Morgunblaðið - 24.05.2020, Side 54
54 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 2020
Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | rein.is
Dekton þolir mikinn hita. Það má setja heita potta og pönnur
beint á steininn án þess að eiga það á hættu að skemma hann.
Dekton er algjörlega öruggt gagnvart blettum.
Blettaþolið SýruþoliðHögg- og
rispuþolið
50 ára Nanna er
Reykvíkingur, ólst upp
á Óðinsgötu 19 og
býr í næsta húsi. Hún
er sjúkraliði að mennt
frá FB og er skráður
græðari. Nanna vinn-
ur við heimahjúkrun.
Börn: Tinna Karen, f. 1991, Hekla
Dögg, f. 1993, og Gabríel Sölvi, f.
2006 og barnabarn er á leiðinni í
október.
Foreldrar: Jóhannes Þorsteinn Helga-
son, f. 1934, fv. sendibílstjóri, bús. í
Reykjavík, og Málfríður Erna Sigurð-
ardóttir, f. 1941, d. 2007. Þau ráku
teppa- og hreingerningarþjónustuna
Ernu og Þorstein til margra ára.
Nanna Guðný
Jóhannesdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Það er nauðsynlegt að halda sig
á mottunni hvað fjárútlát varðar. Leitaðu
sérfræðiráðgjafar til þess að tryggja hag
þinn.
20. apríl - 20. maí
Naut Ástarsamband tekur u-beygju.
Njóttu samvista við fjölskylduna í kvöld
og mundu að bráðum kemur betri tíð
með blóm í haga.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Stundum er eina ráðið að halda
að sér höndum og bíða færis. Hikaðu
ekki við að biðjast afsökunar. Jafnvægi er
það sem allir þurfa á að halda.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þér leiðist aðgerðaleysi og munt
þú byrja á einhverju nýju áður en þú hef-
ur klárað það sem hefur átt huga þinn
undanfarið. Áhyggjur leysa engan vanda.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Mikilvæg ábending frá vini getur
leitt til varanlegrar heilsubótar. Farðu að
öllu með gát í umferðinni, því ekkert ligg-
ur á.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Það bendir ýmislegt til þess að
gamall draumur þinn muni rætast.
Heppnin gæti verið með þér á næstunni.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þetta er góður dagur til að gera
breytingar á lífinu. Til að endurheimta
kraftana skaltu stefna á einveru í ein-
hvern tíma.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú ert í miklu vinnustuði
núna. Sýndu sérstaka aðgæslu í fjár-
málum. Vinir koma þér á óvart og þú
sérð hvað þú átt góða að.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það er um að gera að taka
lífið ekki of alvarlega. Þú þarft að temja
þér þolinmæði.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þér líður ekki vel og sjálfs-
traust þitt er ekki með besta móti. Þú
færð hugmynd sem á eftir að valda
straumhvörfum í lífi þínu.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Enn og aftur nýturðu góðs af
greiðvikni annarra. Farðu þér hægt því þú
þarft að vinna aðra á þitt band. Ekki láta
æsa þig upp að óþörfu.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú getur lært mikið á því að
skiptast á skoðunum við vin þinn. Ef þú
þarft á hjálp að halda biddu þá um hana.
Ekki láta stoltið ráða för.
Fjölskylda
Eiginkona Garðars er Anna Ólöf
Ólafsdóttir, f. 16.6. 1953, verslunar-
stjóri ÁTVR á Höfn. Þau bjuggu á
Hvolsvelli 1972 til 1974 en fluttu þá til
Hafnar í Hornafirði og hafa búið þar
síðan. Foreldrar Önnu voru hjónin
Garðar var í björgunarsveit
Slysavarnafélagsins á Hvolsvelli og
Höfn og sat í stjórn Björgunar-
félags Hornafjarðar, Ferðamála-
félags Austur-Skaftafellssýslu,
Jöklaferða og Félags sérleyfishafa.
Ferðalög eru helsta áhugamál
Garðars.
S
igurjón Garðar Óskarsson
er fæddur 14. maí 1950 á
Syðri-Úlfsstöðum í Aust-
ur-Landeyjum í Rangár-
vallasýslu. Hann fluttist
tveggja ára með fjölskyldu sinni á
Hvolsvöll en var alla tíð í sveit á
Úlfsstöðum á sumrin, til 15 ára
aldurs.
