Morgunblaðið - 24.05.2020, Síða 57
Daníel, Grétar og Vilhjálmur lykil-
menn. Grétar öflugur framherji,
Daníel og Vilhjálmur grjótharðir
varnarmenn en Daníel hafði reynd-
ar verið aðalmarkaskorari liðsins í
3. deildinni þegar hann skoraði 25
mörk í aðeins tíu leikjum sumarið
1981.
Guðjón Guðmundsson var hörku-
duglegur miðjumaður og leiðtogi,
Gísli Heiðarsson traustur mark-
vörður og leikmenn á borð við Vil-
berg Þorvaldsson, Guðmund Jens
Knútsson, Klemenz Sæmundsson,
Björn Vilhelmsson, Sigurð Magnús-
son og Ólaf Róbertsson sýndu sig
allir og sönnuðu í efstu deild. Allir
voru þeir úr Garðinum.
Liðsaukinn frá Keflavík
Með þeim spiluðu síðan í eitt eða
fleiri ár leikmenn með reynslu úr
efstu deild, svo sem Mark Duffield,
Helgi Bentsson, Gísli Eyjólfsson
(sem var úr Garðinum en hafði leik-
ið með Keflavík í sex ár), Rúnar
Georgsson, Einar Ásbjörn Ólafsson,
Jón Örvar Arason og Sævar Leifs-
son. Þeir Gísli, Einar og Rúnar
komu allir frá Keflavík 1985 og
reyndust liðinu dýrmætur liðsauki
fyrir frumraunina í efstu deild.
Haukur, Marteinn og Kjartan
Þjálfarar á þessum árum voru
Haukur Hafsteinsson sem kom
þeim upp í 2. deildina haustið 1982
og hélt þeim þar án vandræða 1983.
Marteinn Geirsson, fyrrverandi
landsliðsfyrirliði, sem tók við 1984
og fór með liðið upp í hóp þeirra
bestu, lék þá sjálfur í vörninni sitt
síðasta tímabil sem leikmaður, og
fylgdi því eftir með því að halda lið-
inu í efstu deild 1985. Kjartan Más-
son sem hélt liðinu allörugglega í
deildinni 1986 og svo Haukur aftur
árið 1987 þegar Víðismenn féllu að
lokum en með allra minnsta mun.
Ævintýraleg björgun Ólafs
Fyrsta tímabilið var Víð-
ismönnum erfitt og þeir voru í fall-
sæti lengst af. Þeir unnu aðeins einn
leik í fyrri umferðinni, Víkinga 1:0 á
útivelli með marki Grétars Einars-
sonar.
Í lokin var spennan gríðarleg,
Víkingar voru fallnir en Víðir og
Þróttur mættust í hreinum úrslita-
leik í lokaumferðinni þar sem Þrótt-
urum nægði jafntefli. Víðismenn
knúðu fram sigur, 3:2, þar sem æv-
intýraleg björgun Ólafs Róberts-
sonar á marklínu undir lokin gerði
endanlega útslagið um að halda Víði
uppi og senda Þrótt niður.
Árið 1986 voru Víðismenn áfram í
námunda við fallsætin framan af
sumri. Aukin reynsla í liðinu skilaði
sér í góðum kafla um miðbik tíma-
bilsins og með 5:0 sigri á Breiðabliki
snemma í ágúst var liðið komið í
nánast örugga höfn þegar fjórar
umferðir voru eftir af deildinni. Svo
örugga reyndar að það þoldi vel að
tapa síðustu fjórum leikjunum og
endaði samt í 7. sæti, sem er besti
árangur félagsins fyrr og síðar.
Bikarúrslit og fallbarátta
sem réðst á einu marki
Eins og áður er getið léku Víðis-
menn til úrslita í bikarkeppninni
haustið 1987. Þar mættu þeir of-
jörlum sínum, töpuðu 5:0 fyrir Fram
á Laugardalsvellinum, en eftir
stendur mikið bikarævintýri þar
sem Víðir lagði bæði KR og Val að
velli á leið sinni í úrslitaleikinn.
