Morgunblaðið - 02.05.2020, Síða 40
40 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. MAÍ 2020
2. maí 1981
Skúli Óskarsson frá Fáskrúðs-
firði setur Norðurlandamet í
hnébeygju í 82,5 kg flokki á
Meistaramóti Íslands í
Laugardalshöll þegar hann
lyftir 315 kg. Skúli er í fanta-
formi á mótinu og setur Ís-
landsmet bæði í réttstöðulyftu
og í samanlögðu.
2. maí 1982
Ísland sigrar Egyptaland,
73:72, í síðasta leik sínum í C-
keppni Evrópumóts karla í
körfuknattleik í Skotlandi og
endar þar með í fimmta sæti.
Valur Ingimundarson, 19 ára
Njarðvíkingur, skorar sigur-
stigin úr tveimur vítaskotum
og gerir 20 stig í leiknum en
Kristján Ágústsson kemur
næstur með 14. Viðar Vignis-
son ver skot frá Egypta í lokin
og tryggir sigurinn, en Egypt-
ar voru lengi með á EM og
urðu raunar Evrópumeistarar
1949.
2. maí 1987
Landsliðsmennirnir Bjarni
Sigurðsson hjá Brann og
Gunnar Gíslason hjá Moss fara
vel af stað í norsku knatt-
spyrnunni. Eru þeir í liði vik-
unnar hjá Verdens Gang eftir
fyrstu umferð deildakeppn-
innar.
2. maí 1998
Kristján Helgason vinnur sér
inn keppnisrétt á mótum at-
vinnumanna í snóker með góð-
um árangri á úr-
tökumóti í
Antwerpen í
Belgíu. Kristján
vinnur alla and-
stæðinga sína
nema einn, en
sex sæti á móta-
röð atvinnumanna voru í boði
á mótinu og nælir Kristján því
í eitt þeirra.
2. maí 2003
Akureyringurinn Rúnar Sig-
tryggsson verður Evrópu-
meistari með spænska liðinu
Ciudad Real
þegar liðið
vinnur sænska
liðið Redbergs-
lid í úrslitum í
Evrópukeppni
bikarhafa í
handknattleik.
Ciudad vinnur samtals 57:51,
en síðari leiknum lauk með
jafntefli í Gautaborg. Rúnar er
á fyrsta tímabili sínu hjá
spænska liðinu.
2. maí 2008
Ólöf María Jónsdóttir úr Keili
kemst í gegnum niðurskurð
keppenda eftir 36 holur á hinu
rótgróna golfmóti Opna
skoska meistaramótinu. Ólöf
er í 45.-54. sæti fyrir þriðja
hringinn. Mótið er hluti af
Evrópumótaröðinni, en Ólöf
varð fyrst Íslendinga til að
öðlast þar fullan keppnisrétt.
2. maí 2016
Þýska stórliðið Wolfsburg til-
kynnir að liðið hafi tryggt sér
krafta Söru Bjarkar Gunnars-
dóttur fyrir
næsta tímabil í
þýsku knatt-
spyrnunni og
kemur hún frá
Rosengård í
Malmö. „Ég er
komin á þann
tímapunkt að ég þarf svona
áskorun til að geta bætt mig
enn frekar sem leikmaður,“
segir Sara Björk m.a. í samtali
við Morgunblaðið.
Á ÞESSUM DEGI
GOLF
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Um fjögurra ára skeið snemma á öld-
inni var staðið fyrir metnaðarfullum
golfmótum á Hvaleyrinni í Hafnar-
firði. Komu þá erlendir kylfingar í
boði Nýherja og kepptu á móti ís-
lenskum kylfingum. Fyrir fjórum
þessara erlendu gesta átti að liggja að
vinna risamót í golfinu eftir Íslands-
heimsóknina. Þar er um að ræða þá
Retief Goosen og Trevor Immelman
frá Suður-Afríku, Írann Padraig
Harrington og Englendinginn Justin
Rose.
Íslenskir íþróttaunnendur eiga
þess sjaldan kost að sjá fræga kylf-
inga keppa hér heima. Til eru þó
dæmi um að hetjur hafi heimsótt okk-
ur hér í fásinnið, eins og Jack Nick-
laus og Annika Sörenstam. Dagskráin
hjá bestu kylfingum heims er mjög
þétt og ekki hlaupið að því að fá þau
hingað til lands, þar sem ekki eru mót
á bestu mótaröðunum haldin á Ís-
landi.
Morgunblaðið ákvað að rifja upp
þennan athyglisverða en stutta tíma
þegar erlendar kempur komu hingað
nokkur ár í röð. Hvernig kom þetta til
og hvers vegna hætti Canon-mótið
eins og það hét? Sigurjón Hjaltason,
sem þá starfaði hjá Nýherja og nú
Origo, kom mjög að skipulagningunni
og leit aðeins um öxl þegar blaðið
hafði samband við hann og óskaði eft-
ir því.
