Morgunblaðið - 02.05.2020, Page 1

Morgunblaðið - 02.05.2020, Page 1
L A U G A R D A G U R 2. M A Í 2 0 2 0 Stofnað 1913  103. tölublað  108. árgangur  STEFÁN MÁNI SENDIR FRÁ SÉR ÁSTARSÖGU HEKLAÐI RISASTÓRA MANDÖLU SUNNA BJÖRK 12NÝ SKÁLDSAGA 42 Njóttu hækkandi sólar á rúntinum. Uppáhaldsbíllinn þinn bíður! HEKLA · Skoðaðu úrvalið á www.hekla.is/vefverslun Guðni Einarsson gudni@mbl.is „Við reynum alltaf að bregðast við ef vart verður við olíu í höfninni,“ sagði Ólafur Þór Snorrason, hafnar- stjóri í Vestmannaeyjum og framkvæmdastjóri um- hverfis- og framkvæmdasviðs bæjarins. Olíuslikja þakti yfirborð stórs hluta Vestmannaeyjahafnar í gær, eins og myndin ber með sér. Olíumengun í höfninni og á rúmsjó við suðurströndina hefur valdið því að olíublautir fuglar hafa drepist, en sumum hefur tekist að bjarga. Í gildi er viðbragðsáætl- un vegna bráðameng- unar innan hafnar- innar, í samræmi við gildandi reglugerð. Við- brögð ráðast af um- fangi mengunarinnar. M.a. er reynt að fella ol- íuna út með sérstökum efnum. Ólafur sagði að ef olía færi í höfnina væri það venjulega gasolía eins og sú sem er notuð til að knýja skip. „Við höfum ekki orðið varir við neina svartolíu innan hafnar. Venjulega kemur þetta úr bátum þeg- ar verða einhver slys við áfyllingu eða vegna bil- unar,“ sagði Ólafur. „Það er mjög hvimleitt þegar þetta kemur fyrir. Við reynum allt sem við getum til að halda þessu í góðu standi.“ Olíumengun sem talin er vera á rúmsjó við Suður- land er af öðrum toga og er þar um svartolíu að ræða. „Við vitum ekki hvaðan hún kemur,“ sagði Ólafur. „Það hafa fundist olíublautir fuglar allt frá Kötlutanga og vestur á Snæfellsnes.“ Talið er að svartolían komi úr skipsflaki og finnst Ólafi það ekki ólíklegt. „Ég veit að Landhelgisgæslan hefur leitað að uppruna svartolíunnar en ekki fundið enn svo ég viti.“ Olíumengun innan hafnar í Eyjum  Gasolíumengun í höfninni yfirleitt rakin til óhappa  Alltaf reynt að bregðast við  Óþekkt orsök svartolíumengunar á rúmsjó við suðurströndina  Fjöldi olíublautra fugla hefur fundist á stóru svæði Olíublautir fuglar » Mikið hefur borið á olíublautum fuglum við Vestmannaeyjar og víðar í vetur. » Sealife Trust hefur hreinsað olíublauta fugla. Morgunblaðið/Óskar Pétur Friðriksson Vestmannaeyjar Olíuslikjan sást greinilega í höfninni í gær. Meiri olíubrák en hér sést var innst í höfninni, að sögn sjónarvotts. Rekstrartap Icelandair Group á fyrsta ársfjórðungi þessa árs var 26,8 milljarðar króna, eða 208 milljónir dala, samkvæmt bráðabirgðaupp- gjöri félagsins sem birt var í Kaup- höllinni í gærkvöldi. Um er að ræða EBIT-afkomu, en það er afkoma fyrir fjármagnskostnað og skatta. Á fyrsta ársfjórðungi í fyrra var rekstraraf- koman, EBIT, neikvæð um tæpar 60 milljónir dala. Uppgjörið í heild sinni verður birt 4. maí. Afkoma félagsins var í takt við væntingar og batnaði verulega á milli ára fyrstu tvo mánuði ársins. Afkom- an í mars var hins vegar töluvert und- ir væntingum vegna heimsfaraldurs kórónuveiru, að því er fram kemur í tilkynningu frá Icelandair Group í gærkvöldi. Bráðabirgðatölur úr uppgjörinu gefa til kynna að tekjur hafi dregist saman um 16% og numið 26,9 millj- örðum króna, jafnvirði 209 milljónum Bandaríkjadala. Neikvæð þróun elds- neytisvarna nam 6,6 milljörðum króna, eða 51 milljón dala, og þá nam virðisrýrnun viðskiptavildar í tengslum við heimsfaraldur kórónu- veiru 14,8 milljörðum króna, eða 115 milljónum dala. Í tilkynningu Icelandair Group er lausafjárstaða félagsins sögð vera yfir því viðmiði sem félagið hefur unnið eftir, en stefna þess er sú að lausa- fjárstaða félagsins fari ekki undir 29 milljarða króna, jafnvirði um 200 milljóna dala, á hverjum tíma. Miðað við áætlanir um áframhald- andi lágmarkstekjuflæði er gert ráð fyrir því að lausafjárstaða félagsins fari undir viðmiðið á næstu vikum. Bogi Nils Bogason, forstjóri Ice- landair, sagði í samtali við mbl.is í gærkvöldi að félagið ætti næga fjár- muni til þess að geta starfað áfram fram að hlutafjárútboðinu sem er fyrirhugað í júní. thor@mbl.is Slæm afkoma Icelandair  Lausafjárstaða fer undir viðmið á næstu vikum  Tekjusamdráttur nam 16%  Bandaríska matvæla- og lyfja- eftirlitið gaf í gær út neyðarleyfi fyrir notkun á lyfinu Remdesivir við meðferð sjúklinga með CO- VID-19 sjúkdóminn sem kórónu- veiran veldur. Tilraunir með lyfið benda til þess að það stytti bata- ferlið um allt að fjóra daga. Von er á þessu lyfi til Íslands inn- an 10 daga, til meðhöndlunar fyrir þá sem eru alvarlega veikir af COVID-19 sjúkdómnum. Þetta stað- festir Magnús Gottfreðsson, sér- fræðingur í smitsjúkdóma- lækningum. „Þetta er fagnaðarefni og mjög góðar fréttir,“ segir hann. Remdesivir til Ís- lands innan 10 daga

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.