Sjómannadagsblaðið - 11.06.2006, Blaðsíða 29
11. JÚNÍ 2006 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ
29
Kennsl
borin á
óþekkta
sjómanninn
Gömul mynd af sjómanni prýddi for-
síðu Sjómannadagsblaðsins á síðasta
ári. Þá var blaðið tileinkað 100 ára
afmæli togaraútgerðar á fslandi og
myndin þótti hæfa efni blaðsins vel.
Ekki var vitað af hverjum myndin var,
né hver togarinn var. En nú vitum við
það.
Guðjón Hauksson fletti Morg-
unblaðinu með morgunkaffinu dag-
inn sem blaðið kom út og rak í rog-
astans þegar hann sá mynd af föður
sínum, Hauki Guðjónssyni, á forsíðu
Sjómannadagsblaðsins. Þótt ég væri
viss um að þetta væri faðir minn,
fannst mér rétt að bera þetta undir
móður mína, Sigríði Guðjónsdóttur.
Hún var reyndar ekki farin að skoða
Morgunblaðið þegar ég hringdi en var
afskaplega glöð og ánægð þegar hún
sá myndina,” segir Guðjón “og henni
fannst mjög gleðilegt að mynd af hon-
um skyldi vera á forsíðu Sjómanna-
dagsblaðsins, því sjómennskan var
hans líf og yndi.”
Haukur Guðjónsson fæddist 4.
október 1923 og lést 13. febrúar 1997.
Guðjón segir föður sinn hafa stundað
sjóinn frá árinu 1948 og fram til 1972
er hann kom í land og hóf störf í ál-
verinu í Straumsvík. Guðjón telur að
þessi mynd sé tekin um borð í togar-
anum Röðli frá Hafnarfirði. Haukur
Guðjónsson sinnti ýmsum störfum
til sjós, var háseti, netamaður og mót-
oristi, svo eitthvað sé nefnt.
Sendum íslenskum
sjómönnum
árnaðaróskir á
hátiðisdegi þeirra
TCHGI
Félag skipstjómarmanna
VÉLSTJÓRAFÉLAG ÍSLANDS
öflugur málsvari
fagmanna til sjós og lands
S i gu r b j (> r n Bj örnsson
yfirvc.lstjóri á Þerney RE-101
www.velstjori.is