Morgunblaðið - 24.05.2020, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 2020
Glerborg
Mörkinni 4
108 Reykjavík
565 0000
glerborg@glerborg.is
www.glerborg.is
2291árfregalgeps&nupílsrelg,raggulg,relG
FÁÐU TILBOÐ
ÞÉR AÐ
KOSTNAÐAR-
LAUSU
Ertu að byggja eða þarf að
endurnýja gamla glerið?
Það skiptir miklu máli að velja einangrunargler sem
reynist vel við íslenskar aðstæður.
Fáið tilboð hjá Glerborg í Mörkinni 4 eða
á heimasíðunni okkar WWW.GLERBORG.IS
Alexander Gunnar Kristjánsson
agunnar@mbl.is
Uppbygging Reykjavíkurborgar á
smáhýsum fyrir heimilislausa í Gufu-
nesi er utan deiliskipulags og í veg-
stæði Sundabrautar. Þetta segir
Ólafur Kr. Guðmundsson, vara-
borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.
Hann óttast að uppbyggingin sé liður
í vinnu borgarinnar til að skemma
fyrir lagningu Sundabrautar. Byrjað
er að grafa fyrir húsunum og merk-
ingar komnar.
Ólafur telur að ef af byggingu smá-
hýsanna verði þurfi að færa Sunda-
brautina svo austarlega að hún skar-
ist á við Strandveg.
Hann segir uppbyggingu borgar-
innar á svæðinu þegar hafa valdið
vandræðum, en á dögunum var tekin
skóflustunga að nýju hverfi á vegum
Þorpsins vistfélags, þar sem verða
meðal annars 137 íbúðir sem hugs-
aðar eru sem hagkvæmt húsnæði
fyrir fyrstu kaupendur og munu
ódýrustu íbúðirnar kosta innan við 20
milljónir.
Fyrir vikið var fyrirhugaðri legu
Sundabrautar breytt, en nýja veg-
stæðið liggur hærra með tilheyrandi
vandræðum og kostnaði, að sögn
Ólafs. Hann setur enn fremur spurn-
ingarmerki við þá ákvörðun að skipu-
leggja bíllaust hverfi í næsta ná-
grenni við Sundabraut, sem hann
segir verða helstu umferðaræð inn
og út úr borginni norðanleiðina þeg-
ar fram líða stundir. Bendir hann á
að íbúar í Hlíðum kvarti gjarnan yfir
hávaða og mengun frá Miklubraut.
„Ég geri enga athugasemd við að
fólk vilji búa bíllaust og halda kál-
garða, en ég efast um að fólk vilji
gera það þarna í námunda við
veginn,“ segir Ólafur.
Margar ákvarðanir gegn
Sundabraut verið teknar
Ólafur segir að borgaryfirvöld hafi
tekið ýmsar ákvarðanir á síðustu ár-
um með það fyrir augum að skemma
fyrir uppbyggingu Sundabrautar.
Nefnir hann í því skyni uppbyggingu
á Kirkjusandi, þar sem fjöldi íbúða,
þar af 80 á vegum íbúðafélagsins
Bjargs, er í byggingu. Þar hafi verið
hugmyndir um að Sundabraut gæti
tengst vesturhluta borgarinnar.
Þá hafi uppbygging í Vogabyggð
útilokað innri leið Sundabrautar og
orðið til þess að kostnaður við verkið
yrði allt að 10 milljörðum meiri en
ella. Í vegalögum er kveðið á um að
ef sveitarfélag skipuleggur byggð á
svæði sem þegar hefur verið skipu-
lagt undir veg skuli sveitarfélagið
standa straum af auknum kostnaði
við breytingar á veginum. Af þeim
sökum sendi þáverandi vegamála-
stjóri, Hreinn Haraldsson, borginni
bréf árið 2017 þar sem krafist var 10
milljarða króna, þó svo að endanleg
útfærsla vegarins hefði ekki verið
ákveðin. Bréfinu hefur ekki verið
svarað.
Samgöngunefnd fundar um
Hvassahraun í dag
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri
og Sigurður Ingi Jóhannsson sam-
gönguráðherra koma fyrir umhverf-
is- og samgöngunefnd Alþingis í dag.