Að honum loknum tók við erfið
fallbarátta. Víðismenn voru neðstir
með 11 stig þegar tvær umferðir
voru eftir af deildinni og útlitið var
svart. Þeir gerðu sér hinsvegar lítið
fyrir og sigruðu Skagamenn 4:3 á
Akranesi, komust með því uppfyrir
FH og af botninum, og sigruðu síð-
an KR 2:0 í lokaumferðinni. Aðeins
munaði einu marki að þeir héldu
velli í deildinni þriðja árið í röð en
Völsungar frá Húsavík náðu 0:0
jafntefli gegn meisturum Vals á
Hlíðarenda, fengu 17 stig eins og
Víðir og héldu sér uppi á markatöl-
unni 20:32 en markatala Víðis var
20:33. Svo tæpt var það!
Þeir komu aftur
En þó Víðismenn hefðu fallið
höfðu þeir ekki sagt sitt síðasta orð.
Þeir unnu 2. deildina á mjög sann-
færandi hátt árið 1990, undir stjórn
Óskars Ingimundarsonar, og léku
því sitt fjórða tímabil í efstu deild
1991. Þá voru enn í liðinu þeir Guð-
jón, Daníel, Grétar, Vilhjálmur, Vil-
berg, Ólafur, Klemenz, Björn og
Gísli, sem höfðu tekið þátt í að fara
upp úr 3. deildinni níu árum áður.
Að þessu sinni var brekkan þó of
brött. Víðismenn sátu á botninum
allt sumarið og fengu aðeins níu
stig, en margir minnast lokaleiks
þeirra af þeim sökum að Víkingar
fögnuðu Íslandsmeistaratitlinum á
Garðsvelli í lokaumferðinni, eftir 3:1
sigur, þar sem Sævar Leifsson hafði
skorað fyrsta mark leiksins fyrir
Víði.
Skrifuðu áhugaverðan kafla
Víðismenn voru komnir niður í 3.
deild tveimur árum síðar og hafa
ekki komist nálægt úrvalsdeildinni
frá þessum tíma. En þeir skrifuðu
mjög áhugaverðan kafla í Íslands-
sögu fótboltans, voru á sinn hátt
brautryðjendur fyrir minni félög og
sýndu að með vinnusemi, samheldni
og skipulagi er hægt að ná langt í
fótboltanum. En fyrst og fremst
byggðist þetta á því að fram kom
gríðarlega sterkur kjarni af heima-
mönnum í Garði sem sýndu og sönn-
uðu að þeir gátu staðið sig í sam-
keppni við þá bestu á landinu.
Meira af myndum er að finna á
mbl.is/sport/fotbolti.
Ljósmynd/Einar Ólason
ÍÞRÓTTIR 57
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 2020
Íslenskar handknattleiks-
konur flykkjast nú heim en fyrr í
vetur tilkynnti Birna Berg Har-
aldsdóttir að hún hefði samið við
ÍBV í Vestmannaeyjum. Mariam
Eradze fylgdi svo í fótspor henn-
ar og gekk til liðs Val og þá
samdi Rut Arnfjörð Jónsdóttir
við KA/Þór á dögunum en hún
var sú handboltakona sem hafði
verið lengst íslenskra handbolta-
kvenna í atvinnumennsku, á
seinni árum í það minnsta.
Í vikunni tilkynnti Stjarnan
svo að landsliðskonurnar Eva
Björk Davíðsdóttir og Helena Rut
Örvarsdóttir væru komnar heim
úr atvinnumennsku. Það er alveg
ljóst að kórónuveiran hefur átt
einhvern þátt í því að landsliðs-
konurnar hafa ákveðið að snúa
heim enda mörg félög í miklum
rekstrarvanda eftir heimsfarald-
urinn. Kvennalið munu að öllum
líkindum fara mun verr út úr far-
aldrinum enda erfiðara fyrir þau
að sækja sér styrktaraðila en
karlaliðin.
