Morgunblaðið - 24.05.2020, Page 24
24 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 2020
BROTINN
SKJÁR?
Við gerum v
allar tegun
síma, spjaldtö
og t
ið
dir
lva
ölva
Bolholti 4, 105 • Reykjavík • S 534 1400 • www.smartfix.is
s n j a l l t æ k j a þ j ó n u s t a
Fæst í apótekum, heilsubúðum og heilsuhillum verslana.
B-complete
munnsprey
Sérvalin B-vítamín blanda sem
inniheldur öll átta B-vítamínin
sem styðja við náttúrulega
orkuframleiðslu og eðlilega
virkni ónæmiskerfisins.
Bragðgott munnsprey með náttúrulegu
ferskju-, plómu- og hindberjabragði.
NÝTT
Umbúðir endurunnar úr plasti úr sjónum.
Biskup Íslands auglýsti fyrir
nokkru laust til umsóknar starf í
Austurlandsprófastsdæmi og rann
umsóknarfrestur út 5. maí sl.
Tvær umsóknir bárust um starf-
ið, frá Gunnbjörgu Óladóttur, með
meistarapróf í guðfræði (MTh), og
Berglindi Hönnudóttur, með BA-
próf í guðfræði.
Starfið er tímabundið í eitt ár og
æskilegt talið að viðkomandi hefji
störf sem fyrst. Starfsvettvangur er
Egilsstaða-, Hofs- og Austfjarða-
prestakall í Austurlandsprófasts-
dæmi og er hann fjölbreytilegur og
margþættur. Áhersla er lögð á
barna- og æskulýðsstarf í prófasts-
dæminu og verða verkefni starfs-
mannsins mjög svo tengd fræðslu-
málum.
Tvær sóttu um starf prests á Austurlandi
Sigurður Ægisson
Siglufirði
Þá er sumarið komið með blóm í
haga. Einhverjir fuglar eru byrj-
aðir varp, s.s. fálkinn, grágæsin,
hrafninn, máfurinn og tjaldurinn,
og aðrir eru í startholunum.
Á dögunum gerðist það að
mandarínandapar birtist óvænt á
Austurlandi og er þar enn. Slíkt
hefur bara einu sinni gerst áður,
nánar tiltekið á Jökuldal árið 2014.
Ekkert fleira er vitað um þá heim-
sókn. Vonast fuglaáhugamenn til
að þetta par muni fjölga sér í ís-
lenskri náttúru. Það yrði saga til
næsta bæjar. Blikarnir eru algeng-
ir flækingar, en einungis ein kolla
hefur sést hér áður stök, það var á
Raufarhöfn 2004.
Í apríl og maí hafa ýmsar fram-
andi tegundir gist landið að auki,
um lengri eða styttri tíma, kom-
andi héðan og þaðan. Þetta eru
m.a. akurgæs, alaskagæs, barr-
finka, bjarthegri, bláheiðir (senni-
lega), bleshæna, bognefur, bók-
finka, brúnheiðir, dílastelkur,
dvergkráka, dvergmáfur, dverg-
snípa, dvergtittlingur, fjallafinka,
glóbrystingur, gráhegri, grákráka,
grálóa, gransöngvari, gráspör,
grátrana, gultittlingur, gunnfálki,
hettusöngvari, hnúðsvanur, hring-
dúfa, hringmáfur, hringönd, hrím-
tittlingur, hvinönd, hvítönd, ískjói,
kanadagæs, kjarnbítur, kolönd,
korpönd, krákönd, krummönd,
kúfönd, kúhegri, landsvala, lauf-
söngvari, ljóshöfði, murtönd,
skutulönd, söngþröstur, spor-
tittlingur, taumönd, trjátittlingur,
vepja, víxlnefur, þaraþerna, æðar-
drottning og -kóngur.
Fleira á svo eftir að detta inn á
næstu vikum. Reynsla áranna hef-
ur sýnt það.
Mandarínendur
gætu reynt
varp á Íslandi
Par hefur verið á landinu undanfarið
Slíkt hefur bara einu sinni gerst áður
Blikarnir eru algengir flækingar hér
en kollurnar sárasjaldgæfar
Ljósmyndir/Mikael Sigurðsson
Andapar Mandarínendurnar sem sáust nýverið á Austurlandi, kollan nær. Parið fylgist að í hvívetna og vonast
fuglaáhugamenn til að eitthvað meira verði úr því sambandi. Sjaldgæf sjón og fróðlegt verður að sjá framhaldið.
Gulur Þessi gultittlingur var á Stöðvarfirði í lok apríl, páskalegur að sjá.
Skarpur Kúhegri er einn af framandi gestum sumarsins þetta árið.
Flottur Blikinn er litskrúðugur.