Ástæða þess að gerlegt var að fá
þessa erlendu gesti til landsins var sú
að Canon var samstarfsaðili Evr-
ópumótaraðarinnar en var einnig í
samstarfi við nokkra fræga kylfinga á
hverjum tíma. Í skyldum þeirra gagn-
vart fyrirtækinu fólst þá að taka þátt í
viðburðum sem fyrirtækið óskaði eftir
þegar hægt var að finna því stað í dag-
skránni. Í þessu tilfelli beindi Canon
tveimur kylfingum á ári til Íslands í
samráði við Nýherja, umboðsaðila Ca-
non, til að spila á mótinu á Hvaleyri.
„Þetta var skipulagt með miklum
fyrirvara og við vorum þá í beinu
sambandi við umboðsskrifstofu
þeirra í London, IMG. Sendinefnd
kom til Íslands bæði frá Canon og
umboðsskrifstofunni til að taka út að-
stæður áður en þetta var samþykkt.
Maður var alltaf rosalega spenntur
fyrir því hvaða nöfn við fengjum. Um
tíma stóð til að Colin Montgomerie
kæmi og einnig Ian Woosnam.
Stundum réðist þetta bara á því
hvort menn væru lausir eða ekki.
Alls voru þetta fimm skipti sem mót-
ið fór fram frá 2000-2004. Í öllum til-
fellum komu tveir erlendir kepp-
endur. Við skoðuðum einnig að fá
konu og var það Laura Davies sem
var stórt nafn. Hún var ekki laus en
við reyndum það. Þá hefðu íslenskir
kvenkylfingar fengið boð í mótið,“
sagði Sigurjón, en þess má geta að
Laura Davies var á meðal keppenda
á EM í Skotlandi 2018 þar sem Ís-
lendingar sigruðu í liðakeppni.
Lítið um afslöppun
„Dagskrá heimsklassa kylfinga er
mjög stíf. Þeir ljúka oft keppni í mót-
um á sunnudegi. Fóru þá upp í flug-
vél einhvers staðar í heiminum og
enduðu á Íslandi á sunnudagskvöldi.
Kepptu hér á mánudegi og var
Canon-mótið ávallt á mánudegi. Þar
byrjaði dagskráin um morguninn þar
sem ProAm var haldið með við-
skiptavinum okkar. Þá skiptu er-
lendu gestirnir sér niður á nokkra
ráshópa. Viðskiptavinirnir höfðu
geysilega gaman af því að vera í
svona mikilli nálægð við þessar
hetjur. Mótið fór svo fram eftir há-
degi og þar drógum við að borðinu
sterkustu kylfingana á Íslandi og
buðum þeim að taka þátt. Einnig var
haldið opið mót hjá Golfklúbbnum
Oddi fyrr um sumarið þar sem sig-
urvegarinn í höggleik án forgjafar
fékk að taka þátt í Canon-mótinu.
Það gekk prýðilega.
Þessir erlendu gestir voru því
píndir til að spila allan daginn en við
reyndum að gera vel við þá um
kvöldið. Reyndum að sýna þeim
áhugaverða staði og fara með þá út
að borða. Svo beið þeirra bara flug
snemma á þriðjudagsmorgni og því
var lítið slappað af.“
Ekkert haggaði Goosen
Retief Goosen var 32 ára þegar
hann kom til Íslands árið 2001. Hann
hafði unnið Opna bandaríska meist-
aramótið skömmu áður og endurtók
þann leik árið 2004. Frábær kylf-
ingur sem tvívegis hafnaði í 2. sæti á
Masters. Þess má geta að Goosen
vann sig inn í Opna breska meistara-
mótið 2018 í sama úrtökumóti og
Haraldur Franklín Magnús.
„Goosen vann Opna bandaríska
bara hálfum mánuði áður. Gott ef
Í byrjun aldarinnar léku heimsþekktir kylfingar á Hvaleyrinni í Hafnarfirði
Fjórum þeirra tókst að vinna risamót í golfi eftir Íslandsheimsóknina
Sigur á risamóti brey
Ljósmynd/ Úr safni Nýherja/Phil
Fjölmenni Áhorfendur fylgjast með Retief Goosen slá inn á 18. flötina.
Canon-mótin
» 2000: Barry Lane og Patrik
Sjöland. 2001: Retief Goosen
og Ronan Rafferty. 2002:
Padraig Harrington og Nick
Dougherty. 2003: Justin Rose
og Peter Baker. 2004: Trevor
Immelman og Tony Johnstone.