Eins frábært og það er að fá
þessa leikmenn heim þá er þetta
ákveðið áhyggjuefni fyrir ís-
lenska kvennalandsliðið. Liðið
fór síðast á stórmót árið 2012 og
miðað við þessa þróun er fátt
sem bendir til þess að liðið sé á
leiðinni á stórmót á næstu árum.
Þá má alveg nefna það líka að
þær sem eru að snúa aftur heim
eru flestar á besta aldri.
Alls leika sex landsliðskonur í
atvinnumennsku á næstu leiktíð,
sem er því miður allt of lítið. Að
sama skapi var gaman að sjá
þessa fyrrverandi atvinnumenn
koma heim og fara í fleiri lið en
bara Fram og Val. Úrvalsdeild
kvenna á næstu leiktíð gæti því
orðið virkilega skemmtileg
áhorfs og mun meira spennandi
en undanfarin ár. Sem landsliðs-
þjálfari hefði ég samt miklar
áhyggjur af gangi mála.
BAKVÖRÐUR
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Emil Hallfreðsson, landsliðsmaður í
knattspyrnu, gæti leikið með FH í
sumar. Emil er 35 ára og samnings-
bundinn ítalska C-deildarfélaginu
Padova til 30. júní næstkomandi.
Emil greindi frá því við hlaðvarpið
Steve Dagskrá að til greina kæmi
að leika með uppeldisfélaginu í
sumar. Óvíst er hvort C-deild Ítalíu
verður kláruð vegna kórónuveir-
unnar. Emil lék 29 deildarleiki með
FH frá 2002 til 2004 áður en hann
hélt út í atvinnumennsku. Hefur
hann leikið 71 landsleik og skorað í
þeim eitt mark.
Útilokar ekki að
spila með FH
Morgunblaðið/Eggert
Heim Landsliðsmaðurinn Emil Hall-
freðsson gæti leikið heima í sumar.
Þýska handknattleiksfélagið Nord-
horn tilkynnti í gær að gert hefði
verið samkomulag við Geir Sveins-
son um að láta af störfum sem þjálf-
ari karlaliðs félagsins. Geir kom til
Nordhorn rétt áður en síðasta tíma-
bil hófst og samdi til tveggja ára.
Tékkinn Daniel Kubes tekur við
starfinu af honum. Nordhorn vann
aðeins tvo leiki af 27 í efstu deild
Þýskalands í vetur og varð lang-
neðst en heldur samt sæti sínu því
ekkert lið var fellt úr deildinni
vegna kórónuveirunnar og fjölgað
um tvö í staðinn.
Geir er farinn
frá Nordhorn
Morgunblaðið/Hari
Þýskaland Geir Sveinsson þjálfaði
Nordhorn á nýliðnu tímabili.
„Það hefur ekkert bréf eða erindi
verið sent út, hvorki frá aðalstjórn
KA né handknattleiksdeild félags-
ins,“ sagði Ingvar Már í samtali við
Morgunblaðið. „Menn hafa skipst á
einhverjum óformlegum upplýs-
ingum varðandi þessi mál en það er
ekkert meira en það. Það er þess
vegna ekkert í gangi annað en bara
einhver umræða um það hvernig
best sé að stilla upp íþróttamálum
yfirhöfuð á Akureyri,“ bætti Ingvar
við.
Sérstök umræða
Þorvaldur Sigurðsson, formaður
handknattleiksdeildar Þórs, kvaðst
hafa heyrt sögusagnir af málinu en
ætti eftir að kynna sér það betur.
„Handknattleiksdeild Þórs hefur í
það minnsta ekki borist neitt erindi
frá KA varðandi sameiningu deild-
anna, hvað þá einhverja yfirtöku,“
sagði Þorvaldur. „Í næstu viku verð-
ur fundur um framtíð handboltans
hjá Þór sem snýst einfaldlega um að
vekja félagsmenn og fá fólk til þess
að standa saman í því að halda uppi
handboltanum hjá félaginu.
