Morgunblaðið - 08.05.2020, Qupperneq 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. MAÍ 2020
ENGINN
ÐBÆTTUR SYKUR
ENGIN
ROTVARNAREFNI
85%
TÓMATPÚRRA
VI
Bjarnason, f. 19.11. 1987, aðstoðar-
verslunarstjóri hjá ÁTVR, búsettur í
Reykjavík; 3) Kristjana Konný
Bjarnadóttir, f. 27.9. 1989, hjúkrunar-
fræðingur í Danmörku. Maki: Mads
Skaaning, rafmagnsverkfræðingur í
Danmörku. Börn þeirra eru Ísabella
Erla, f. 19.1. 2016, og Christian Álfþór,
f. 8.8. 2018; 4) Bjarni Kristinn Bjarna-
son, f. 28.10. 1996, verkfræðinemi í
DTU, Danmörku.
Systkini Bjarna Torfa eru Álfhildur
Álfþórsdóttir, f. 8.6. 1956, deildarstjóri
hjá Alþingi; Þóra Björg Álfþórsdóttir,
f. 19.9. 1962, leiðbeinandi í leikskóla í
Hafnarfirði; Bergur Brynjar Álfþórs-
son, f. 20.7 1964, leiðsögumaður og
bæjarfulltrúi í Vogum, og Jóhann Frí-
mann Álfþórsson, f. 24.9. 1968, píanó-
og sembalsmiður á Seltjarnarnesi.
Foreldrar Bjarna Torfa eru hjónin
Álfþór B. Jóhannsson, f. 12. 1933, fyr-
verandi bæjarritari, og Björg Bjarna-
dóttir, f. 7.7. 1932, fyrrverandi píanó-
undirleikari. Þau eru búsett á
Seltjarnarnesi.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„JÆJA, SVO ÞÚ ÆTLAR AÐ VERA Í FÝLU
VEGNA ÞESS AÐ ÉG NEITAÐI ÞÉR UM FRÍ
Í DAG!”
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að sjá allar aðstæður
fyrir.
ÞAÐ TRUFLAR MIG EKKERT
AÐ ÞÚ STARIR Á MIG
BROSTU KONA! BRÁÐUM VERÐUR
MÚSAFARALDURINN ÚR SÖGUNNI!
ÉG VEIT
… ÉG VILDI BARA ÓSKA ÞESS AÐ ÞÚ VÆRIR EKKI
MEÐ OFNÆMI FYRIR KÖTTUM!
„TALAÐU VIÐ MIG EF ÞAÐ STÆKKAR. ÉG
GET KOMIÐ ÞÉR Í AÐGERÐ VIKU FYRIR
JÓL.”
Ég fór að fletta gömlum Spegli ádögunum – gerði það oft ung-
ur drengur af því að faðir minn átti
Rauðku, valdar greinar úr því
merka blaði. Þar birtust reglulega
„Skáldskaparmál“. Eitt ljóðið hét
„Chanson triste“ sem ég lærði
ósjálfrátt utan að. Það var ort á því
herrans ári 1926 og ber með sér að
vegur Góðtemplarareglunnar hef-
ur verið meiri á þeim dögum en nú
er.
14° er frostið
og fölur máninn skín.
Í kveld skulum við drekka
kaffi og brennivín.
Í kveld skulum við drekka
kaffi og hundaskamt;
en enginn má í Einingunni
um það vita samt.
Við skulum sitja að sumbli,
því sála mín er þreytt.
Sumir eiga sorgir
og segja ekki neitt.
Sumir eiga sorgir
og sumir eiga konur.
Einum fæðist dóttir
og öðrum fæðist sonur.
Sumir þjóra í Reykjavík
og sumir þjóra í Höfn.
Sumir fara í hundana
og sumir fara í Dröfn.
Í kveld skulum við drekka
kaffi og brennivín.
Fjórtán gráður er frostið
og fullur máninn skín.
Jakob Thorarensen orti – og með
skýringu Ágústar H. Bjarnasonar:
„En ætli kersknin gægist ekki út, er
hann í þessu sambandi fer að tala
um mannskepnurnar“:
Einhver beygur orkar því,
allt hvað vökna sokkar,
gegnum þóttann grisjar í
guðræknina okkar.
Eftir Káin:
Síðan fyrst ég sá þig hér
sólskin þarf ég minna
gegnum lífið lýsir mér
ljósið augna þinna.
Í Blöndu segir að æviferill Daða
Níelssonar hafi verið raunasaga
gáfaðs alþýðumanns er lífið lék
hart en varð þó þjóðkunnur fræði-
maður. Hann varð úti 1856, 47 ára
gamall.
Illt er að biðja oft um lán,
illt er að vera hrakinn,
illt er að þola eymd og smán,
illt er að vera nakinn.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Úr Skáldskaparmálum
Spegilsins og fleira gott