Morgunblaðið - 24.05.2020, Side 10
BAKSVIÐ
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
Bráðaenduraðgerðum vegna alvar-
legra blæðinga eftir kransæða-
hjáveitu hefur fækkað marktækt
hér á landi undanfarinn áratug. Er
um gríðarlega jákvætt skref að
ræða, en blæðingar eru meðal
hættulegustu fylgikvilla framan-
greindra aðgerða. Þetta segir Tóm-
as Guðbjartsson, prófessor og yfir-
læknir á Landspítalanum.
Rannsókn sem unnin hefur verið
af vísindamönnum og nemendum
við læknadeild Háskóla Íslands og
Landspítala var á dögunum birt í
læknisfræðiritinu Scandinavian
Cardiovascular Journal. Segir Tóm-
as niðurstöður rannsóknarinnar
mjög merkilegar en þar kemur m.a.
fram að enduraðgerðum í kjölfar
kransæðahjáveitu hefur fækkað
verulega síðustu ár.
Tíðnin lækkað síðustu ár
Rannsóknin náði alls til 2.060
sjúklinga sem gengust undir krans-
æðahjáveituaðgerð á Landspítala á
tímabilinu 2001-2016. 130 sjúkling-
ar, sem gengust undir enduraðgerð,
voru bornir saman við 1.930 sjúk-
linga sem ekki þurftu slíka aðgerð.
Niðurstaða rannsóknarinnar
sýndi að fjöldi þeirra sem þurftu á
enduraðgerð að halda var að meðal-
tali fremur mikill. Hins vegar kom í
ljós að enduraðgerðum fækkaði um
4,1% á ári að meðaltali, eða úr 10-
11% aðgerða þegar tíðni var hæst í
undir 4% aðgerða frá árinu 2013. Að
sögn Tómasar hefur tíðnin jafn-
framt haldið áfram að lækka síðustu
ár. „Við erum gríðarlega ánægð
með þennan árangur enda er hann á
pari við það sem best gerist erlend-
is. Ekki skemmir síðan fyrir að
þetta hefur haldið áfram að lækka
undanfarin þrjú ár,“ segir Tómas.
Í ljós kom sömuleiðis að sjúkling-
ar í enduraðgerðarhópi glímdu oftar
við hjartabilun og voru oftar á kröft-
ugum blóðflöguhemjandi lyfjum.
Hjá þeim reyndist tíðni alvarlegra
fylgikvilla annarra en blæðinga
einnig helmingi hærri. Auk þess var
lega á gjörgæslu helmingi lengri og
30 daga dánartíðni nær fimmfalt
meiri en sjúklinga sem ekki þurftu
að fara í enduraðgerð. Að 30 dög-
unum liðnum reyndust lífshorfur þó
sambærilegar við þá sem ekki höfðu
orðið fyrir blæðingum.
Gríðarlegur sparnaður
Að sögn Tómasar má rekja
árangurinn til ýmissa samverkandi
þátta, en þó verði að horfa sérstak-
lega til notkunar ROTEM-storku-
mælingartækja sem voru tekin upp
fyrir um sjö árum á Landspítala, en
tækin gera heilbrigðisstarfsfólki
kleift að mæla hvaða storkulyf og
blóðhluta má gefa til að minnka
blæðingu við lok aðgerðar. Þannig
fá læknar vísbendingu um hvaða
blóðstorkuefni hægt er að gefa inni
á skurðstofu til að bæta blæðingu.
Að sögn Tómasar er fjárhagsleg-
ur ávinningur af notkun tækisins
mikill. Nóg sé að benda á kostnað
sem skapast sökum legu sjúklings á
gjörgæslu- eða legudeild. Kostnað-
ur vegna eins sólarhrings á slíkri
deild getur hlaupið á hundruðum
þúsunda króna. Með því að fækka
blæðingartilfellum er gjörgæslutími
jafnvel styttur um helming.
„Það er til mikils að vinna og
bara það að fækka dögunum um
helming getur lækkað kostnað al-
veg gríðarlega. Góðu fréttirnar eru
auðvitað þær að þetta hefur verið
að lækka undanfarin ár og því ber
að fagna.“
Hafa tekið stór skref fram á við
Enduraðgerðum vegna alvarlegra blæðinga eftir kransæðahjáveitu fækkar marktækt Gríðarlegan
sparnað má rekja til nýs tækis Landspítalans Árangurinn á pari við það sem best gerist erlendis
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 2020
Laugavegi 29 | sími 552 4320 | www.brynja.is | verslun@brynja.is
Vandaðir þýskir
póstkassar, hengi-
lásar, hjólalásar
og lyklabox.
MIKIÐ ÚRVAL
Opið
virka
daga
frá 9
-18
lau f
rá 10
-16
Erum með þúsundir vörunúmera
inn á vefverslun okkar brynja.is
Frí heimsending út maí
Kransæðahjáveituaðgerð er
framkvæmd við alvarlegum
þrengslum í öllum helstu krans-
æðum hjartans. Þetta er al-
gengasta opna hjartaaðgerðin
og eru framkvæmdar rúmlega
100 slíkar aðgerðir árlega á Ís-
landi. Eru blæðingar á meðal
hættulegustu fylgikvilla að-
gerðanna.
Oftast er hægt að leysa þær
með gjöfum blóðhluta eða
storkuhvetjandi lyfjum. Þó get-
ur það endað svo að kalla þarf
sjúklinginn að nýju inn á skurð-
deild.
Blæðingar
fylgikvilli
ALGENGAR AÐGERÐIR
Morgunblaðið/RAX
Aðgerð Tómas Guðbjartsson í miðri hjartaaðgerð á Landspítala. Framkvæmdar eru um 100 slíkar aðgerðir árlega.