Morgunblaðið - 08.05.2020, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. MAÍ 2020
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Ástæða olíumengunar sem stundum sést í
Vestmannaeyjahöfn er enn ráðgáta. Ólafur
Þór Snorrason, hafnarstjóri og framkvæmda-
stjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs Vest-
mannaeyjabæjar, sagði að engin yfirborðs-
mengun hefði sést síðan um síðustu helgi.
Mynd sem tekin var síðdegis föstudaginn 1.
maí sýndi greinilega olíubrák utarlega í höfn-
inni, frá Nausthamarsbryggju og hafði hún
breiðst inn eftir. Daginn eftir sást meiri olíu-
brák í Pyttinum, innst í höfninni.
Regnvatni af götum bæjarins er veitt út í
höfnina og er m.a. verið að skoða hvort ein-
hvers staðar geti verið yfirfull olíuskilja sem
mögulega flæði yfir í rigningatíð og mengað
vatn berist út í frárennsliskerfið. Þá er verið
að skoða hvort mengunin tengist sjávarföllum
þannig að sjór komist í olíumengaðan jarðveg
einhvers staðar við höfnina á flóði.
Ólafur sagði að menn hefðu grandskoðað
myndir af yfirborðsmenguninni en ekki getað
greint uppsprettu hennar af þeim. Mengunin í
höfninni er gasolía. Engin slík olía er geymd
nærri þar sem mengunin sást á föstudag og
engir bátar voru þar við bryggju. Brákin sem
sást í Pyttinum á laugardag var nyrst en þar
eiga ekki að vera olíulagnir og regnvatnið úr
bænum kemur sunnanmegin í Pyttinn.
„Við erum á útopnu við að finna einhverja
orsök. Það er hundleiðinlegt að finna ekki
neitt,“ sagði Ólafur. Í gær hafði ekki orðið vart
neinnar yfirborðsmengunar í höfninni frá því
um síðustu helgi.
Uppruni mengunarinnar er ráðgáta
Hafnaryfirvöld í Vestmannaeyjum hafa leitað ástæðna þess að olíumengun berst í höfnina
Morgunblaðið/Óskar Pétur Friðriksson
Vestmannaeyjahöfn Olíubrák sást í Pyttinum, innsta hluta hafnarinnar, þegar myndin var tekin 1. maí. Daginn eftir sást meiri olíumengun nyrst
eða fjærst á myndinni. Olíumengun hefur af og til verið vandamál í höfninni. Fuglar hafa lent í olíunni og ýmist drepist eða verið hreinsaðir.
IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is
Nánari upplýsingar ib.is
Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum
nýjum bílum frá IB
Bílar á lager
Sími 4 80 80 80
2020 Ford F-350 Lariat TREMOR
Litur: Svartur/ Svartur að innan. Einnig í boði
í Star White, Magnetic grey og Blue Jeans.
Lariat með Sportpakka, Ultimatepakka og
TREMOR-pakka. Innifalið í TREMOR-pakkanum
er læst framdríf, 2” upphækkun að framan, 35”
dekk, Drive mode stillingar, TREMOR demparar,
minni svunta undir framstuðara, spes hækkað
loftinntak og öndun á hásingum (framan
og aftan) og millikassa. Sem sagt original
stórkostlegur OFF ROAD bíll! Og svo auðvitað
2020 breytingin; nýr framendi, 475 hö, 1050
pund tog og 10 gíra sjálfskipting.
2019 RAM Limited 3500 35”
Litur: Pearl red/ Svartur að innan. 6,7L
Cumm-ins Turbo Diesel, 400 hö, togar 1000
pund. Einn með öllu: RAM box, Aisin sjálfskipt-
ing, dual alternators 440 amps, lofpúðafjöðr-
un, upphitanleg og loftkæld sæti, hiti í stýri,
sóllúga, nýr towing technology pakki.
VERÐ
11.980.000 m.vsk
ATH. ekki „verð frá“
2020 GMC Denali Ultimate
Litur: Onyx black/ Dark walnut að innan. 2020
GMC Denali, magnaðar breytingar t.d. 10 gíra
skipting, auto track millikassi, multipro opnun
á afturhlera, flottasta myndavélakerfið á
markaðnum ásamt mörgu fleira.
VERÐ
12.490.000 m.vsk
ATH. ekki „verð frá“
2020 GMC Denali Ultimate
Litur: Summit white/ svartur að innan.
2020 GMC Denali , magnaðar breytingar
t.d. 10 gíra skipting, auto track millikassi,
multipro opnun á afturhlera, flottasta
myndavélakerfið á markaðnum ásamt
mörgu fleirra.
