Morgunblaðið - 24.05.2020, Page 49
náðir náttúrunnar til að finna frið
og ró en aðrir sækja þangað æv-
intýri og spennu. Með auknum
straumi ferðamanna er viðbúið að
leiðir þessara hópa skarist í auknum
mæli. Sýnum tillitssemi við aðra á
ferðum okkar svo komist verði hjá
árekstrum.
Ferðafélag Íslands hvetur félags-
menn og landsmenn alla til að
ganga vel um náttúru landsins og
sýna ýtrustu varúð þannig að henni
verði ekki spillt. Einnig ber að sýna
landeiganda og öðrum rétthöfum
fulla tillitssemi og virða hagsmuni
þeirra.
Akstur
Ökum ekki utan vega. Ökutæki
getur markað sár í landið sem erfitt
er að afmá. Leyfilegt er að aka utan
vega þegar jörð er snævi þakin og
frosin.
Gönguferðir
Heimilt er að fara gangandi um
óræktað land. Styttum okkur ekki
leið yfir afgirt land, tún eða einka-
lóðir og virðum reglur um umferð á
svæðum þar sem verið er að vernda
dýralíf og gróður. Fylgjum merkt-
um göngustígum. Stígarnir eru
gerðir til þess að auka öryggi fólks
og vísa því rétta leið og draga úr
álagi á viðkvæma náttúru.
Landeigendum ber að tryggja að
ferðamenn komist meðfram vatns-
bökkum og strönd og eftir þjóð-
leiðum og skipulögðum stígum. Við
farartálma skulu vera prílur eða
hlið. Umferð um vötn og ár er háð
leyfi rétthafa. Vatnsbakkar og
hólmar eru oft mikilvæg búsvæði og
því ber að ganga þar um af gætni.
Hjólreiðar
Hjólandi fólki ber að fylgja veg-
um og reiðhjólastígum þar sem þess
er kostur. Sumir göngustígar eru
ekki til þess gerðir að hjólað sé á
þeim og þar er umferð reiðhjóla
takmörkuð. Gætum þess að fara
ekki illa með gróður og eyðileggja
ekki yfirborð stíga þar sem farið er
um.
Útreiðar
Hestamönnum ber að fylgja reið-
stígum. Hugum að jarðvegi og
gróðri á ferð utan reiðstíga. Í há-
lendisferðum ber að hafa fóður með-
ferðis. Næturhólfum skal valinn
staður á ógrónu landi. Sérstaka gát
ber að sýna við stóðrekstur.
Nokkur góð varðandi umgengni í
náttúrunni:
Göngum ávallt frá áningarstað
eins og við viljum koma að honum.
Skiljum ekki eftir rusl á víðavangi
né urðum það.
Kveikjum ekki eld á grónu landi.
Rífum ekki upp grjót né hlöðum
vörður að nauðsynjalausu.
Spillum ekki vatni, né skemmum
lindir, hveri eða laugar.
Sköðum ekki gróður.
Truflum ekki dýralíf.
Skemmum ekki jarðmyndanir.
Rjúfum ekki öræfakyrrð að
óþörfu.
Ökum ekki utan vega.
Fylgjum merktum göngustígum
þar sem þess er óskað.
Virðum friðlýsingarreglur og til-
mæli landvarða
Ferðafélag Íslands óskar lands-
mönnum gleðilegs ferðasumars.
FÍ myndabanki
FÍ myndabanki
Heillandi Gengið á Botnssúlur.
Ísland er best Kyrrð og
fegurð eru í forgrunni í
íslenskri náttúru.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 2020
Ljósmyndir Rutar og Silju
Skipholti 31 • 105 Reykjavík • Sími 568 0150
Opið virka daga 10-17 • www.rut.is • Ljósmyndir Rutar og Silju
Stúdentamyndatökur
Einstök
minning
Húðfegrun ehf | Vegmúli 2 | Sími 533 1320 | www.hudfegrun.is
Tímapantanir í síma 533 1320
Við tökumvel ámóti ykkur í Vegmúla2
Gelísprautun
Náttúruleg fylling í varir og línur
Eykur kollagenframleiðslu
NeauviaOrganic