Að sögn Bergþórs Ólasonar, for-
manns nefndarinnar, er tilefni fund-
arins Hvassahraunssamkomulag frá í
nóvember og misjöfn sýn manna á
innihald þess.
„Mér þykir þó líklegt að Sunda-
brautin og þessi mál komist til um-
ræðu,“ segir Bergþór. Aðspurður
segist hann taka undir orð Ólafs þess
efnis að borgin virðist vera að
skemma fyrir uppbyggingu Sunda-
brautar.
„Mér sýnist það því miður vera
raunin. Sundabrautarmálið hefur
náttúrulega verið mikil þrautaganga
og þarna virðist verið að þrengja að
veglínunni á sama tíma og ráðist er í
vinnu við að leggja mat á lausnir,“
segir Bergþór og vísar til enn eins
starfshópsins um framtíðarlegu
Sundabrautar, sem skipaður var á
dögunum og í sitja fulltrúar Vega-
gerðarinnar, borgarinnar og Sam-
taka sveitarfélaga á höfuðborgar-
svæðinu. Þá segir Bergþór að beita
hafi þurft talsverðri hörku til að koma
að einni setningu um Sundabraut í
samgöngusáttmála ríkis og sveitarfé-
laga höfuðborgarsvæðisins í fyrra, en
Sundabraut er þó að öllu ófjár-
mögnuð ólíkt öðrum verkefnum svo
sem Borgarlínu, Miklubraut í stokk
og gatnamótum Reykjanesbrautar
við Bústaðaveg. „Ég vona að það fáist
skýrari mynd á hvort skilningur
borgarstjóra eða samgönguráðherra
er nærri lagi,“ segir Bergþór.
Borgin þrengi að Sundabraut
Fyrirhuguð uppbygging húsnæðis fyrir heimilislausa er utan deiliskipulags, segir varaborgar-
fulltrúi Skemmi fyrir lagningu Sundabrautar Borgarstjóri á fund samgöngunefndar í dag
Ko
rt
ag
ru
nn
ur
:
O
pe
nS
tr
ee
tM
ap
Vegstæði Sundabrautar,
a.m.k. 50 metra breitt 2+2
Helgunarsvæði Sundabrautar
BORGIR
RIMAR
Uppbygging á Gufunesi og lega Sundabrautar
Eiðsvík
Strandveg
ur
Su
nd
ab
ra
ut
S
u
n
d
ab
ra
u
t
Þorpið
Nýtt hverfi í
Gufunesi
GUFUNES
Ljósmynd/Reykjavíkurborg
Þorpið í Gufunesi Dagur B. Eggertsson borgarstjóri tók í síðustu viku fyrstu skóflustungu að framtíðarbyggðinni.
Ólafur Kr.
Guðmundsson
Bergþór
Ólason
Jón Ásgeir Jóhannesson, Ingibjörg
S. Pálmadóttir og 365 hf. hafa stefnt
Sýn hf., Heiðari Guðjónssyni, for-
stjóra félagsins, og stjórn þess til
greiðslu skaðabóta að fjárhæð þrír
milljarðar króna. Þetta kemur fram í
nýbirtum árshlutareikningi Sýnar.
Sýn hafði áður stefnt 365, Torgi
ehf., Ingibjörgu og Jóni Ásgeiri til
greiðslu skaðabóta vegna meintra
brota á ákvæðum kaupsamnings um
starfsemi 365 hf. og yfirlýsingu sem
gefin var út í tengslum við kaup-
samningsgerðina um samkeppnis-
bann. Lutu meint brot gegn sam-
keppnisbanninu að tilteknum
þáttum í starfsemi vefmiðilsins
frettabladid.is.
Í árshlutareikningi Sýnar segir að
á þessum tímapunkti geti félagið
ekki metið framtíðarskuldbindingar
eða kröfur sem leiða af niðurstöðum
málarekstursins. Segir félagið að af
þeim sökum hafi „engin skuldbind-
ing eða krafa verið færð í árshluta-
reikning félagsins“.
Morgunblaðið/Hari
Sýn Félagið segist ekki geta metið þær kröfur sem leiða af málarekstrinum.
Krefjast þriggja
milljarða frá Sýn
Stefna Sýn, forstjóra Sýnar og stjórn