Morgunblaðið - 24.05.2020, Side 55
DÆGRADVÖL 55
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 2020
ans á Höfn. Eiginmaður hennar er
Aðalsteinn Guðmundsson, f. 1968, vél-
stjóri. Börn þeirra eru Ágúst Máni, f.
1999, Hafsteinn Elvar, f. 2001 og
Magndís Lóa, f. 2006; 2) Sonja Garð-
arsdóttir, f. 24.9. 1977, starfsmaður á
leikskólanum Sjónarhóli á Höfn. Hún
er í sambúð með Arnari Þór Jónssyni,
f. 1969, sjómanni. Börn þeirra eru Ólöf
María, f. 1999, Arna Ósk, f. 2003 og
Elvar, f. 2013. Fyrir átti Arnar Sindra
Rafn, f. 1990, Eydísi Hlín, f. 1992 og
Andra Jón, f. 1994; 3) Ólöf Ósk
Garðarsdóttir, f. 18.8. 1980, rekur
gistiheimili á Höfn. Eiginmaður henn-
ar er Gunnar Örn Reynisson, f. 1979,
framkvæmdastjóri. Börn þeirra eru
Reynir Snær, f. 2006, Íris Ösp, f. 2009
og Garðar Logi, f. 2013; 4) Svanhildur
Garðarsdóttir, f. 10.7. 1984, tann-
tæknir hjá tannlæknastofunni Brosið í
Reykjavík. Hún er í sambúð með Guð-
mundi Ingvarssyni, f. 1979, forstöðu-
manni hugbúnaðardeildar Samskipa.
Systkini Garðars eru Halldór Ósk-
arsson, f. 4.2. 1953, kennari og öku-
kennari á Hvolsvelli; Ómar Óskars-
son, f. 22.5. 1954, móttökustjóri hjá
Vélrás í Reykjavík; Guðbjörg Óskars-
dóttir, f. 27.3. 1956, bókari hjá Eim-
skip í Helsingborg, Svíþjóð; Sigurlín
Óskarsdóttir, f. 7.11. 1958, fyrrverandi
svæðisstjóri VÍS á Hvolsvelli og
hrossaræktandi; Óskar Óskarsson, f.
25.1. 1965, flugumferðarstjóri í
Reykjavík; Unnur Óskarsdóttir, f.
20.6. 1967, leikskólakennari á Hvols-
velli; Þórunn Óskarsdóttir, f. 25.6.
1967, kennari á Hvolsvelli.
Foreldrar Garðars: Hjónin Óskar
Sigurjónsson, f. 16.8. 1925, d. 10.10.
2012, sérleyfishafi og framkvæmda-
stjóri Austurleiðar, og Sigríður Hall-
dórsdóttir, f. 15.6. 1929, húsmóðir.
Hún dvelur á Dvalarheimilinu Kirkju-
hvoli á Hvolsvelli.
Sigurjón Garðar
Óskarsson
Sigríður Bjarnadóttir
húsfreyja á Glæsistöðum
Guðmundur Gíslason
bóndi á Glæsistöðum í
V-Landeyjum
Guðbjörg Guðmundsdóttir
húsfreyja á Syðri-Úlfsstöðum
Halldór Jóhannsson
bóndi á Syðri-Úlfsstöðum í A-Landeyjum
Sigríður Halldórsdóttir
húsfreyja á Hvolsvelli
Katrín Jónsdóttir
húsfreyja á Arnarhóli
Jóhann Tómasson
bóndi á Arnarhóli í V-Landeyjum
Sveinbjörn Sigurjónsson
bifreiðarstjóri á Torfastöðum
Guðbjörg Jóhannsdóttir Norman
fór til Vesturheims frá Fornahvammi
í Borgarfirði, húsfreyja í St. Louis
Park, Minnesota
Sigurður Sigurðsson
vinnumaður á
Gilsstöðum í Vatnsdal
Ólína Sigurðardóttir
húsfreyja á Torfastöðum
Sigurjón Jónsson
bóndi á Torfastöðum í Fljótshlíð
Sigurbjörg Sveinsdóttir
húsfreyja á Torfastöðum
Jón Egilsson
bóndi á Torfastöðum
Úr frændgarði Garðars Óskarssonar
Óskar Sigurjónsson
sérleyfishafi og fram
kvæmdastjóri Austurleiðar
„SKO, ÞÚ ERT 103 ÁRA GAMALL. ÞÚ VERÐUR
AÐ FARA AÐ HUGSA BETUR UM SJÁLFAN
ÞIG.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
... að líta um öxl án
eftirsjár.