Garðar gekk í Barnaskólann á
Hvolsvelli og tók síðan gagnfræða-
próf frá Skógaskóla 1966. Hann
lauk síðan tveimur bekkjum í Iðn-
skólanum á Selfossi. Garðar tók
einkaflugmannspróf 1988.
Garðar var í brúarvinnuflokki
Jónasar Gíslasonar í fjögur sumur
og einn vetur. „Helstu brýr sem ég
vann við að byggja voru yfir Jökulsá
á Breiðamerkursandi og Elliða-
árnar í Reykjavík.“ Garðar var eina
vetrarvertíð í Vinnslustöðinni í
Vestmannaeyjum og tvær vertíðir á
Kap II VE. Hann var stýrimaður á
Þinganesi SF veturinn 1975.
Garðar byrjaði árið 1970 að aka
rútum hjá fjölskyldufyrirtækinu
Austurleið hf. sem Óskar faðir hans
stofnaði. Sérleyfið náði frá Reykja-
vík og að Fossi á Síðu, en með opnun
Skeiðarárbrúar árið 1974 lengdist
sérleyfið til Hafnar í Hornafirði og
síðar áfram til Egilsstaða yfir
sumartímann. Austurleið hf. sam-
einaðist síðar Sérleyfisbílum Selfoss
og í framhaldi af því Kynnisferðum.
Garðar starfaði hjá Austurleið sem
bílstjóri og framkvæmdastjóri til
2004, og síðan hjá Kynnisferðum til
2007. „Við vorum með um 35 rútur
en þegar fyrirtækið sameinaðist
SBS voru bílarnir um 70-80.
Við stofnuðum Jöklaferðir í
kringum 1981 og vorum fyrst í dags-
ferðum upp á Vatnajökul en byggð-
um síðan árið 1991 skálann Jöklasel
sem er uppi á Skálafellsjökli.“
Tímabilið 1975 til 1988 starfaði
Garðar á veturna með akstrinum
hjá Byggingafélagi Hornafjarðar,
Vélsmiðju Hornafjarðar og lyftara-
verkstæði Borgeyrar. Eftir að
Garðar hætti hjá Kynnisferðum hef-
ur hann unnið við rafvirkjun hjá
Rafhorni ehf. á Höfn. „Ég er ennþá
að vinna þar og ætla að halda því
áfram fram eftir ári.“
Ólafur Guðjónsson, f. 5.4. 1918, d. 5.7.
1998, og Anna Guðmunda Markús-
dóttir, f. 2.11. 1913, d. 11.5. 2001,
bændur í Vesturholtum í Þykkvabæ,
Rang.
Börn Garðars og Önnu eru 1) Sig-
ríður Guðbjörg Garðarsdóttir, f. 3.2.
1972, bankastarfsmaður Landsbank-
Garðar Óskarsson, fyrrverandi sérleyfishafi – 70 ára
Fjölskyldan Garðar og Anna ásamt börnum sínum, tengdabörnum og barnabörnum í byrjun ársins 2019.
Myndin er tekin í Haukafelli, sem er skógræktarsvæði Hornfirðinga.
Frá Reykjavík til Egilsstaða
Hjónin Garðar og Anna á ferðalagi erlendis, en þau gengu í hjónaband 1972. Á Djúpavogi Garðar á ferðalagi.
Kristín Sturludóttir frá Suðureyri við Súganda-
fjörð er 90 ára er í dag. Eiginmaður hennar er Guð-
björn Björnsson og þau búa á Sléttuvegi 13, 103
Reykjavík.
Árnað heilla
90 ára
40 ára Stephanie er
frá Würsburg í Bæj-
aralandi en flutti til Ís-
lands 2005 og býr í
Mosfellsbæ. Hún út-
skrifaðist úr hótel-
námi í Þýskalandi og
er framkvæmdastjóri
Öldu hótels á Laugavegi.
Maki: Róbert Már Grétarsson, f. 1978,
eigandi fyrirtækisins Þakdúkalagnir.
Börn: Lilja Ósk, f. 2008, og Jacob Már, f.
2010.
Foreldrar: Martina Mauler, f. 1957, hús-
móðir og garðyrkjukona, og Siegfrid
Mauler, f. 1957, fv. lögreglumaður. Þau
eru bæði komin á eftirlaun og eru búsett
í Darstadt í nágrenni Würzburg.
Stephanie
Mauler
Til hamingju með daginn