Morgunblaðið - 02.05.2020, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 02.05.2020, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. MAÍ 2020 Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Óvenjulegt ástand hefur verið á olíu- mörkuðum heimsins að undanförnu vegna COVID-19 faraldursins. Dregið hefur stórlega úr eftirspurn eftir olíu, verð hefur fallið og olíu- birgðir safnast fyrir. Skyndilega varð mikil eftirspurn eftir geymslu- rými fyrir olíu um allan heim. Á einum tímapunkti í síðasta mán- uði kom upp sú óvenjulega staða að olíuframleiðendur borguðu með olíunni, þ.e. borguðu eigendum geymslurýma fyrir að taka við olí- unni til geymslu. Þetta ástand hefur náð til Íslands því stór olíuflutningaskip hafa lagt leið sína í Hvalfjörðinn. Þau koma með olíu sem geymd verður í olíu- birgðatönkunum þar. Olíudreifing ehf. rekur þar stöð en leigir hana er- lendum aðila. Hann nýtir að sjálf- sögðu stöðina í því árferði sem nú ríkir og alls staðar vantar geymslu- rými. Fyrir nokkrum dögum kom til Hvalfjarðar olíuskipið FSL Singa- pore með fullfermi, en skipið er 28.068 brúttótonn. Síðdegis á morg- un, sunnudag, er annað skip væntan- legt. Það heitir Castillo de Trujillo og er 21.589 brúttótonn. Ríkið eignaðist stöðina 1947 Bretar hernámu landið 10. maí ár- ið 1940 og sendu hingað fjölmennt setulið. Bandaríkjamenn hófu að leysa þá af hólmi í júlí 1941. Hval- fjörðurinn þótti afar gott skipalægi fyrir herskip og voru reist þar mikil hernaðarmannvirki. Bandaríkjamenn reistu eldsneyt- isbirgðastöð í landi Miðsands og Litlasands við Hvalfjörð norðan- verðan auk birgðastöðvar vegna skipaviðgerða. Að stríðinu loknu höfðu bandamenn ekki lengur not fyrir stöðina og svo fór að íslenska ríkið keypti hana af Bandaríkja- stjórn í janúar 1947. Árið 1968 hóf Atlantshafsbandalagið byggingu olíubirgðastöðvar (4 tankar) í Hval- firði. Síðar eignaðist íslenska ríkið þá stöð en seldi hana til Skeljungs. Olíubirgðastöð Olíudreifingar í Hvalfirði er sett saman af níu geym- um jafnstórum, sem eru 14 metra háir. Þeir geta tekið við um 110 milljón lítrum. Hægt er að taka við skipum allt að 50 þúsund brúttótonn. Þegar olíuverðið hafði farið niður úr öllu valdi hófust spákaupmenn handa, keyptu mikið magn olíu og leituðu eftir geymsluplássi. Meðal annars var gripið til þess ráðs að leigja risaolíuskip og fylla þau af olíu til geymslu. Nýlega fékk Gísli Gísla- son, hafnarstjóri Faxaflóahafna, fyrirspurn að utan um það hvort mögulegt væri að „geyma“ risa- olíuskip í einhverjum firði á Íslandi. Gísli svaraði erindinu neitandi, það væri óframkvæmanlegt. Morgunblaðið/Eggert Í Hvalfirði Olíuskipið FSL Singapore kom á dögunum með farm sem dælt var í tanka olíubirgðastöðvarinnar þar. Annað skip er væntanlegt til Hvalfjarðar með farm á morgun, sunnudag. Olían er geymd í Hvalfirði  Miklar olíubirgðir safnast fyrir í heiminum  Höfðu áhuga á að „geyma“ risaolíuskip við Ísland Ársfundur Lífeyrissjóðs verzlunarmanna verður haldinn þriðjudaginn 2. júní kl. 16:00 á Grand Hótel Reykjavík. Dagskrá fundarins • Venjuleg ársfundarstörf, dagskrárliðir skv. grein 6.6 í samþykktum sjóðsins. • Kynning tryggingastærðfræðings, tryggingafræðileg staða LV og áhrif hækkandi lífaldurs. • Önnur mál. Sjóðfélagar eiga rétt til setu á ársfundinum. Fundargögn verða afhent á fundarstað. Reykjavík, 30. apríl 2020 Stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna Ársfundur 2020 Lífeyrissjóður verzlunarmanna — live.is Frekari grásleppuveiðar á þessu fisk- veiðiári verða bannaðar frá miðnætti í kvöld. Um leið falla niður öll grá- sleppuveiðileyfi. Þrátt fyrir það má gefa út leyfi til grásleppuveiða í allt að 15 daga til þeirra sem veiddu grá- sleppu 2018 eða 2019 á Breiðafirði, svæði 2, samkvæmt leyfum sem tóku gildi 20. maí eða síðar þau ár. Veiðarnar eru stöðvaðar vegna þess að heildaraflinn er að nálgast há- marksafla. „Hafrannsóknastofnun gaf út 4.646 tonna ráðgjöf fyrir veiðar á grásleppu á þessu fiskveiðiári. Með þessari reglugerð er verið að tryggja að veið- arnar verði sem best í samræmi við vísindalega ráðgjöf og það er mikil- vægt fyrir alla hlutaðeigandi. Ekki síst til að tryggja að þær vottanir sem fyrir liggja tapist ekki,“ er haft eftir Kristjáni Þór Júlíussyni sjávarút- vegsráðherra. Örn Pálsson, framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda (LS), sagði að aflinn hefði verið nær tvöfalt meiri nú en í fyrra. Leyft var að veiða í 44 daga en grásleppunefnd LS lagði til 39-40 daga til að byrja með. Örn sagði slæmt að ekki gæfust nema tveir dagar til að taka upp netin. Hann sagði að sumir grásleppuveiði- menn væru nýbyrjaðir og aðrir ekki farnir af stað. gudni@mbl.is Morgunblaðið/Eggert Hrognkelsi Veiðarnar hafa gengið mjög vel í vor, tvöfalt betur en í fyrra, og verða stöðvaðar vegna þess að heildaraflinn er að nálgast hámarksafla. Grásleppuveiðar stöðvaðar í kvöld

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.