SVO YKKUR ER ALVEG
SAMA ÞÓTT ÉG FARI Á
STEFNUMÓT
ÞIÐ VIRÐIST HAFA SPJARAÐ
YKKUR NOKKUÐ VEL Í KVÖLD
EN ÉG MYNDI SAMT VILJA
VITA HVAÐ VARÐ UM
ÍSSKAPINN
HANN
SÁ ÞAÐ
MÉR LÍÐUR SVO VEL, EINS OG ÉG HAFI
LOKSINS SKRIÐIÐ ÚT ÚR SKELINNI!!
ÞURFTIRÐU AÐ SEGJA
ÞETTA?!
„HVAÐA VAL HAFÐI ÉG? ÉG VARÐ AÐ
VERJA ÞAÐ HVAÐ ÉG ER YFIR AÐRA
HAFINN.”
Indriði Aðalsteinsson á Skjald-fönn skrifar skemmtilegan pistil
á Boðnarmjöð: „Í bændarímu um
Aðaldæling var þessi vísa um afa á
Fjalli, Indriða Þórkelsson, sem átti
stóran barnahóp og var ekki í
miklu vinfengi við Grenjaðar-
staðarprest.
Er á Fjalli Indriði
öll sín brúkar tækin.
Er að flestra áliti
ekki kirkjurækinn.
En svo illa stóð á fyrir höfundi
bændarímunnar að hann var ná-
granni prests, báðir drykkfelldir og
meira að segja orðrómur um að vin-
fengi skáldsins við prestsmaddöm-
una væri meira en góðu hófi
gegndi, svo það vafðist ekki fyrir
afa svarið:
Væri vín og fljóð að fá
fyrir handan lækinn,
gerast mundi margur þá
maðurinn kirkjurækinn.“
Þessi pistill olli því, að ég rifjaði
upp Guðmund á Sandi, en hann
sagði að Indriði sameinaði best
gamla hagyrðinginn og unga
skáldið: - „Lausavísur hans eru
nærri því óteljandi, og er honum
víst viðlíka létt um að gera þær eins
og að tala mælt mál. En þó er hann
stundum heilt ár með eitt kvæði.
Þetta er vandvirknin.“
Hér koma þrjár vísur, sem Indr-
iði orti á skipsfjöl fyrir Austurlandi:
Mjúkan gang sem ör af ý
úlfur ranga hefur.
Dalatangi dimmu í
Drafnar fangi sefur.
Drekinn fló, er dagur hló,
drjúga þó með byrði,
yfir sjó og eldi spjó
út af Mjóafirði.
Lötrar svangur seinagang
sýldur ranga blesi.
Unnar vangur er í fang
undan Langanesi.
Þessar vísur eru yngri:
Yfir fölva fold og höf
feigðarbyljir hvína:
haust og vetur, helja og gröf
heimta inn skatta sína.
Út um bleika og bera fold
börn sér leika án kvíða.
Her sinn eykur helja og mold.
Hugurinn reikar víða!
Eina þá er aldrei frýs
úti á heljarvegi
kringda römmum álnarís
á sér vök hinn feigi.
Indriði orti á mjög ungum aldri:
Guð hinn blíði góða tíð
gaf um síðir lýði;
senn hin fríða fjallahlíð
fer að skrýðast víði.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af Indriða á Fjalli