» Feðgarnir Ágúst Húbertsson
og Ólafur Þór Ágústsson komu
mest að mótunum fyrir Keili og
þeir Sigurjón Hjaltason, Rúnar
B. Guðlaugsson og Lúðvík
Andreasson fyrir Nýherja.
HANDBOLTI
Kristófer Kristjánsson
kristoferk@mbl.is
Handknattleikskonan Sandra
Erlingsdóttir mun ekki leika með
uppeldisfélagi sínu ÍBV á Íslands-
mótinu í haust eins og upprunalega
stóð til. Hún ætlar að reyna fyrir sér
í atvinnumennskunni og hefur gert
samning um að leika með Aalborg
næstu tvö árin, en liðið leikur í
dönsku fyrstu deildinni.
Sandra hugðist flytja heim og
leika með ÍBV í vetur eftir tvö ár á
Hlíðarenda, þar sem hún varð m.a.
þrefaldur meistari með liði Vals á
síðasta ári. Hana hefur hins vegar
lengi dreymt um tækifærið til að
spreyta sig erlendis og segist ekki
hafa getað hafnað tilboðinu frá Aal-
borg.
„Ég var að skoða þetta fyrr í vetur
en ekkert spennandi kom upp og ég
skrifaði undir hjá ÍBV. Svo var ég
bara orðin mjög spennt fyrir næsta
tímabili, enda vorum við komin með
þrusugott lið, en svo kom þetta upp,“
sagði Sandra í samtali við Morgun-
blaðið í gær. „Eftir að hafa talað við
þjálfarann leist mér rosalega vel á
þetta. Þetta var tækifæri sem var
eiginlega ekki hægt að segja nei
við.“
Skref upp á við
Sandra er 21 árs gömul og lék
með ÍBV í tvö ár áður en hún færði
sig yfir í Val árið 2018. Þar áður bjó
hún í Þýskalandi þar sem faðir
hennar, Erlingur Richardsson,
stýrði úrvalsdeildarliði Füchse Berl-
ín. Þar fékk hún að stíga fyrstu skref
sín með meistaraflokki og þó að hún
njóti góðs af þeirri reynslu er hún
ánægð að halda í dag út í atvinnu-
mennsku upp á eigin spýtur.
„Það er skemmtilegra að gera
þetta núna og þá á mínum eigin for-
sendum. Í Þýskalandi var maður
bara einhver kjúklingur sem fékk að
fljóta með þar sem ég var úti með
pabba.“
Þá segir Sandra engan vafa á því
að um skref upp á við sé að ræða og
hún sé því spennt að stökkva út í
djúpu laugina, þótt auðvitað sé
leiðinlegt að spila ekki með heima-
félagi sínu eins og upprunalega stóð
til. „Að fara í ÍBV frá Val var
kannski frekar hliðarskref en þetta
er klárlega skref upp á við. Það er
auðvitað leiðinlegt að vera ekki að
fara að spila með uppeldisfélaginu
en ég er enn ung og það kemur bara
seinna.“
Get ekki leyft mér að væla
Þá vék Sandra sér að nýliðnu Ís-
landsmóti, en tæpu ári eftir að hún
vann þrennuna með Völsurum þurfti
að aflýsa keppni að þessu sinni
vegna kórónuveirufaraldursins.
Framarar höfðu nú þegar sigrað
Valsara í bikarúrslitum og voru þeir
sömuleiðis krýndir deildarmeistarar
Olísdeildarinnar þegar HSÍ tók þá
ákvörðun að aflýsa keppninni. Hins
vegar var enginn Íslandsmeistari
krýndur og var endirinn á mótinu
frekar endasleppur, sérstaklega
fyrir Söndru sem var nýstigin upp
úr meiðslum.
„Það var ekkert smá fúlt að enda
þetta svona. Ég var meidd á ökkla í
tvo mánuði og fékk svo bara þennan
bikarleik á hálfum fæti, ég kvaddi
ekki almennilega.
Við vorum nánast búnar að missa
deildarmeistaratitilinn frá okkur en
Íslandsmeistaratitillinn var hins
vegar eftir og við vorum tilbúnar að
berjast fyrir honum. En maður get-
ur ekki leyft sér að væla yfir ein-
hverju svona, það er allt annað sem
skiptir máli núna.“
Hélt að draumurinn
væri farinn
Mótinu var sömuleiðis aflýst í
Danmörku og lið Aalborg fellt úr úr-
valsdeildinni, en það var á botni
hennar með einungis þrjá sigra í 23
Fannst hún ekki geta sagt
nei við þessu tækifæri
Sandra Erlingsdóttir heldur til Danmerkur í atvinnumennsku Vill vinna sér inn sæti
í landsliðinu Leiðinlegt að spila ekki með ÍBV Handboltaferillinn var í mikilli hættu