Ég hef heyrt af þessu máli en ég
hef ekki fengið neitt í hendurnar
sjálfur eða séð neitt tengt þessu. Ég
mun hins vegar klárlega spyrja eftir
þessu máli en fyrir það fyrsta var
Þór aldrei á móti því að vera með
sameiginlegt lið. KA sleit sig í raun
út úr sameiningunni og ef þeir vilja
sameinast aftur núna finnst manni
það mjög sérstakt.
Eins og staðan er í dag sé ég það
ekki fyrir mér að þetta geti gengið
upp. Það eru stjórnarmenn hverrar
deildar fyrir sig sem bera ábyrgð á
sínum deildum, ekki aðalstjórn fé-
lagsins. Ef menn hafa ekki meiri
pung en það að fara beint í okkar
yfirmenn í stað þess að ræða við okk-
ur fyrst, þá munu þessar viðræður
ekki ná neitt lengra, það er alveg á
kristaltæru,“ bætti Þorvaldur við.
Ef af þessu verður mun liðum
fækka um eitt á Íslandsmóti karla
næsta vetur. Þar sem KA og Þór
eiga bæði sæti í úrvalsdeildinni
myndi losna sæti þar, sem þá yrði
væntanlega annaðhvort úthlutað til
HK, sem varð næstneðst í deildinni í
vetur, eða Þróttar, sem var í þriðja
sæti af sjálfstæðum liðum í 1. deild-
inni.Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Grétar Einarsson og Vilberg
Þorvaldsson léku 71 af þeim 72
leikjum sem Víðir lék í efstu
deild á þessum fjórum árum,
1985-87 og 1991. Guðjón Guð-
mundsson lék 67 leiki, Ólafur Ró-
bertsson 64, Daníel Einarsson 63
og Klemenz Sæmundsson 63.
Grétar Einarsson var
markahæstur Víðismanna í efstu
deild með 18 mörk á þessum fjór-
um tímabilum. Guðjón Guð-
mundsson skoraði 10, Vilberg
Þorvaldsson 9, Steinar Ingi-
mundarson 6 og Daníel Ein-
arsson 6.
Einar Ásbjörn Ólafsson
gerði fyrsta mark Víðis í efstu
deild í 1:2 tapi gegn Keflavík í
þriðju umferð deildarinnar 1985.
Nýr grasvöllur Víðis sem
hefur verið notaður síðan var
vígður 29. júní 1985 þegar KR
kom í heimsókn. Vesturbæingar
sigruðu 2:0 með tveimur mörk-
um Ásbjörns Björnssonar.
Grétar og Vilberg spiluðu
alla leiki nema einn
Sterkustu kylf-
ingar landsins
eru allir skráðir
til leiks á fyrsta
mót tímabilsins á
heimlistamóta-
röðinni á Íslandi
í golfi, ÍSAM-
mótinu, sem
fram fer á Hlíða-
velli hjá Golf-
klúbbi Mosfells-
bæjar dagana 16.-17. maí. Vegna
kórónuveirunnar verður hins vegar
leikið eftir sérstökum kórónuveiru-
keppnis- og staðarreglum.
Keppendahópurinn á mótinu er
gríðarlega sterkur en í kvenna-
flokki eru atvinnukylfingarnir Guð-
rún Brá Björgvinsdóttir (GK),
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir (GR)
og Valdís Þóra Jónsdóttir (GL) all-
ar skráðar til leiks. Þær kepptu síð-
ast saman á Íslandsmótinu árið
2016 sem fram fór á Akureyri.
Í karlaflokki eru þeir Axel Bóas-
son (GK), Andri Þór Björnsson
(GR), Bjarki Pétursson (GKB), Guð-
mundur Ágúst Kristjánsson (GR),
Haraldur Franklín Magnús (GR) og
Ólafur Björn Loftsson (GKG) einnig
skráðir til leiks en íslenskir
atvinnukylfingar hafa lítið sem
ekkert getað keppt undanfarna
mánuði þar sem öllum mótum hefur
verið frestað fram eftir sumri.
Öll þau bestu
um helgina í
Mosfellsbæ
Ólafía Þórunn
Kristinsdóttir