbíói.
Vilhelm Neto, Stefán Ingvar Vigfússon, Vigdís Hafliðadóttir og Hákon Örn Helgason í VHS-hópnum eru haldin
praktískum jólaanda og ætla að leyfa fjarstöddum að njóta grínsins í kvöld í ókeypis streymi. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
1 2 . D E S E M B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R72 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð