Morgunblaðið - 24.05.2020, Page 56

Morgunblaðið - 24.05.2020, Page 56
56 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 2020 14. maí 1988 Alfreð Gíslason á góða mögu- leika á að verða Evrópumeist- ari í handknatt- leik fyrstur Íslendinga eftir nauman ósigur vesturþýsku meistaranna Essen, 18:15, í fyrri úrslitaleik keppninnar gegn CSKA frá Moskvu í sovésku höfuðborg- inni. Alfreð skorar þrjú mörk fyrir Essen sem á eftir seinni leikinn á heimavelli sínum viku síðar. 14. maí 1988 Atli Eðvaldsson skorar í kveðjuleik sínum í efstu deild vesturþýska fót- boltans þegar hann tryggir Bayer Uerdin- gen jafntefli, 2:2, gegn Mann- heim með föst- um skalla. Atli er þarna á heimleið eftir níu ár í Þýskalandi en hann er markahæstur Íslendinga í Bundesligunni frá upphafi með 59 mörk. 14. maí 1989 Ísland og Austur-Þýskaland skilja jöfn, 26:26, í vináttu- landsleik karla í handknatt- leik í Berlín. Óskar Þór Ár- mannsson skorar 6 mörk og Bjarki Sigurðsson 5 fyrir íslenska liðið sem hafði tapað með ellefu mörkum í leik lið- anna í Magdeburg daginn áð- ur. 14. maí 1997 Ísland sigrar Portúgal, 20:18, í vináttulandsleik í hand- knattleik karla í Kumamoto í Japan, átta dögum áður en heimsmeistaramótið hefst þar. Valdimar Grímsson er markahæstur með 4 mörk. 14. maí 2001 Guðjón Valur Sigurðsson, 21 árs handknattleiksmaður úr KA, skrifar undir þriggja ára samning við þýska stórliðið Essen. „Þetta verður mjög spennandi og atvinnu- mennskan er auðvitað það sem maður hefur stefnt á. Essen er stórt og virt félag í Þýskalandi sem hefur mikinn metnað svo ég tel mig vera að fara á mjög góða stað,“ segir Guðjón Valur við Morgunblaðið. 14. maí 2010 „Það var einstaklega sætt að vinna þennan leik,“ segir Jóna Guðlaug Vigfúsdóttir, tvítug landsliðs- kona í blaki frá Neskaupstað, við Morgun- blaðið eftir að hafa orðið norskur meist- ari með UIS Volley frá Stavanger með því að sigra lið Koll sem hafði verið ósigrandi í sjö ár. Jóna skorar 13 stig í úrslita- leiknum. 14. maí 2015 Rúrik Gíslason og Björn Bergmann Sigurðarson eru danskir bikarmeistarar í knattspyrnu með FC Köben- havn eftir 3:2 sigur á Vests- jælland í úrslitaleik þar sem Björn skorar eitt marka FCK. Eggert Gunnþór Jónsson er í silfurliði Vestsjælland. Sig- urmark FCK skorar Brandur Olsen, 19 ára Færeyingur, sem síðar gekk til liðs við FH. Á ÞESSUM DEGI VÍÐIR Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Gætu Víðir úr Garði og Barcelona mæst á fótboltavellinum? Þessari spurningu velti ég upp í grein síð- sumars árið 1987 og hún var alls ekki óraunhæf á þessum tíma, þó hún myndi vafalítið teljast vera það í dag, 33 árum síðar. Í dag, 14. maí, eru nákvæmlega 35 ár síðan knattspyrnulið Víðis úr Garði lék sinn fyrsta leik í efstu deild karla en þá mættu 1.100 manns á gamla malarvöllinn í Garð- inum, um það bil jafnmargir og bjuggu í bæjarfélaginu, og sáu ný- liðana í Víði taka á móti FH. Þeir fengu ekki þá óskabyrjun sem þá dreymdi um því mesti markaskorari deildarinnar til skamms tíma, Ingi Björn Albertsson, sem þá var spil- andi þjálfari FH, skoraði sigurmark Hafnarfjarðarliðsins, 1:0, rétt fyrir leikslok. „Aðstæður til að leika knatt- spyrnu voru ekki upp á það bezta. Malarvöllur sem bauð ekki upp á áferðarfallega knattspyrnu. En þess meiri var baráttan. Hún var alveg með ólíkindum, sérstaklega hjá Víðismönnum. Þeir ætla greinilega að selja sig dýrt í sumar, nýliðarnir í Garðinum. Síðar í þessum mánuði ætla hinir dugmiklu Víðismenn að vígja nýjan grasvöll, þá verður líka hátíðisdagur þar í plássinu,“ skrifaði Sigtryggur Sigtryggsson um leikinn í Morgunblaðið. Þremur dögum síðar fengu nýlið- arnir sinn versta skell í efstu deild, 7:0 á Akranesi, en 22. maí mættu hvorki fleiri né færri en 1.542 áhorf- endur á gamla grasvöllinn í Garði og sáu Víðismenn tapa naumlega fyrir Keflvíkingum, 1:2, í fyrsta grannaslag félaganna, og jafnframt fyrstu innbyrðis viðureign Suður- nesjaliða í efstu deild. Brautryðjendurnir Víðismenn voru brautryðjendur í fótboltanum hér á landi því þeir voru fyrsta liðið frá bæjarfélagi með færri en tvö þúsund íbúa til að ná sæti í efstu deild karla. Aðeins þrjú félög hafa afrekað það síðan, Leiftur frá Ólafsfirði, Skallagrímur úr Borgarnesi og Víkingur frá Ólafs- vík. Ævintýrið í Garðinum stóð mun lengur yfir en nokkurn óraði fyrir og síðsumars 1987 var liðið á sínu þriðja ári í efstu deild, ásamt því að vera komið í úrslitaleik bikarkeppn- innar í fyrsta skipti, gegn ríkjandi Íslandsmeisturum Fram. Þar með var orðinn raunhæfur möguleiki á að Víðismenn myndu leika í Evrópukeppni bikarhafa haustið 1988, ef þeir ynnu Framara í úrslitaleiknum, eða ef Framarar yrðu bæði Íslands- og bikarmeist- arar. Hvorugt gekk eftir, Fram varð bikarmeistari en missti af Íslands- meistaratitlinum til Vals. Hvað gerðist svo ári síðar? Jú, auðvitað drógust Framarar gegn Barcelona í fyrstu umferð Evrópu- keppni bikarhafa. „Þarna hefðum við getað verið,“ hugsuðu eflaust sumir Víðismanna þegar þeir leikir fóru fram. Öflugur kjarni heimamanna Ef við horfum aftur til 14. maí 1985, þegar Víðismenn léku fyrsta leikinn í efstu deild, þá var almennt ekki búist við því að strákarnir úr Garðinum hefðu langa viðdvöl á þessum slóðum og mörgum þótti hálfeinkennilegt að sjá þetta litla fé- lag, sem hafði til ársins 1983 ávallt leikið í 3. deild, spila gegn Fram, Val, KR, Keflavík, Akranesi og öðr- um bestu liðum landsins. Í tíu liða 1. deild, eins og efsta deildin var á þeim árum. Hvernig fóru þeir að þessu? Í Víðisliðinu sem tók að mótast um og eftir 1980 var mjög öflugur kjarni heimamanna. Þar voru bræðurnir Fótbolta- ævintýrið í Garðinum  Víðismenn léku fjögur ár í efstu deild og voru einum leik frá því að mæta Barcelona í Evrópukeppni Sögulegt Ævintýralegasta augnablikið í sögu Víðismanna í efstu deild. Ólafur Róbertsson bjargar á marklínu undir lokin á hreinum úrslitaleik gegn Þrótti á Garðsvelli í lokaumferð- inni 1985. Víðir vann 3:2 og hélt sæti sínu en Þróttur féll. Stjarnan tilkynnti í gær að fjórir ný- ir leikmenn væru komnir til liðs við karlalið félagsins í handknattleik. Þeirra reyndastur er Brynjar Hólm Grétarsson sem var markahæsti leikmaður 1. deildar meistara Þórs í vetur með 92 mörk í 15 leikjum. Tveir ungir leikmenn með mikla reynslu úr yngri landsliðum, Arnar Máni Rúnarsson og Goði Ingvar Sveinsson, koma frá Fjölni. Goði skoraði 59 mörk í úrvalsdeildinni í vetur og Arnar 42. Þá er Sigurður Dan Óskarsson, tvítugur markvörð- ur úr FH, kominn í Garðabæinn. Stjarnan fær fjóra nýja menn Ljósmynd/Þórir Ó. Tryggvason Garðabær Brynjar Hólm Grét- arsson kemur frá Þór. Hildur Björg Kjartansdóttir, lands- liðskona í körfubolta, skrifaði í gær undir samning við Val og mun hún leika með liðinu á næstu leiktíð. Hildur, sem er 25 ára, hefur verið lykilmaður í íslenska landsliðinu á undanförnum árum. Þá lék hún með Leganés og Celta Vigo í spænsku B-deildinni áður en hún hélt heim og samdi við KR fyrir síð- ustu leiktíð. Hildur skoraði 13,4 stig og tók 7,6 fráköst að meðaltali í Dominos-deildinni í vetur. Valur er ríkjandi deildarmeistari og vann liðið þrefalt tímabilið 2018/19. Landsliðskona samdi við Val Ljósmynd/Valur Hlíðar Hildur Björg Kjartansdóttir leikur með Val á næstu leiktíð. AKUREYRI Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Hefur KA hug á að ná samningum við Þór um að sjá um allan rekstur hand- bolta á Akureyri? Samkvæmt heim- ildum Morgunblaðsins eru umræður um það komnar í gang, allavega á óformlegan hátt, en blaðið fékk í gær ábendingu um að KA hefði sent Þór erindi þess efnis. KA og Þór tefla fram sameiginlegu liði í úrvalsdeild kvenna í handbolta, en liðin leika hvort í sínu lagi í meistaraflokki karla. KA hefur leikið í úrvalsdeild karla undanfarin tvö tímabil og þá tryggðu Þórsarar sér sæti í deildinni á síðustu leiktíð með sigri í 1. deildinni. Þórs- arar voru með 28 stig eftir fimmtán umferðir þegar mótinu var aflýst vegna kórónuveirunnar en þeir höfðu þá þegar tryggt sér sæti í úrvalsdeild- inni. Þór og KA tefldu fram sameigin- legu karlaliði undir nafninu Akureyri handboltafélag frá 2006 til 2017 en höfðu fram að því leikið áratugum saman hvort í sínu lagi. Hugur í Þórsurum Reimar Helgason, framkvæmda- stjóri Þórsara, vildi ekki tjá sig um það hvort Þórsurum hefði borist formlegt erindi frá KA um að taka yfir rekstur handknattleiksdeildarinnar. „Ég get ekki tjáð mig um þetta mál að svo stöddu,“ sagði Reimar í samtali við Morgunblaðið. „Að sama skapi held ég að þetta sé spurning sem væri best að beina til forráða- manna KA. Hvað okkur varðar þá er mikill hugur í mönnum fyrir vetr- inum og handknattleiksdeildinni en það er ekkert launungarmál heldur að rekstur íþróttafélaga í dag er erf- iður og gildir þar einu hvort um er að ræða fótbolta, körfubolta eða hand- bolta,“ bætti Reimar við. Skipst á upplýsingum Þá hafði Morgunblaðið samband við Ingvar Má Gíslason, formann KA, sem sagði að félagið hefði ekki sent neitt frá sér til Þórsara sem tengdist málinu. Yfirtaka á Akureyri?  Rætt um hvort KA sjái alfarið um handboltann í bænum  Skipst á óformlegum upplýsingum, segir formaður KA Grannaslagur Ekkert er gefið eftir þegar Akur- eyrarliðin mætast, en Þórsarar léku undir nafni Akureyrar þegar þeir mættu KA í úrvalsdeild- inni í desember 2018.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.