Harmonikublaðið - 01.12.2016, Page 16
i.íAi fi. i'*W mmKR
Mllg V iV= 3 . ÍU*
ll HH
iwmrn ■ *. 1 jþ'i' _, —H-i 1
\L «i •'t V U 9 1
■^>1 '■ u mBi . 11. . a .... i
SuSrnesjamenn léku jýrir dansi í Kornhúsinu
Tveir gamlir Hvanneyringar, Guðmundur Samúehson og Grétar Geirsson í Hesthúsinu,
áSur GarSastrxti 9
Harmonikuhátíð Reykjavíkur var haldin í
Arbæjarsafninu 17. júlí sl. Ekki er mér
kunnugt um hvar þessi er í röðinni, en sú
átjánda gæti verið nærri lagi frá upphafi. Karl
Jónatansson, sem lék um árabil á safninu blés
til fyrstu hátíðarinnar 1999, en að undarförnu
hefur Jónatan Karlsson verið potturinn og
pannan í hátíðinni ásamt Inga bróður sínum.
Að vanda voru fjölmargir harmonikuleikarar
mættir, sem léku á hinum ýmsu stöðum
safnsins, en staðurinn er sérstaklega vinalegur,
hefur upp á einstaklega fallegt umhverfi að
bjóða. Þarna eru ágætis salir til smátónleikahalds
og ekki skemmir umhverfið. Nostalgían upp
á það besta. Kaffisala var í Dillonshúsi að
vanda og þar léku harmonikuleikarar
lystaukandi fyrir gesri. Veðrið lék við gesti
hátíðarinnar, sem nutu veðurblíðunnar, en
oftar en ekki hefur veðrið leikið við gesti
Harmonikuhátíðar Reykjavíkur. Það komu
reyndar nokkrir regndropar um hálf fjögur
leytið, en þeir gleymdust fljótt. Að
þessu sinni mátti rekast á margan
gamlan kunningja, ýmist að leika
eða njóta hljóðfærisins. Þarna var
hópur af Suðurnesjamönnum,
Þarna stilltu þeir saman
Guðmundur Samúelsson og
Grétar Geirsson, en þeir hafa
Ieikið saman síðan þeir kynntust
á Hvanneyri, einhvern tíma á
síðustu öld. Þeir féllu vel að
umhverfinu, eins og reyndar flestir
hljóðfærleikarnir á svæðinu.
Baldvin og Dói léku fyrir dansi í
Kornhúsinu ásamt nokkrum fleiri
Suðurnesjamönnum, við góðar
undirtektir. Þórleifur Finnson var
mættur og Sigurður Alfonsson lét sig ekki
vanta. Þá var mættur Olafur Briem og Ása
Margrét Eiríksdóttir. Guðrún Guðjóns og
Hjálmar voru að sjálfsögðu á vaktinni auk
margra fleiri harmonikuunnenda, sem allir
nutu dagsins undir yndislegum
harmonikutónum.
Friðjón Hallgrímsson. Myndir.Siggi Harðar
Sagnab elgurinn
G. T.-húsið i Hafnarfirði.
Dansleikur
f kvöld kl. 10.
Athugið að þetta er síðasti dansleikur okkar á þessu
sumri. ' Hljómsveit hússins.
F. I. Á.
Dansleikur
í Oddfellowhúsinu í kvöld, laugardaginn 13. júní
kl. 1D síðd.
DANSAÐ B/EÐ! UPPI OG NIÐRI.
Dansuðir verða bæði gömlu og nýju dansarnir. —
Aðgöngumiðar seldir frá kl. 8 í Oddfellowhúsinu.
I sagnabelgnum að þessu sinni, eru auglýsingar
sem birtust í Morgunblaðinu 13. júní 1942.
Þar má greina að stríðsástand ríkti í Reykjavík.
I einni kemur fram að dansleikurinn sé aðeins
fyrir Islendinga og að ölvuðum mönnum sé
bannaður aðgangur. I annari er tekið fram, að
aðeins séu leyfðir gömlu dansarnir. Þetta er allt
mjög forvitnilegt og segir sitt um tíðarandann.
S. G. T. ÉÖL eldri dansarnir
verður í G. T.-húsinu í kvöld, 13. júní kl. 10. Áskriftalisti og
aðgöngumiðar frá kl. 3i/2- Sími 3355. Hljómsveit S. G. T.
Dansleikur j
í kvöld í Iðnó. Aðgöngumiðar með lægra verðinu 5
seldir frá kl. 6. — Tryggið yður þá tímanlega. •
AÐEINS FYRIR ÍSLENDINGA.
Ölvuðum mönnum bannaður aðgangur.
IK Göm’lu dansarnir
í kvöld kl. 10 e. h. í Alþýðuhúsinu við Hverfisgötu.
Aðgöngumiðar seldir frá kl. 6. Sími 5297, gengið
inn frá Hverfisgötu.
Flmm manna Iittrm<»nlkuhl|ómiRwell
Aðeins leyfðir gömlu dansamir.
16