Víkurfréttir


Víkurfréttir - 11.06.2020, Qupperneq 12

Víkurfréttir - 11.06.2020, Qupperneq 12
– sagði Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, sem fékk nýja VG lopapeysu frá Jónatan Stefánssyni, vini sínum suður með sjó. Hann mætti í Stjórnarráðið með peysuna á ráðherrabíl og færði forsætisráðherranum. „Á eftir að nota hana mikið,“ sagði Katrín, alsæl með peysuna. Þær eru misjafnar heimsóknirnar og gjafirnar sem forsætisráðherra Íslands fær alla jafna. Suðurnesja- maðurinn Jónatan Jóhann Stefáns- son er gallharður stuðningsmaður Katrínar Jakobsdóttur og kom færandi hendi með óvænta gjöf til hennar nýlega í Stjórnarráðið, forláta rauða lopapeysu, prjónaða í Sand- gerði, merkta VG. Jónatan er félagi númer sjö í Vinstri hreyfingunni Grænu framboði á Suðurnesjum og segir skemmtilega frá því í viðtali sem Páll Orri Páls- son, fréttamaður Víkurfrétta, átti við hann þegar hann heimsótti Katrínu í Stjórnarráðið. Ástæðan fyrir óvæntu peysugjöfinni er skemmtileg en þegar Katrín mætti með félögum sínum í Vinstri grænum í heimsókn til Suðurnesja rétt fyrir COVID-19 hreyfst hún af rauðri lopapeysu vinar síns á fundi hennar á Hótel Keflavík. Jónatan tók hana á orðinu og fékk saumakonuna Kristínu Kristjáns- dóttur í Sandgerði til að prjóna peysu á Katrínu. Svo þegar hún var tilbúin var pantaður tími hjá forsætisráð- herra sem sagðist taka glöð á móti vini sínum. „Ég fór bara strax að huga að því að láta prjóna á hana svona peysu,“ sagði Jónatan sem var spenntur að vita hvort hún passaði ekki á hana. Jónatan er vinamargur maður og þeir Ásmundur Friðriksson og Mar- geir Elentínusson fóru með honum til fundar við Katrínu til að færa henni peysuna, Margeir sem einka- bílstjóri og Ási sem aðstoðarmaður. Auðvitað mætir einn mesti VG félagi á Suðurnesjum í ráðherrabíl þegar hann hittir ráðherrann sinn og sat aftur í bílnum að sið ráðherra. Katrín bauð þeim félögum inn í hús Stjórnarráðsins og sýndi Tana fundarherbergi ríkisstjórnarinnar og aðstæður í húsinu. Okkar maður hafði hins vegar mun meiri áhuga á því að Katrín mátaði peysuna en Kristín saumakona hafði fengið þrjá konur sem voru áþekkar Katrínu til að máta hana. „Hún er fullkomin,“ sagði Katrín eftir að hún hafði smellt sér í peysuna og undir það er hægt að taka eins og sjá má á myndum og í myndskeiðinu. Hún er fullkomin Jónatan og félagar hans fengu kaffi hjá Katrínu í Stjórnarráðinu. Magnús Elentínusson á ráðherrabílnum við stjórnarráðið. Tani aftur í að hætti ráðherra. 12 // VíKurFrÉttir á SuÐurnESjum í 40 ár Fimmtudagur 11. júní 2020 // 24. tbl. // 41. árg. Jónatan og Katrín í peysunum góðu. VF-myndir/Páll Orri Pálsson
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.