VERÐ
12.990.000 m.vsk
ATH. ekki „verð frá“
Nánar upplýsingar gefur Ingimar
í síma 664 8080 eða email ingimar@ib.is.
Á borði hafnarstjóra og hafnar-
stjórnar í Hafnarfirði hefur undan-
farið legið beiðni frá Vélsmiðju
Orms og Víglundar um að setja upp
níu metra hlið við aðkomusvæði að
flotkví félagsins, sem fyrirhugað er
að girða af. Nágrannafyrirtækið
Trefjar telur hins vegar að hliðið
þurfi að vera tíu metrar að breidd
til að bátalyfta eða bátavagn fyrir-
tækisins geti komist með báta eftir
Óseyrarbraut frá verksmiðjuhúsi
gegnum hliðið og til sjósetningar.
Í bréfi lögmanns vélsmiðjunnar
til Hafnarfjarðarhafnar um miðjan
apríl kemur m.a. fram að Trefjar
hafi ekki veitt samþykki fyrir 2,5
metra hárri girðingu á mörkum
lóða fyrirtækjanna. Slíkt samþykki
væri háð því að hlið við enda Ós-
eyrarbrautar yrði um tíu metrar á
breidd svo bátalyftan kæmist þar
um. Byggingarfulltrúi hafi synjað
um leyfi fyrir girðingunni þar sem
samþykki Trefja liggi ekki fyrir.
Ólöglega eftir Óseyrarbraut
Í bréfinu er bent á ýmsar tak-
markanir samkvæmt lögum og
reglugerðum á ferðum svo stórs og
þungs tækis, eins og bátalyftunnar,
utan vinnusvæðis. Þar segir að
furðu sæti að starfsmenn Hafnar-
fjarðarbæjar gangi erinda Trefja til
þess að gera mögulegt að bátalyft-
an fái ekið ólöglega eftir Óseyrar-
braut eins og hvert annað ökutæki.
Í bréfinu óskar lögmaður vélsmiðj-
unnar eftir formlegri staðfestingu
frá hafnarstjóra um heimild fyrir-
tækisins til að loka Óseyrarbraut
við hafnarsvæðið með níu metra
hliði.
Í bréfi lögmanns frá Vélsmiðju
Orms og Víglundar er lögð áhersla
á öryggismál og segir þar að af-
girðing svæðisins sé brýn, enda
töluverð umferð óviðkomandi um
svæðið. Hafi fyrirtækið þurft að
sæta tíðum innbrotum í báta og
skip í tengslum við rekstur flot-
kvínna. Þá fari sá tími í hönd að bú-
ast megi við að unglingar og aðrir
geri sér leik að því að stökkva af
flotkvíunum og í sjóinn, en slíkt sé
árlegt.
Óska eftir undanþágu
Á fundi hafnarstjórnar í fyrradag
var á ný fjallað um málið. Þar kom
fram að Trefjar hafa sent Sam-
göngustofu erindi þar sem óskað er
eftir undanþágu fyrir akstri lyft-
unnar á hafnarsvæðinu. Niðurstaða
í því máli liggur enn ekki fyrir og
telur hafnarstjórn því ekki unnt að
taka afstöðu til erindis Vélsmiðju
Orms og Víglundar ehf. fyrr en nið-
urstaða Samgöngustofu liggur fyr-
ir.
Á þessum tímapunkti segir Lúð-
vík Geirsson hafnarstjóri ekki tíma-
bært að tjá sig um málið. Fram
kemur í bréfi lögmannsins að
Hafnarfjarðarhöfn hafi boðist til að
kaupa níu metra hliðið, sem vél-
smiðjan hafi keypt, en fyrirtækið
láti á móti setja upp tíu metra hlið
svo bátalyftan komist um. Því hafi
verið hafnað.
Þröstur Auðunsson, fram-
kvæmdastjóri Trefja, segir að stað-
setning upptöku- og sjósetningar-
búnaðar hafi verið ákveðin í
samráði við bæjaryfirvöld áður en
nýja lyftan kom fyrir um tveimur
árum. Sú staðsetning kalli á þetta
ferðalag á 50-60 metra kafla um
Óseyrarbrautina á milli verk-
smiðjuhúss og hafnarsvæðis. Lítil
umferð sé um götuna og því lítil
hætta á ferðum. Þröstur segist von-
ast eftir farsælli lausn á málinu.
aij@mbl.is
Ósætti við Óseyrarbraut
Vélsmiðja Orms og Víglundar vill girða og setja upp níu
metra hlið Trefjar þurfa tíu metra hlið vegna bátaflutninga
Ljósmynd/Af heimasíðu Trefja
Hafnarfjörður Bátalyfta Trefja er færanleg og hefur lyftigetu upp á 75 tonn.